19.01.1953
Neðri deild: 52. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1484 í B-deild Alþingistíðinda. (2156)
40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Þetta mál hefur nú þegar verið rætt hér allýtarlega, og tel ég því ástæðu til þess, að umræður geti farið að styttast. Ég er einn af þeim, sem hafa mikinn áhuga á því, að málið nái fram að ganga, og mun því heldur stytta mál mitt, þótt í rauninni sé fullt tilefni til þess að ræða þetta mál í löngu máli, því að það er þess eðlis. En það eru nokkur ný atriði, sem mér þykir rétt að komi hér fram nokkru skýrara, en áður hefur verið í þessum umr. og hníga að því að styðja að framgangi frv.
Það hefur réttilega komið hér fram í umr., að ein veigamestu rökin fyrir því að samþ. þetta frv. eða koma á jöfnunarverði á olíu og benzíni um allt land eru einmitt þau, að útgerðin úti á landi fær ekki risið undir þeim mikla verðmismun, sem hún verður að búa við á olíum, eins og verðlagningunni er háttað nú í dag. Það hefur m. a. verið minnzt á það, að sú olía, sem togararnir nota, fellur ekki á neinn hátt nú undir verðjöfnun. Önnur olía, sú sem bátaflotinn notar, er að talsverðu leyti nú þegar í verðjöfnun, en olían, sem togararnir nota, er ekki á neinn hátt tekin inn í verðjöfnun, og þar er því verðmismunurinn langmestur. Verðmismunurinn á togaraolíunni almennt úti á landi og í Reykjavík er ekki, eins og olíufélögin hafa látið hér uppi eða má skilja hér af bréfum þeirra, 100 kr. á tonn. Hið sanna er, að t. d. á Norðfirði er verðmismunurinn 145 kr. á tonn. Þar kostar togaraolían 600 kr. tonnið, en hér í Rvík 455 kr. tonnið. Á Akureyri kostar togaraolían 602 kr. tonnið, en hér í Rvík 455 kr., þar er mismunurinn 147 kr. á tonn. Og þannig veit ég að verðlagningunni er almennt háttað svo að segja alls staðar á landinu, að verðmunurinn er í kringum 140 kr. á tonn hér í Reykjavík og annars staðar á landinu. En þetta er miklu meiri mismunur, miðað við hvert tonn, heldur en almennt á hinni almennu bátaolíu, þar sem mjög er algengt, að verðmismunurinn á Reykjavikurverði og verði úti á landi sé í kringum 50–70 kr. á tonn.
Nú er það kunnugt, að venjulegur togari notar á hverjum mánuði af þessari olíu í kringum 200 tonn og þó venjulega heldur meira. Ef maður gengur út frá þeim verðmismun, sem ég hef þarna nefnt, 145 kr. á hvert tonn af brennsluolíu, þá nemur þetta á hverjum mánuði í verðmismun um 30 þús. kr. Ef þessi skip stunda innanlandsveiðar eða þannig veiðar, að þau leggi saltfisk upp í sinni heimahöfn eða ísfisk til vinnslu og þurfa þá eðlilega að reyna að taka olíu í sinni heimahöfn, ef þau eiga ekki að fara langar leiðir til að ná sér í olíu, þá sem sagt, eins og menn sjá, er þetta í kringum 30 þús. á hverjum mánuði, eða bara verðmismunurinn á einu skipi, ef það væri rekið allt árið á þennan hátt, mundi vera 360 þús. kr. Þetta eru beinar tölur, sem liggja fyrir og er í rauninni ekki hægt að deila neitt um. Hitt er svo annað mál, að togararnir úti á landi, sem hafa búið við þessar kringumstæður, hafa sveigzt til þess hvors tveggja að gera meira að því, en hefði annars verið óskað að sigla með afla sinn á erlendan markað til þess að búa þar við sambærilegt olíuverð við aðra, og svo hitt, að leggja leið sína til Reykjavíkur eins oft og þeir mögulega geta komið við í sínum rekstri, sem sagt verða að taka margar aukasporzlur til Reykjavíkur eða reyna að tefla sínar Reykjavíkurferðir saman við olíutökur eins og mögulegt er til þess að létta dálítið af þessum mikla mismun, en á reikningum mjög margra togarafyrirtækja núna upp á síðkastið mun mismunurinn hafa komið út yfir árið svona í kringum 200 þús. kr. En það byggist á þessu, að þeir hafa ekki verið reknir alveg allan tíma ársins með olíutöku heima fyrir.
