03.02.1953
Neðri deild: 64. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1425 í B-deild Alþingistíðinda. (2101)

214. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég fagna því, að þetta frv. er fram komið. Ég veit, að það er full ástæða til að hjálpa þeim bátaútvegsmönnum, sem standa í vanskilum við stofnlánadeild sjávarútvegsins við Landsbanka Íslands frá árinu 1952 um vaxta- og afborganagreiðslur, og tel, að einna auðveldast sé að leysa þennan vanda í bili með því að lengja lánstímann um eitt ár eins og hér er lagt til, en mér er kunnugt um, að nákvæmlega eins stendur á um nokkra vélbátaeigendur að því er snertir árið 1951. Mér er að minnsta kosti kunnugt um eina 4 slíka vélbáta, sem standa í vanskilum við stofnlánadeildina um lán, þ.e.a.s. vexti og afborganir af lánum, sem féllu í gjalddaga 1. nóv. 1951. Ég mun því leyfa mér, þar sem nákvæmlega eins stendur á um þessa útgerðarmenn, sem nefnda báta eiga, eins og þá, sem frv. fjallar um, og þeirra vandi er óleystur að því er snertir bæði þessi ár, leyfa mér að bera fram brtt., sem yrði í fyrsta lagi á þá leið, að á eftir orðunum „féllu í gjalddaga“ komi: 1. nóv. 1951 og — og í stað orðanna „um eins árs skeið“ komi: til 1. nóv. 1953. — Greinin yrði þá á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Stofnlánadeildin skal, ef nauðsyn krefur og ríkisstj. óskar þess, veita bátaútvegsmönnum gjaldfrest á afborgunum þeim af stofnlánum vélbáta, sem féllu í gjalddaga 1. nóv. 1951 og 1. nóv. 1952, til 1. nóv. 1953, og lengist lánstíminn í samræmi við það.“

Þetta er sú breyting, sem ég vil leyfa mér að flytja, og nær þá frv. ekki aðeins til þess að leysa vanda þeirra vélbátaútvegsmanna, sem standa í vanskilum vegna lána í stofnlánadeildinni frá árinu 1952, heldur einnig að því er snertir árið 1951, en það munu vera tiltölulega mjög fáir útvegsmenn, sem þar eiga hlut að máli, en útvegsmenn, sem eru í öllu meiri vanda staddir, en hinir, af því að þeir hafa orðið að búa við tilfinnanlegan aflabrest um langt skeið, sem hefur valdið því, að þeir hafa lent í vanskilum árinu áður, en þeir útvegsmenn, sem þetta frv. fjallar um.

Ég vil leyfa mér að afhenda hæstv. forseta þessa till.