24.11.1952
Efri deild: 30. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í B-deild Alþingistíðinda. (209)
38. mál, verndun fiskimiða landgrunnsins
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Ég hef ekkert við þetta frv. að athuga og ekki heldur við álit og till. hv. sjútvn. En mig langar til í sambandi við þetta mál að leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. sjútvmrh., hverjar frekari aðgerðir hæstv. ríkisstj. hefði hugsað sér í þessu máli. Á ég þar við, hvernig hæstv. ríkisstj. hugsi sér að svara þeim aðgerðum, sem einstök samtök manna í Bretlandi hafa nú með miklum árangri tekið upp til þess að koma í veg fyrir, að íslenzk botnvörpuskip geti selt afla sinn í Bretlandi. Ég vildi því mega beina til hæstv. ráðh. fyrirspurn um það, hvort hæstv. ríkisstj. hefði rætt um það sín á milli eða tekið til athugunar, hvort málið væri nú ekki komið á það stig, að sjálfsagt væri að láta hreyfa því á þingi Sameinuðu þjóðanna, sem nú situr. — Að vísu eru þær aðgerðir, sem hafðar eru í frammi af brezkum félagasamtökum til þess að koma í veg fyrir löndun á íslenzkum afla í Bretlandi, á engan hátt aðgerðir brezkra stjórnarvalda, en ég hygg, að við höfum við Breta beztu kjara samning, og það er augljóst, að með þeim aðgerðum, sem ríkisstj. þolir, að hafðar séu í frammi í Bretlandi gagnvart okkar skipum, eru ákvæði beztu kjara samningsins gerð að engu. Ég tel alveg víst, að hæstv. ríkisstj. hafi athugað þetta mál frá ýmsum hliðum. Og mér væri þökk á, eins og ég áðan sagði, ef hún sæi sér fært að skýra þessari hv. d. frá því, hvort hún ekki telur, að ástæða sé til að taka nú málið upp á þingi Sameinuðu þjóðanna, gera þar glögga grein fyrir okkar afstöðu og okkar aðstöðu, því að ég þykist þess fullviss, að Bretar eigi erfitt með að sannfæra umheiminn um það, að þeim beri að hegða sér á þann veg við smáþjóð og vinaþjóð um aldaraðir sem þeir nú gera. Mér væri þökk á, ef hæstv. ráðh. gæti gefið upplýsingar um áform og hugleiðingar stjórnarinnar í þessu sambandi.