24.11.1952
Efri deild: 30. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í B-deild Alþingistíðinda. (207)

38. mál, verndun fiskimiða landgrunnsins

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Sjútvn. þessarar hv. d. hefur, eins og sjá má á þskj. 274, lagt til, að frv. það, er hér um ræðir, verði samþ. óbreytt. Það er staðfesting á brbl., útgefnum 19. marz s.l., um breyt. á l. nr. 44 5. apríl 1948, um vísindalega verndun fiskimiða landgrunnsins, og segir svo í ástæðum hæstv. ríkisstjórnar: „Atvinnumálaráðherra hefur tjáð oss, að vegna fyrirhugaðra ráðstafana í sambandi við verndun fiskimiða umhverfis Ísland beri brýna nauðsyn til að breyta refsiákvæðum laga nr. 44 5. apríl 1943, um vísindalega verndun fiskimiða landgrunnsins, í því skyni að tryggja samræmi í framkvæmd þessara ráðstafana.“ — Og í 1. gr., eða einu efnisgrein frv., segir svo, að brot á reglum, sem settar verði samkv. 1. gr. þessara laga, varði viðurlögum samkv. ákvæðum laga nr. 5 18. maí 1920, um bann gegn botnvörpuveiðum, laga nr. 45 13. júní 1937, um bann gegn dragnótaveiði í landhelgi, laga nr. 33 19. júní 1922, um rétt til fiskveiða í landhelgi, með síðari breytingum. Ef um brot er að ræða, sem ekki feilur undir framangreind lög, varðar það 1.000–100.000 kr. sektum. Það er þessi breyting á sektarákvæðum, sem mér skilst að sé til þess, eins og komizt er að orði í forsendunum, að tryggja samræmi í framkvæmd þeirra ráðstafana, sem stefnt er að og hv. dm., öllum þingheimi og öllum landsmönnum eru vel kunnar.

Ég tel mig ekki þurfa að orðlengja frekar um þetta mál. Það er eitt nauðsynlegt atriði í sambandi við þá sókn á þessu sviði, vernd íslenzkrar landhelgi, sem hafin var með lagasetningu þeirri, er um ræðir, með lögum frá 5. apríl 1948. Að öðru leyti sé ég ekki þörf á frekari skilgreiningu frá hálfu hv. n., nema önnur ástæða gefist til.