19.01.1953
Neðri deild: 52. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1476 í B-deild Alþingistíðinda. (2152)
40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni
Frsm. meiri hl. (Jörundur Brynjólfsson):
Herra forseti. Ég mun að þessu sinni reyna að draga saman mál mitt, eftir því sem ég frekast get. Ég tel, að það muni ekki græðast býsna mikið á löngum ræðum um málið. Viðhorf manna til þess ætti að geta legið ljóst fyrir eftir efni þess og því vafalaust tilgangslítið að þreyta mjög langar umræður.
Ég leit svo á, að flutningur þessa máls hér inn í þingið stafaði af því, að menn úti um landið fyndu sárt til þess, hvað verðlag á þessum vörum er orðið óhagstætt og hvað erfitt er fyrir atvinnureksturinn, sem þessar vörur notar, að rísa undir gjöldunum, sem m. a. af þessu háa verðlagi leiðir, og það væri brýn ástæða til þess að ráða á þessu nú þegar á þessu þingi einhverja bót. Fyrir þær sakir hef ég skoðað það svo þýðingarmikið, að ekki mætti gera neitt um meðferð málsins og afgreiðslu þess, sem gæti orðið því til hindrunar, að það næði fram að ganga. Og þær till., sem fram eru bornar í málinu, verða að vera á þeim grundvelli byggðar, að þær hindri ekki aðalatriðið, sem er að fá nokkra ívilnun á vöruverði á þessum nauðsynjum úti um landsbyggðina. Hvað afstöðu mína áhrærir persónulega sem fulltrúa míns héraðs, þá má vel vera, að það skipti ekki svo ósköp miklu máli. Nokkur ívilnun hygg ég að það kunni nú að verða þeim til handa, en vafalaust ekki stórvægileg, og hjá öðrum lengra úti um landið nemur þetta auðvitað miklu meira. En þó að þannig sé ástatt með mitt hérað, þá lít ég alls ekki þannig á málið, að það eigi að ráða afstöðu minni til þess, heldur sú mikla þörf, sem er hjá fólki víðs vegar úti um landið á að fá leiðréttingu á verðlagi á þessum nauðsynjum. Það er rétt, sem fram hefur komið, að þetta er sú vörutegund, sem grípur stórkostlega inn í atvinnulíf landsmanna og hefur meiri áhrif um afkomu manna úti um landið heldur en flestar aðrar vörur, sem við verðum að flytja inn til landsins, þar sem þetta grípur mjög inn í atvinnulíf manna til sjávar og allmikið til sveita líka. Þess vegna hef ég valið mér þá afstöðu að greiða fyrir því eftir ýtrustu getu, að málið næði fram að ganga í þeim búningi, eftir því sem ætla má, að það geti komið helzt að gagni.
