24.11.1952
Efri deild: 30. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (212)
38. mál, verndun fiskimiða landgrunnsins
Atvmrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Ég var nú að seilast til að ná í þessa prentuðu ræðu. Ég vil í tilefni af því, sem hv. 4. þm. Reykv. hefur sagt um málið, leyfa mér að endurtaka hér aðeins örfá niðurlagsorð úr þeirri ræðu, sem ég flutti um málið við 1. umr. þess í hv. Nd., en lokaorð ræðunnar voru þessi:
„Ég sé ekki ástæðu til að fara um þetta mál miklu fleiri orðum, enda hefur málstaður Íslendinga verið vel skýrður og sterkum rökum studdur í orðsendingu utanrrh. Íslands til utanrrh. Bretlands. Það er ekki orðmælgi á Alþingi, sem þjóð og þing krefst af ríkisstj. Íslands í þessu máli, en það er málinu sjálfu og öllum aðilum þess fyrir beztu, að ekki sé farið dult með þá staðreynd, að núverandi ríkisstj. mun halda fast á málstað Íslendinga. Ef henta þykir, mun stjórnin ekki hika við að flytja mál sitt með fullri einurð á sérhverjum erlendum vettvangi, þar sem rödd Íslands heyrist. Stjórnin mun hvergi hopa, heldur sækja fram til sigurs með öllum löglegum ráðum. Íslendingar munu og aldrei þola neinni ríkisstj. sinni undanhald í málinu. Rík þjóðarþörf og einhuga þjóðarvilji er slagbrandur fyrir öllum útgöngudyrum til undanhalds í þessu velferðarmáli Íslendinga.“
Þetta er það, sem stjórnin sagði um þetta mál við 1. umr. þess í Nd., og það fylgdi fullur hugur máli. Ég endurtek það, sem ég áður sagði, að það er réttara að rasa ekki um ráð fram, og sérstaklega er full ástæða til þess af ríkisstj. að hafa ekki í frammi fullyrðingar, fyrr en hún hefur grandskoðað málið. En ég vil út af orðum hv. 4. þm. Reykv. enn taka fram, að meðal þeirra úrræða, sem stjórnin er að athuga, er ekki aðeins vettvangur Sameinuðu þjóðanna til áframhaldandi umr. um þetta mál, heldur koma þar til greina aðrar stofnanir og kannske engu síður. Ef það er rétt, sem hv. þm. segir, að hér sé um brot á samningum að ræða gagnvart Íslendingum, þá væri eðlilegur vettvangur, að Íslendingar stefndu Bretum fyrir Haag-dómstólinn fyrir brot á lögum, svo að ég nefni það. Nú, það er einnig til stofnun, sem heitir Efnahagssamvinna vestrænu þjóðanna og hefur aðsetur í París. Þar er líka full ástæða til að ræða þetta mál. Það er einnig til stofnun, sem heitir Evrópuþingið. Þar er líka vettvangur til að ræða þetta mál. Ég hef ekki handbærar fleiri leiðir til að benda á, sem þó vei gætu komið til greina. Ég veit ekki, hvort brezka stjórnin telur sig hafa athugað það nægilega gaumgæfilega til þess, að við enn þá sjáum framan í, hver er hennar lokavilji í málinu. Og það gæti náttúrlega verið rétt að ganga enn betur úr skugga um það, en orðið er. En þegar þær vonir þverra, að þar megi sækja málið til sigurs, þá er um allar þessar leiðir að ræða og ekki sízt, vil ég segja, þær leiðir, sem okkur eru opnar einmitt á vettvangi Evrópusamstarfsins, þeim sem ég nú hef greint frá.
Allt þetta lá að baki þeim orðum, sem ég leyfði mér að hafa hér við 1. umr. þessa máls, og voru það ekki aðeins mínar hugleiðingar, heldur það, sem mér var vel kunnugt um, að öll hæstv. ríkisstj. stóð á bak við. — Vona ég, að hv. þm. telji nú, að ég hafi þá nokkuð greinilega svarað því, sem hann hefur um spurt.