04.02.1953
Neðri deild: 65. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (2108)

214. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég heyrði það á ræðu hæstv. atvmrh., að hann telur hæstv. ríkisstj. vera það bundna í þessu máli við stjórn stofnlánadeildarinnar, að ef breyt. yrðu á frv., þá sæi ríkisstj. sér ekki annað fært en að kippa málinu til baka. Þetta teldi ég mjög miður faríð, því að eins og frv. er, þá mundi það þó leysa mikinn vanda þess hluta vélbátaflotaus, sem stendur í óbættum sökum við stofnlánadeildina að því er snertir árið 1952.

Það var að vísu skoðun mín og er enn, að æskilegast hefði verið að leysa um leið vanda þeirra báta, hvort sem þeir eru nú 7 eða 8 eða 8 eða 9, sem einnig standa í vanskilum við þessa sömu lánsstofnun að því er snertir árið 1951. Það var ekki mjög yfirgripsmikið mál fyrir stofnlánadeildina að leysa, og þá var þó málið í heild tekið viðunandi tökum að því er snertir vélbátaflotann, sem hefur lán sín þarna. En nú verður, ef frv. verður samþ. óbreytt, málið að nokkru leyti óleyst. Ég sé í raun og veru ekki nokkurn tilgang með því að leysa vanskil vélbátanna, sem skulda fyrir bæði árin, aðeins fyrir annað árið, og verð því að lita svo á, að hæstv. ríkisstj., ef hún getur ekki leyst málíð í einu að því er bæði árin snertir með samþykkt þessa frv., hljóti að hafa í hyggju að leysa vanskil bátaútvegsmannanna fyrir árið 1951 með einhverjum öðrum hætti. Ég vil því ekki halda fast við þá brtt., sem ég bar hér fram og fór í þá átt, að einnig yrði leystur vandi þeirra, sem skulda stofnlánadeildinni fyrir árið 1951, í trausti þess, að hæstv. ríkisstj. leysi einnig þann vanda, sem að þeim útgerðarmönnum steðjar með allmiklum þunga eins og að hinum, sem skulda aðeins fyrir árið 1952. Þó að málið sé minna umfangs að því er þá snertir, þá vil ég taka till. mína aftur.