Mér þykir vænt um, að hv. þm. Siglf. hefur tekið aftur fyrri till. sína á þskj. 464. Viðvíkjandi þeirri skriflegu breyt., sem hann hefur borið fram við seinni liðinn, þá er hún afleiðing af því, að hann tók fyrri liðinn aftur, og er sjálfsögð, ef á að samþ. bráðabirgðaákvæðin, sem hann ber fram. En mjög hefði ég kosið, að hv. þm. Siglf. hefði tekið seinni till. líka aftur. Það er, eins og hv. þm. sjá, gert ráð fyrir í þessari brtt., að útsöluverð á olíu hækki ekki vegna flutningsins út um landið. Ég óttast það, ef þessi till. yrði samþ., að þetta gæti orðið til hindrunar því, að málið næði tilgangi sínum, þótt það að öðru leyti gengi gegnum þingið. Ég hef ekki þann kunnugleika og treysti mér ekki til að staðhæfa það, að gróði olíufélaganna sé það mikill, að þau geti vel bætt þessum kostnaði á sig; það getur vel verið, ég segi ekkert um það, hvorki til né frá. En það er annarra að hafa eftirlit með því, og ég vil mega vænta þess, að það megi treysta því, að verðlagseftirlitið sé svo trútt í sínu starfi, að það hafi fulla aðgæzlu á, að verðlag á olíum og benzíni sé ekki hærra, en nauðsyn ber til, og að í gegnum það eftirlit og ákvarðanir þess megi treysta því, að þessar vörur verði ekki seldar dýrari, en nauðsyn ber til. Ég veit ekkert um, ef svona ákvæði yrðu samþ., nema það gæti leitt til þess, að olíufélögin spöruðu við sig flutninginn á þessum nauðsynjum út um landið eftir ýtrustu getu, sem gæti þá leitt til þess, að þessar nauðsynjar vantaði og það yrði hörgull á þeim, og orðið til stóróþæginda og tjóns. Og það álit ég illa farið. Ég vona, að það sé öllum ljóst og þá verðlagseftirlitinu, ekki síður en öðrum, að þetta er svo stórvægilegt mál og þýðingarmikið, að verði á þessum nauðsynjum sé stillt í hóf, að annað henti ekki heldur en þær séu seldar eins ódýrt og frekast er hægt. Ef ekki má treysta verðlagseftirlitinu um svo þýðingarmikið atriði, ef verðlagseftirlitinu er ofvaxið ekki margbrotnara, en eftirlít er með þessum vörutegundum, — ja, til hvers höfum við þá verðlagseftirlitið? Til hvers erum við að burðast með það? Ef í stórþýðingarmiklu máli hvað þetta áhrærir er ekki hægt að treysta því, þá má nærri geta, hvers virði það er um þau efni, sem minna mega sín í þjóðarbúskapnum og afkomu fólksins. Ég get því ekki fallizt á þessa brtt. hv. þm. Siglf. ,og mun greiða atkv. á móti henni af þessum ástæðum, sem ég hef nú dregið fram.
Hv. 2. þm. Reykv. hefur borið hér fram nokkrar till. Brtt. hans við 1. gr. get ég nú ekki séð eiginlega að breyti neinu. Það er ekki um neina efnisbreytingu að ræða frá frvgr. Hann tiltekur í þessari brtt., að útsöluverð á þessum olíum og benzíni skuli vera úti um land hið sama og útsöluverð í Reykjavík. En í 1. gr. frv. er sagt, að útsöluverð á þessum vörutegundum skuli vera hið sama á öllum sölustöðvum á landinu. Reykjavík telst nú enn til landsins, að ég ætla, og ég get þess vegna ekki séð, að þetta skipti neinu máli, hvorki til né frá. Það er ekki þess virði að gera þetta mikið að umtalsefni, en mér bara finnst, að þetta sé tilgangslaus brtt.
Önnur brtt. lýtur að sumu leyti að því sama. En það á að ákveða þar, að útsöluverð á þessum vörutegundum skuli ekki vera hærra, en það er í Reykjavík við samþykkt þessara laga. Þegar verðákvörðun kemur nú fyrst til framkvæmda, þá á það ekki að hækka frá því, sem það er í Reykjavík við samþykkt þessara laga. Það er með öðrum orðum sams konar atriði og felst í bráðabirgðaákvæði hv. þm. Siglf., og get ég þess vegna ekki heldur fallizt á það, af sömu ástæðum og ég hef áður tekið fram.
Þá sýnist mér nú, að það sé varla hægt að búast við, að slík ákvörðun sem um er að ræða í 3. brtt. hv. 2. þm. Reykv. hafi mikið að segja að óundirbúnu máli. Ég vil meina það, að ef nýr innflytjandi ætti að koma og hann ætti að geta orðið ráðandi hér um verð á þessum vörutegundum, þá þyrfti allmikinn undirbúning og sá aðili yrði að vera sterkur til þess að standast þá samkeppni, sem gera mætti ráð fyrir að kæmi af hálfu olíufélaganna, sem fyrir eru.
