04.02.1953
Neðri deild: 65. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1428 í B-deild Alþingistíðinda. (2106)
214. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég verð nú að segja það, að mér koma þessar upplýsingar nokkuð einkennilega fyrir sjónir, sem hæstv. atvmrh. var að gefa hér í sambandi við þetta frv. Það er að sönnu mikill vandi, sem þingmenn eru settir í, í sambandi við afgreiðslu þessa máls, ef það er Stofnlánadeild svo, að þeir mega í rauninni samþykkja málið eins og það er lagt fyrir, en ekki gera á því neinar breytingar.
Ég tók nú ekki eftir því hjá honum, að hann segði, að þetta væri svo bundið samkomulag við stjórn stofnlánadeildarinnar, að það kæmi ekki til mála fyrir ríkisstj., ef henni þætti eftir athugun málsins þörf á því, að taka málið upp að nýju við stjórn stofnlánadeildarinnar og leita eftir samkomulagi við hana um að leysa einnig vandamál annarra, sem þetta frv. leysir ekki, en er þó brýn nauðsyn að leysa. Ég fyrir mitt leyti vildi mjög eindregið óska eftir því, að hæstv. ríkisstj. treysti sér til þess að athuga málið á þeim grundvelli við stjórn stofnlánadeildarinnar, sem ég er alveg viss um að gerir sér fyllilega ljóst, að það ástand, sem verulegur hluti togaraflotans á við að glíma í þessum efnum, er þannig, að stjórn stofnlánadeildarinnar fær ekki heldur vikizt undan því að þurfa nokkuð að taka á sig í þeim efnum. Því þykir mér það eiginlega ekki trúlegt, að hún sé ekki til viðtals um að ætla togurunum, sem eru í allverulega miklum vanskilum við stofnlánadeildina, nokkra fyrirgreiðslu í sambandi við afgreiðslu málsins.
Um það atriði svo, hvaða almenn rök liggja að því, að togaraflotinn þurfi á þessari aðstoð að halda til jafns við bátaflotann, skal ég ekki fjölyrða, því að eins og kom fram hjá hæstv. ráðh., þá er honum það fyllilega kunnugt, og það þekkja flestir, að togaraflotinn mun almennt þurfa á því að halda — og ekki sízt nú — að fá nokkra fyrirgreiðslu í þessum efnum. En ég vildi aðeins minna á það atriði, að íslenzku togararnir hafa orðið fyrir því sérstaka áfalli nú, sem allir landsmenn tala um og viðurkenna og þá ekki sízt hæstv. atvmrh., sem manna mest hefur staðið í því máli, að hafa orðið fyrir því að missa einn verulegan þátt af sínum mörkuðum, þann markaðinn, sem hefur verið þeim á margan hátt hentugastur og hjálpað þeim tiltölulega mest í þeirra rekstri. Þessi markaður hefur horfið með öllu, og hvað hefur komið í staðinn? — Eigendur íslenzka togaraflotans hafa skilið það, að þetta var að nokkru leyti afleiðing af því, sem verið var að gera í landhelgismálum okkar. Eigendur togaranna hafa hiklaust staðið með ríkisstj. og Alþ. í öllu því, sem gert hefur verið í sambandi við landhelgismálin. Þeir hafa svo að segja elnir allra í landinu þurft að taka á sig þungann og erfiðleikana, sem af þeim hafa hlotizt. Þeir hafa ekki fengið neinn nýjan markað í staðinn, nema síður sé. Sá markaður, sem þeir verða þá helzt að leita til með sinn afla, er saltfisksmarkaðurinn. Það upplýsa allir, að sá markaður er yfirfullur, og þeir, sem helzt hafa með sölu á saltfiski að gera, benda beinlínis á það, að það sé mjög ógætilegt að ætla að fara að bæta við saltfisksframleiðslu landsmanna frá því, sem var á s.l. ári. Þeir, sem hafa með rekstur frystihúsanna að gera, halda þing eftir þing og fund eftir fund um það að banna með öllu að taka afla togaranna og frysta hann, og margir frystihúsaeigendur hafa þegar sett þetta bann á. Mér er líka kunnugt um það, að Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur gefið út umboðsbréf til sinna meðlima, til frystihúsanna í landinu almennt, að taka ekki togarafisk til frystingar vegna örðugleika með markað.
Þetta er sem sagt það, sem blasir við togararekstrinum í landinu: Ekki hægt að leggja aflann upp til frystingar nema að litlu leyti. Mjög ískyggilegar horfur með að salta aflann. Hafa misst með öllu ísfisksmarkaðinn.
