15.12.1952
Neðri deild: 40. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1441 í B-deild Alþingistíðinda. (2133)

40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni

Frsm. meiri hl. (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Ég get látið mér nægja að mestu leyti að vísa til nál., sem fylgir þessu máli. N. gat ekki orðið ásátt um afgreiðslu þess. Hv. þm. Hafnf. og hv. 5. þm. Reykv. voru andvígir frv., en við 3 nm., sem skrifum undir nál., á þskj. 413, mælum með, að frv. verði samþ. með smávægilegri breyt. við 2. gr., sem er að finna á þessu sama þskj.

Það er vitaskuld, að þar sem þessar vörur, sem þetta frv. fjallar um, eru nú ódýrastar og menn eiga hægasta aðstöðu til að afla þeirra erlendis frá og hægast er um vík með afgreiðslu á þeim, þá kemur verðið til með að hækka nokkuð. Tilfinnanlegt álít ég að það verði nú ekki á benzíni og öðrum olíutegundum en brennsluolíu. Þar hækkar það sennilega nokkuð. Eins og sést á því fskj., sem prentað er hér með nál., erindi frá olíufélögunum, þá gera þau grein fyrir verðframfærslunni, sem kann að verða hér, frá sínu sjónarmiði. Þau gizka á, að verð á brennsluolíu muni hækka hér í Rvík eða frá sölustöðvunum hér um sem næst 50 kr. hver smálest, en úti um landið komi það til með að lækka um 52 kr. Vitaskuld er ekki hægt að staðhæfa neitt um þetta, fyrr en reynslan kemur og staðfestir það, hvernig þetta kann að verka. Í útreikningi olíufélaganna gera þau ráð fyrir, að öll olía, sem notuð er utan Rvíkur, verði flutt til hinna ýmsu staða og þess vegna þurfi að reikna með þeim flutningum, alveg eins og ekkert væri tekið hér nema aðeins af þeim skipum, sem gerð eru út héðan frá Rvík, og svo það, sem þær verksmiðjur nota, sem standa hér í námunda við bæinn. Meiri hl. n. getur ekki á þessar röksemdir fallizt. Við erum þeirrar skoðunar, að það hljóti að fara svo, að allmikið verði tekið hér af skipum í Rvík, sem eru gerð út frá öðrum stöðum á landinn, og þess vegna þurfi ekki að reikna með svona miklum kostnaði eins og olíufélögin gizka á. Reyndar segja þau, að vel megi svo fara, að það verði tekið meira af brennsluolíunni úti um landið heldur en aðeins það, sem skip og verksmiðjur úti um landið noti, því að ef skip, sem gerð eru út héðan frá Rvík, eigi þess kost að fá olíuna með sams konar verði og þau geti fengið hana hér, þá muni þau nota sér það. Vel má vera, að eitthvað eigi sér stað í þessu efni, að það aðeins komi fyrir, en líklegt er, að það verði lítið um það, og áreiðanlega miklu minna heldur en það, sem tekið verður hér í Rvík af skipum, sem eru skrásett úti á landi. Þau munu, sakir þess ekki sízt, hvað auðvelt er að fá afgreiðslu hér á þessari vörutegund, notfæra sér það á ferðum sínum hér, þegar þau koma við, og þess vegna verður það vafalaust ekki lítið, sem tekið verður hér í Rvík af brennsluolíu.

Þá er þess getið í erindi olíufélaganna, að ef þessu jöfnunarverði verði komið á, þá muni þau skip, sem nota þessa olíu til brennslu, ekki taka hana hér heima, heldur verði það til þess, að þau taki hana erlendis. Ég get ekki alveg sagt með vissu, hvort það kann að eiga sér aðeins stað, að þessi skip, verzlunarflotinn, taki olíu hér. En eftir því sem mér er tjáð af kunnugum mönnum, mun það vera mjög lítið. Þau taka víst sína olíu mikið til erlendis, svo að hvað það atriði áhrærir mun þetta jöfnunarverð lítið verka á kaup eða sölu þeirrar vörutegundar. — Olíufélögin víkja að því, hversu miklu erfiðara þeim skipum verður að taka þessa olíu hér, eftir að jöfnunarverði hefur verið komið á, heldur en annars. Og hvort sem það verður nú mikið eða lítið, má gera ráð fyrir, að nokkur verðframfærsla þurfi að eiga sér stað, og þá er vitaskuld rétt, að það kostar eitthvað meira.