Um 4. brtt. hv. þm. er það að segja, að ef nú olíufélögin létu vera að flytja þessar nauðsynjar mikið til út um landið, ef það kæmi nú nýr aðili, sem annaðist þá flutninga, þá skilst mér sem honum gæti orðið erfitt að fullnægja þörfum fólksins þar. En léti hann vera að sinna því, en hugsaði aðeins um sölu hér í Reykjavík, þá gæti það einnig dregið dilk á eftir sér gagnvart fólkinu úti um byggðir landsins með vöruskorti og stórfelldu tjóni. Þannig ætla ég að, að svona alveg óundirbúnu máli eins og þetta er vissulega, eða ég a. m. k. þekki ekki til þess, að það séu nein samtök nú í uppsiglingu um nýjan aðila til þess að flytja inn þessar vörutegundir, þá sé ekki ráðlegt að skella á svona ákvæðum; það mundi ekki verða neitt þeim til liðsinnis, sem nú eiga erfiðasta aðstöðu.
Þá eru brtt. við 5. gr. Það á að fella flugvélabenzínið alveg niður. Það ræðir aðeins eftir brtt. um það, hvernig skuli fara með brot gegn lögunum. Það mundi nú fara um slíkt eftir ákvæðum gildandi laga um þetta efni, en hvað flugvélabenzínið áhrærir, þá vafalaust annast þessi tvö félög, sem annast um flugferðir hér, um þá vöru, og ég hef ekki þann kunnugleika, að ég treysti mér til að segja um það, hvort það er heppilegt að láta þessi ákvæði ná til flugvélabenzíns, og treysti mér ekki til þess að flytja svona ákvæði, því að ég geri ráð fyrir, að það hafi verið af kunnugleika sett að undanskilja það þessum ákvæðum í frv. — Ég ætla svo ekki að fjölyrða frekar um þessa till.
Ég ætla nú ekki að tala langt mál um nál. hv. minni hl. Hann leggur til, að málið sé afgreitt með rökstuddri dagskrá. Hv. minni hl. var heppinn að draga að skila nál. og niðurstöðu nógu lengi til þess að fá grundvöll fyrir afstöðu sinni til afgreiðslu málsins. Aðalgrundvöllurinn, að manni virðist, fyrir afstöðu minni hl. er þeir samningar, sem gerðir voru um kjarabætur út af vinnudeilunni, og jafnframt það, að ef fallizt yrði á frv., þá mundi það hafa veruleg áhrif hér við Faxaflóa á tilkostnað bátaútvegsins og við útgerð togaranna. Það jafnvel raskaði grundvelli þess samkomulags, sem var gert, og enn fremur gripi þetta inn í þá samninga, sem verið er nú að gera milli útvegsmanna og hraðfrystihúsanna. Það verð, skilst mér, sem hraðfrystihúsin kynnu að vilja gefa fyrir fiskinn, væri ekki hærra en það, að það þyldi ekki þann aukakostnað, sem af því leiddi, ef verðjöfnun yrði á olíum úti um landið, og það, sem þessar olíutegundir og benzín yrðu dýrari hér fyrir þessa verðjöfnun, þyldi útvegurinn ekki hér við Faxaflóa.