Afleiðing af því, að ísfisksmarkaðurinn hefur tapazt, hefur m.a. komið fram í því, sem togaraeigendur hafa nú verið á fundum um, að það kallar á stóraukið rekstrarfé í togararekstrinum. Á meðan skipin gátu nokkuð reglubundið siglt á erlendan markað með afla sinn, þá gátu þau keypt útgerðarnauðsynjar sínar svo að segja frá túr til túrs og látið sér nægja að hafa tiltölulega lítið fé í rekstri. En nú hefur þetta breytzt þannig, að það er alveg útilokað annað en að togararnir verði að leggja verulegar fjárfúlgur að nýju inn í sinn rekstur vegna þessara breyttu aðstæðna, að þeir þurfa nú að binda sig eingöngu við heimarekstur og sigla ekki lengur á erlendan markað með afla sinn og geta þar keypt útgerðarnauðsynjar sínar svo að segja frá túr til túrs, eins og áður var.
Eftir því sem togaraeigendur hafa nýlega tekið saman, þá er það áætlun þeirra, að þurfa muni a.m.k. 500–600 þús. kr. nýtt fjármagn á hvert skip inn í reksturinn til þess að liggja með óhjákvæmilegustu útgerðarvörur, sem enginn aðili á Íslandi verzlar með og þeir verða sjálfir að liggja með í sínum skemmum, ef þeir ætla að geta haldið rekstri skipanna sæmilega skammlaust úti og vandræðalaust. Þetta fé verða þeir á einn eða annan hátt að drífa inn í sinn rekstur til þess að afla sér þessara útgerðarnauðsynja og hafa þær liggjandi hér í landinu. Þeir verða eðlilega að panta til nokkuð margra mánaða í einu, því að samgöngur og annað eru nú þess eðlis, að það er ekki hægt að fá þetta alveg eftir hendinni. Þessu hafa togaraeigendur m. a. mætt í sambandi við hina breyttu aðstöðu með lokun hins erlenda ísfisksmarkaðar.
Ég efast ekkert um það, að hæstv. atvmrh. og ríkisstj. öll gerir sér það ljóst að nokkru leyti, að erfiðleikar togaraflotans eru miklir og alveg sérstakir, eins og málin standa nú. Þegar svo opinberar skýrslur liggja fyrir um það og sanna það, að rekstur togaraflotans er almennt að verða þannig, að hann er sízt orðinn hagstæðari en afkoma bátaútvegsins, þá er ekki nema von, að þegar verið er að ræða um að veita frest á afborgunum um eitt ár, þá sé lagt a.m.k. nokkuð mikið að sér til þess að koma því fram við þá aðila, sem þarna ráða mestu um.
Nú vil ég líka benda á það, að frestur á afborgun togaranna í þessu efni er alveg sérstæður að því leyti til, að lán þau, sem hvíla á skipunum hjá stofnlánadeildinni, eru orðin lág. Yfirleitt hvílir hjá stofnlánadeildinni á þessum skipum 1.7 millj. og niður í 1.4 millj. kr. á 1. veðrétti bjá stofnlánadeildinni á skipum, sem nú kosta 5–6 millj. alveg óumdeilt. Það er verið að tala um að fresta afborgun í eitt ár, þar sem veð er svona gott, svona hagstætt. Um bátana er óneitanlega öðru máli að gegna. Þörf þeirra er mikil, og við erum allir með því að veita þeim þennan frest, en frá venjulegu lánasjónarmiði gildir allt annað um að veita þeim frest í þessu efni.
Ég skal ekki hafa mín orð fleiri um þetta. En það er hægt að segja auðvitað ótalmargt annað til stuðnings því, að hér sé verið að fara fram á réttmætt málefni, sem farið er fram á í till. þm. Borgf., um að láta þennan frest einnig ganga yfir togarana. Til viðbótar vildi ég aðeins bæta því við, að hér er líka aðeins um heimildarlög að ræða. Það er svo sem ekki verið að skylda hvorki stofnlánadeildina né ríkisstj. til þess að gera þetta, en aðeins um það að ræða að veita ríkisstj. þessa heimild að mega, eftir því sem ástæður þykja vera til, veita togurunum þetta einnig.
Ég skal svo enda mitt mál með því að óska þess alveg sérstaklega við hæstv. atvmrh., að hann vilji beita sér fyrir því við stjórn stofnlánadeildarinnar, að hún leyfi fyrir sitt leyti, að þessi frestur nái einnig yfir togarana til viðbótar við bátana, þar sem svona sérstaklega stendur á. Ég hygg fyrir mitt leyti, að það muni ekki standa á hv. alþm. að vera með þessu. Þeir þekkja orðið það mikið til þessara mála. Og ég vil ekki trúa því fyrr en í harðbakkann slær, að stjórn stofnlánadeildarinnar, sem hefur af þessu allmikinn vanda sjálf, neiti beiðni ríkisstj. í þessu efni, ef hún virkilega leitar eftir því.