19.01.1953
Neðri deild: 52. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1472 í B-deild Alþingistíðinda. (2150)
40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Ég vildi gjarnan leiðrétta eitt atriði að minnsta kosti í ræðu hv. 2. þm. Reykv. Ég teldi að vísu fulla ástæðu til að leiðrétta mörg atriði í ræðu hans, en það mætti æra óstöðugan, ef út í það væri allt farið.
Hann talaði um það mjög fjálglega, að nauðsyn væri á því, að hér væri frjáls innflutningur á olíu, og taldi það standa olíuverzluninni í landinn fyrir þrifum, að innflutningur væri ekki frjáls á þessari vöru.
Ég vil benda hv. þm. á, að hér er um talsverðan misskilning að ræða af hans hálfu, vegna þess að innflutningur á þessari vöru er frjáls. Geta bæði hann og hverjir aðrir sem vilja á venjulegan hátt, einstaklingar eða félög, gert það. Hygg ég, að ekki verði nein fyrirstaða á því, að þeir fái innflutningsleyfi fyrir slíkum olíum.
Hann vildi halda því fram, að verð á benzíni og olíum hér á landi væri allt of hátt, að mér skildist, af því að ekki væri haft nógu gott eftirlit með því, að félögin högnuðust ekki allt of mikið á þessari verzlun sinni. Því til sönnunar gat hann þess, að hér hefði verið eitt félag í Rvík fyrir nokkru, sem selt hefði benzín miklu lægra verði, en félögin annars gerðu, m. ö. o., þetta félag hefði getað keppt við hin stóru milljónafélög. Þetta átti að sýna, eftir því sem hann meinti, að það væri enginn vandi fyrir félögin að selja t. d. benzín á miklu lægra verði, en þau hefðu gert. En hv. þm. gat ekki um það, að þetta félag, sem hann ræðir um, seldi sína vöru í skjóli félaganna. Á þann hátt gat það selt sitt benzín á sama verði og félögin seldu hér í Reykjavík, en á benzín félaganna var búið að leggja talsvert hátt verðjöfnunargjald vegna benzínsölu úti á landi. Það er auðvelt, þegar svo hagar til, að selja vöru á lágu verði, ef þeir, sem maður verður að keppa við, verða að setja hærra verð á sína vöru í Reykjavík til þess að geta selt hana á lægra verði annars staðar á landinu. Þetta er því lítil sönnun fyrir því, að hægt sé fyrir hvern sem er að selja með lægra verði, að verð á þessum vörum sé óhæfilega hátt eða að minnsta kosti miklu hærra, en það þyrfti að vera.
Ég skal ekki fara inn á það, hvað mikið þessir auðhringar leggja á olíuna og þá aðallega, sem hv. þm. gat um, hvað auðhringarnir, sem selja olíuna frá uppsprettunum, græða á því. En hitt getur engum dulizt, að fyrir notendur í landinu hlýtur það að vera hagkvæmara að flytja olíuna inn á 10–15 þús. tonna tankskipum, en að flytja hana inn í tunnum, eins og gert var hér fyrir hálfum öðrum tug ára. Ég mundi segja, að ég ann þá þeim aðilum vel að hagnast á þessum viðskiptum, ef þeir með því að framkvæma þau á þennan hátt geta selt landsmönnum olíuna miklu ódýrari, en þeir hefðu getað fengið hana ella. Og þess er ekki að dyljast, að olíuverð hér hefur farið lækkandi af þeim ástæðum, að olíuverzluninni hefur verið komið í það horf, að það hefur verið hægt að dreifa henni með miklu minni kostnaði en var áður, þegar var verið að kaupa hráolíu og benzín í tunnum frá Kaupmannahöfn.
Það er mikið talað um gróða olíufélaganna, og maður skyldi nú ætla, að félög, sem veltu jafnmiklu fé árlega eins og þessi félög, mundu græða talsvert mikið fé. En eftir því, sem mér er skýrt frá, þá eru það a. m. k. tvö af þessum félögum, sem ekki hafa greitt arð til hluthafa í mörg ár. Þetta bendir nú ekki á það, að þessi félög, sem hér starfa, hafi neinn óhemjulegan gróða af viðskiptunum við landsmenn. Hitt er svo annað mál og er vitanlegt, að þau af þessum félögum, sem hafa viðskipti við útlendinga hér á landi, hafa haft talsverðan hagnað af þeim viðskiptum. Ég sé nú ekki, að ástæða sé til út af fyrir sig að harma það, ef viðskiptin við landsmenn eru í góðu horfi og olían og benzínið er selt þeim með hæfilegu og sanngjörnu verði.
Þetta bendir til þess, að mínu áliti, að olíuverzlunin hér hafi ekki verið eins gróðavænleg eins og margir ætla og margir hafa haldið fram. Hins vegar skal ég viðurkenna, eftir því sem mér er kunnugt um verðlagningu á þessum vörum, að það hefur verið alltaf nokkuð erfitt viðfangsefni að finna leið til þess að hafa eftirlit með álagningunni eða finna form fyrir henni. Það var fyrir mörgum árum, sem það form var tekið upp og er að mestu leyti haldið enn þá, að fundinn var nettó-dreifingarkostnaður félaganna á hvert tonn af olíu og benzíni, og við þennan nettódreifingarkostnað var svo bætt 5% verzlunarhagnaði. Þetta var náttúrlega ekki nákvæmur mælikvarði, en það er líka ákaflega erfitt að finna nákvæman mælikvarða fyrir álagningu á þessar vörur, jafnflókið og dreifingarkerfið á þeim er og margvíslegir kostnaðarliðirnir, sem koma inn í slíka útreikninga.
Ég verð að segja það, að ég er á dálítið öðru máli, en hv. flm. um þessar till. hans, sem hér liggja fyrir. Hann sagði, að þetta væru raunhæfar tillögur. Ég vil halda því fram aftur á móti, að þetta séu ákaflega óraunhæfar till. Hann talaði mikið um það og braut um það hugann, hvort félögin mundu nú geta staðið undir þessari byrði, sem hann vill á þau leggja með þessum till. En þær ganga í þá átt að setja á verðjöfnun, eins og hér hefur verið um rætt, án þess að félögin fái greiddan flutningskostnað og annan kostnað,sem því fylgir úti um land. Og hv. þm. vill láta félögin greiða þennan kostnað, án þess að hann komi inn í verðjöfnunina, en færir ekki fram nein rök fyrir því, að félögin geti staðið undir þessum kostnaði. Þess vegna segi ég: Þessar till. eru gersamlega óraunhæfar. En þó tekur út yfir 4. till. hv. þm., þar sem hann leggur til, að ef einhver flytur inn olíu eða benzín til neytenda, þótt ekki væri nema nokkrar tunnur, og seldi undir gildandi jöfnunarverði eða jafnvel undir sanngjörnu verði, þá á það að ákvarða verðlag um allt land. Mér finnst nú til of mikils mælzt af hv. þm. að ætlazt til, að Alþingi fallist á slíka lagasetningu.