Það liggur nú fyrir í erindi olíufélaganna, hvað miklu meira hver smálest af öllu kostar úti um landið heldur en hér. Hv. þm. Siglf. hefur reyndar sagt, sem ég efast ekki um að er rétt, það þekkir hann, — að verðmunurinn sé enn meiri. Olíufélögin telja, að olían sé seld útí um landið 100 krónum dýrari hver smálest heldur en hér í Reykjavík, en hv. þm. Siglf. segir, að þetta muni allt upp í 145 kr. á smálest. Ja, hvað á þá að segja um afkomu þessara atvinnuvega úti um land, fyrst það stendur svona á tæpu með afkomu þessa sama atvinnuvegar hér, ef við höldum okkur við sjávarútveginn? Nú nær það vitaskuld ekki nokkurri átt að telja, að þessi flutningskostnaður nái til mjög mikils hluta af þessum vörum, og úr því gera olíufélögin miklu meira, en ég tel að sé rétt. Vitaskuld get hvorki ég né þau staðhæft um það fyrir fram, hvernig þetta kann að reynast, — því verður reynslan að skera út, — en eftir skipafjöldanum hér og olíumagninu, sem notað hefur verið undanfarið hér og úti um landið, þá gera olíufélögin, að því er mér sýnist, miklu meira úr kostnaðinum við flutningana, heldur en rétt er. En hvað sem um það er, þá sjá allir, hvað fráleitt það er, ef útgerðin úti um land á að hafa þennan kostnað svona miklu meiri eins og hér liggur nú fyrir heldur en sjávarútvegurinn hér í Reykjavík og í grennd við Reykjavík hefur, og ef stendur á svona tæpu um afkomu útvegsins hér við Faxaflóa, hvernig mun það þá vera úti um land? Og ef verðlagið á fiskinum á að miðast við þessa sérstöku aðstöðu, sem er hér til sjávarútvegsins, þá sýnist mér, að það liggi í augum uppi, ef allt þetta er rétt, að sjávarútvegurinn úti um landið, sem nota þarf þessar vörur að nokkru ráði, eins og meiri hluti hans þarf vitaskuld, sé dauðadæmdur, eigi sér enga afkomuvon. Það var þess vegna hárrétt hjá hv. þm. Siglf., sem hann drap á hér áðan, að ef ekkert verður gert, eftir því sem hér liggur nú fyrir um þetta mál, þá er langsennilegast, að útvegurinn úti um landið leggist niður og menn flytjist hingað. — Það nátturlega þarf ekki að vera að tala um flutninga út um landið, ef allir eru komnir hingað. Þá sparast það. En hvort það kynni nú ekki eitthvað að þrengjast hér í búi, þegar svo er komið, það er annað mál. En kannske hugsa menn ekki þá hugsun til enda. Ég held þess vegna, einmitt út af því, sem fram hefur komið og fyrir liggur í þessu máli, að þá sé það nú orðið ljóst, að það er enn brýnni ástæða til þess, að þetta nái fram að ganga, heldur en nokkru sinni fyrr. Ég efast ekki um, að hv. flm. þessa frv., sem hafa mikinn kunnugleika, hefur verið þetta ljóst, þegar þeir fluttu málið. En þeir hafa fengið, þó að á óbeinan hátt sé, ákaflega góða liðsmenn sínu máli til stuðnings, og það er ekki ég eða þeir, sem mæla nú með málinu. Það eru þeir, sem hafa valið sér það hlutskipti að snúast á móti því. Þeir hafa komið með sterkustu rökin málinu til stuðnings, að það nái hér fram að ganga, og það er vel. Ég fyrir mitt leyti hef haft sannfæringu fyrir því, að þetta væri nauðsynlegt mál og rétt mál, og þess vegna hef ég líka reynt að ljá því það litla lið, sem ég get.
Mig hálfundrar, að hv. minni hl. skuli bera svona orðaða dagskrá fram eins og hann gerir. Ef hann ómögulega treystir sér nú til vegna hagsmunanna hér við Faxaflóa að vera með, þá held ég nærri því, að það hefði verið hægt að hjálpa honum til þess að koma með einhverja skaplegri ályktun, en þarna er borin fram. Hitt skil ég svo mætavel hjá hv. 5. þm. Reykv., frsm. minni hl., að það er nokkur vorkunn, þó að honum sé illa við og hann sé andvígur því, að þessi verðjöfnun komist á, og það grípur vissulega inn í það fyrirtæki, sem vikið er að hér í þessu nál. og hann minntist á, og það er rafmagnsstöðin hér við Elliðaárnar, sem notar hráolíu ákaflega mikið, — það er ekki nema mannlegt. En betra hefði þó verið að reyna að fá einhverja ívilnun um það efni, heldur en að snúast alveg gegn málinu.