En hvað á þá að segja um þau skip og þau fyrirtæki, sem gerð eru út frá öðrum stöðum á landinu? Hvað á þá að segja um aðstöðu þeirra? Olíufélögin segja, að þau selji þessa brennsluolíu 100 kr. dýrari hverja smálest úti á land. Okkur sýnist þetta svo mikill verðmunur og íþyngja svo mjög útgerðinni úti um landsbyggðina, að það sé tæpast nokkur von til þess, að skipin eða útgerðin fái undir slíku risið. Og einkennilegt er það, þar sem þetta heyrir til þeim þætti í atvinnulífi þjóðarinnar, sem hefur ósegjanlega mikla þýðingu, ef á það er litið þannig, að það geri minna til, hvernig slíkri starfsemi farnast úti um landið. Aðalatriðið eftir þessari röksemdafærslu ætti þá að vera það, að útgerðinni sé fyrst og fremst borgið hér í Rvík. Ekki neita ég því, að það er þýðingarmikið og sjálfsagt að búa að henni sem bezt. En að litlu varði, hvernig fer um starfsemina úti um byggðir landsins, sams konar starfsemi sem þessa, það held ég að fáir verði til þess að fallast á, að mönnum eigi að liggja það í léttu rúmi. Og betri er þó hálfur skaði en allur. Þó að smálestin hækki — skulum við segja — um 20–30 kr., — jafnvel þó að það yrði meira, eins og olíufélögin gizka á, — þá má það undarlegt vera, ef það ætti að ríða útgerðinni í Rvík að fullu, en útgerðin úti um landið ætti að þola 100 kr. greiðsluna umfram það, sem hér gerist.

Ég held, að þessar röksemdir séu nokkuð veikar. Frá einu sjónarmiði geta þær staðizt, það skal ég reyndar játa, en aðeins frá einu sjónarmiði. Það kann að vera í augum sumra manna kjarni málsins, að það skipti ekki máli, hvernig um þetta starf fer úti um landið, það sé nóg, ef það getur gengið hér, og þurfi menn ekki þess vegna að hafa neinar áhyggjur af slíku. Þá er maður kominn að því atriðinu, sem hlýtur að ráða huga þeirra manna, sem velja sér þessa afstöðu, að það saki þá ekki þó að menn flytjist hingað og öll þessi starfsemi til Rvíkur, það sé bezt fyrir hag þjóðarinnar, að a. m. k. þessi starfsemi færist öll hingað í Rvík og þá kannske aðeins í næsta nágrenni.

Þó að þessi ákvæði yrðu nú lögfest á þann hátt, sem hér er lagt til, þá vil ég nú vona, að maður þurfi ekki að taka þessar röksemdir olíufélaganna það hátíðlega, að ekki megi gera þessa tilraun og sjá, hvernig tekst til, hvernig þetta verkar. Ef önnur leið þætti síðar meir heppilegri eða ef unnt yrði að koma þessum málum fyrir á annan hátt, þannig að séð væri fyrir hagsmunum þessara aðila beggja, þá mundi verða gripið til slíkra ráða, ef menn kæmu auga á þau, og væri þá ekki nema gott um það að segja. En eftir þeim upplýsingum, sem fyrir liggja um málið, og hvað þungur róður þetta er hjá útgerðinni úti um landið, m. a. af því, hvað brennsluolían er dýr, þá held ég, að það sé ekki vert að gera ekki eitthvað til að draga úr útgerðarkostnaðinum úti um landið. Ég ætla, að hv. dm. yfirleitt séu þeirrar skoðunar, að það sé svo mikilvægt atriði að hlynna að og greiða fyrir því, að bæði þessi starfsemi og önnur geti farið fram víðs vegar úti um landið, að einskis megi láta ófreistað að koma til móts við óskir fyrst og fremst útvegsmanna úti um byggðir landsins hvað þetta áhrærir.

Mig eiginlega undrar það — það segi ég nú persónulega frá mér — í þessu áliti frá olíufélögunum, að mér sýnist þau miða sína afstöðu til þessa máls nær einhliða við það, sem hentar bezt fyrir Reykjavík og þá kannske næsta nágrenni. Ég ætla, ekki sízt út frá því, að það hafi verið framin ekki lítil yfirsjón á sínum tíma, þegar ríkið, sem hafði þessa verzlun eitt með höndum eitt sinn, slepptí henni út til þessara góðgerðafélaga, sem með olíu og með eldsneyti verzla. Það er áreiðanlegt, að út af þeirri framkvæmd, hvernig hún hefur verið um langa stund og kemur vafalaust til með að vera rekin áfram, þá borgar þjóðin margan pening fyrir einn umfram það, sem þurft hefði að vera, ef ríkið hefði haft sjálft þessa vörutegund undir höndum og þótt það hefði haft fullkominn jöfnuð um hönd.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að svo komnu að fjölyrða um þetta.