Þá er eitt atriði, sem fram kemur hér. Það er fskj., sem hv. minni hl. hefur látið prenta, bréf frá L. Í. Ú. Í upphafi bréfsins er kvartað yfir því, að allshn. skyldi ekki senda þeim frv. til álits og umsagnar, og ég get nú játað það, að það var kannske yfirsjón, að maður gerði það ekki. Upphaflega, þegar við tókum málið fyrir í n., þá leizt okkur sem það væri ekki svo mikil ástæða til þess að senda málið í burtu, — aðallega voru það olíufélögin, sem þá var minnzt á, — og það stafaði af því, að það var ýtarleg álitsgerð, sem lá fyrir og n. hafði í fórum sínum frá olíufélögunum, sem fram hafði komið áður, þegar þetta mál var til meðferðar hér á Alþ. En svo kom ósk frá olíufélögunum um að fá málið til umsagnar, og taldi n. sjálfsagt að verða við henni og gerði það. Það varð reyndar nokkuð til þess að tefja fyrir afgreiðslu málsins, en eigi að síður var það sjálfsagt og lítið um að segja, en þá hefði náttúrlega gjarnan mátt senda það sambandi útvegsmannanna. Það skal ég játa að var yfirsjón, að gera það ekki, því að vissulega kemur það sjávarútveginum við ekki lítið, eins og fram hefur komið. Þess vegna hefði það vel mátt vera. Það bar alls ekki á góma í nefndinni. Mér þykir þetta miður, að manni skyldi ekki detta það í hug. Ekki svo að skilja, að ég telji, að það græðist svo býsna mikið á þessu áliti. Það, sem fram kemur hjá þeim um það, að það valdi erfiðleikum hjá mönnum hér við Faxaflóa, gat maður gert sér nokkuð í hugarlund. Mér sýnist reyndar þeir gera fullmikið úr því, en það er sama. Það er vafalaust rétt, að komist þetta á, þá veldur það nokkurri hækkun hjá þeim, en vitaskuld miklu minni heldur en sá tilkostnaður er hjá hverjum einstökum úti um landið, ef engin verðjöfnun er á þessu og ekki er tekið tillit til flutningskostnaðarins. Það er náttúrlega ekki sambærilegt. Þeir víkja að því sama sem fram kemur í áliti minni hl., að þetta gripi inn í samninga milli frystihúsa og útvegsmanna hér við Faxaflóa, og það er að sjá svo þar, að verðlagið á fiskinum verði svo lágt, að slíkan gjaldaauka sem af þessu stafar þoli útvegurinn hér ekki. Og það virðist svo sem þeir séu reiðubúnir af sinni hálfu að staðfesta þá samninga eða fallast á þá, ef von er til þess, að útvegurinn við Faxaflóa geti aðeins bjargazt áfram. Þá liggur auðvitað alveg beint við að álykta eftir þessu, að það verði að ráðast, hvernig fer um útveg annars staðar. Ekki getur maður lagt mikið upp úr umtalinu um það, að þetta ætti að taka einhvern veginn öðruvísi, úr því að engin till. er um það, og þá hæpið, hvað úr því yrði.
Það er t. d. sagt, að ef flutningskostnaðinum verði jafnað svona niður, þá fórni skipin hér við Faxaflóa óeðlilega miklu, en útgerðinni úti um landið komi það að tiltölulega litlum notum. Þetta er nú eiginlega skrýtið, því að meginþorrinn af þessum vörum verður náttúrlega notaður hér, sakir þess hvað útgerðin er hér stórkostleg. Og það, sem flutt er út um landið, þó að það sé nokkuð, er vitaskuld ekki nema dálítill hluti á við það, sem er notað hér, eins og fram kemur hér í erindi olíufélaganna til n. Þau segja, að árið 1951 hafi verið flutt inn 71 þús. tonn af skipaolíu, en liðug 13 þús. hafi verið flutt út um land. Svo þegar þau aftur fara að gera athugun á því, hvað það muni verða flutt mikið út um landið, þegar búið sé að jafna flutningskostnaðinn, þá verður það vitaskuld miklu meira. Þá komast þau að þeirri niðurstöðu, að það kunni að verða um 26 þús. tonn utan Faxaflóa, bæði til togara og verksmiðja.
Yfir höfuð má segja það í stuttu máli, að erindi útvegsmannanna sýni ljóslega, að þeir miða algerlega afstöðu sína við afkomuna hér við Reykjavík og Faxaflóa og láta sig engu varða, eftir því sem fram kemur þarna hjá þeim, um afkomumöguleika hjá útgerðinni annars staðar. Þótt ekki væri til annars, en að fá staðfestingu á þessu, þá má segja, að þetta bréf hafi átt erindi inn í þingið og það sé nokkurs virði fyrir þá, sem þetta mál fyrst og fremst snertir, þ. e. útvegsmennina úti um landið, að fá það nú svart á hvítu, að viðhorf stjórnar þessara samtaka, sem kenna sig þó við landið allt, til þessa máls, sem henni er trúað fyrir og hún á að vinna að, miðist eingöngu við Faxaflóa. Þeir skrifa hér undir „Stjórn L. Í. Ú.“ Það hefði farið bezt á því, að þeir hefðu skrifað undir sem stjórn íslenzkra útvegsmanna við Faxaflóa, því að þá var það í samræmi við efni þessa erindis, sem þeir hafa sent frá sér.
Ég hét því í fyrstu, að ég ætlaði ekki að tala mjög langt mál. Það getur vel verið, að ég hafi að einhverju leyti brotið það, en mér fannst ég ekki geta alveg látið undir höfuð leggjast að víkja eitthvað ofur lítið almennt að þessu, eins og það liggur fyrir. Mín afstaða til málsins er sú, að ég ætla, að það sé hyggilegast að fella brtt., sem fram eru bornar, og samþykkja frv. nú óbreytt eins og það liggur fyrir. Ég vil mega vænta þess, að hv. d. hafi víðara sjónarmið en kemur fram hjá þeim, sem mæla sérstaklega á móti þessu máli. Ég ætla, að það sé líka af fullri þörf, að á þskj. 538 — það er 204. mál — flytja nokkrir hv. þm. þáltill. í Sþ. um athugun og undirbúning heildaráætlunar í þeim tilgangi að skapa og viðhalda jafnvægi í byggð landsins. Ég held, að slíkt verk sem þarna er minnzt á eigi mikinn rétt á sér og það sé nauðsynlegt. En einstaklega er þá hjákátlegt að sjá, að þegar um jafnstórvægilegt mál er að ræða eins og hér liggur fyrir, þá skuli viðhorf sumra hv. þdm. vera þannig, að manni sýnist sem það eigi aðeins að sjá afkomunni á litlum bletti á landinu borgið, en lítil athugun fari fram á því um aðrar byggðir landsins og hvað af því gæti leitt fyrir þjóðina í nútíð og framtíð, ef slík sjónarmið verða látin vera ráðandi hér á Alþ. Ég ætla, að ekkert sé þjóðinni jafnnauðsynlegt og brýnt eins og einmitt að hafa það í huga að viðhalda sem beztri byggð víðs vegar úti um landið. Þar verður ekki síður öryggi þjóðarinnar í framtíðinni, heldur en á nokkrum stöðum við sjóinn, þótt þeir kunni að vera mannmargir. Sízt ættum við Íslendingar að vera svo óminnugir á okkar sögu, að við gerðum okkur ekki grein fyrir, hvaða þýðingu þetta kann að hafa.