Það sér auðvitað hver maður, að þessi gífurlegi aðstöðumunur fyrir skipin, sem nú eru orðin 17 talsins, sem eiga heima úti á landi, borið saman við skipin hér í Rvík, gerir það að verkum, að þó að allt annað gæti haldizt í hendur, þá er, á sama tíma sem afkoma skipanna hér gæti heitið mjög sæmileg, afkoma hinna vonlaus. Og því meira sem það gerist, að rekstur skipanna færist heim, því minna sem verður um utanlandssiglingar, því ómögulegra verður að búa við þetta ástand.
Nú er það líka athugandi, að þing og stjórn hefur unnið nokkuð að því að koma þessum skipum sem þýðingarmiklum atvinnutækjum út á land. Þessum skipum hefur verið beint þangað. Mörgum stöðum hefur verið veitt allrifleg fjárhagsaðstoð til þess að geta eignazt þessi skip, einmitt til þess að leysa atvinnumálin á þessum stöðum. En ef þau sveigjast svo til þess vegna þessa aðstöðumunar að verða að fara með afla sinn til Rvíkur eða leita hingað vegna þess, þá er vitanlega tilætluninni ekki náð.
Í þessu sambandi er rétt að minna á það til viðbótar, að olíufélögin gera ráð fyrir því í áætlun sinni, sem hér hefur nokkuð verið rædd, að ef það yrði jöfnunarverð t. d. á olíu togaranna um allt land, þá mundi sennilega þurfa að flytja meiri olíu út á land, heldur en nú er gert. Þar með mundi aukast flutningskostnaður, eins og þau vilja gera nokkuð úr. En mætti þá bara minna á það, hvað kemur í staðinn? Hvað kostar að taka þá 17 togara, sem nú eiga heima úti um allt land, úr sínum rekstri og senda þá hingað suður eftir brennsluolíu sinni í hvern einstakan túr? Vitanlega veldur það þessum skipum gífurlegum aukakostnaði. Og auðvitað væri miklu hagstæðara þjóðhagslega að flytja olíuna í tilheyrandi tankskipum út á landið, þangað sem veiðiskipin eru og þar sem þetta fellur bezt inn í verkahring þeirra, heldur en að taka veiðiskipin frá sínum störfum og láta þau fara langar leiðir til þess að komast í hina ódýrari olíu.
Auk þessa, sem einna stórkostlegast verður í sambandi við togaraolíuna og ég hef nú minnzt á, þá er svo aftur hitt, sem allir kannast við, að rekstur bátanna úti um allt land kallar vitanlega á þetta sama. Hann á ekkert síður í vök að verjast úti á landi, heldur jafnvel enn þá frekar, en hér fyrir sunnan og þolir því enn þá síður hærra olíuverð, en bátarnir hér. Og nákvæmlega sama er að segja um aðra olíunotendur úti í landi, að þeir hafa sízt breiðari bök þar til þess að standa undir hærra olíuverði.
En það er enn annað atriði, sem mér þykir rétt að komi hér líka fram í sambandi við hið mismunandi háa olíuverð, en það er, að sumir hafa viljað að nokkru leyti stilla þessu þannig, að fólkið úti á landi eða atvinnureksturinn úti á landi sé jafnvel með þessu að vinna að því, að olíuverðið verði hækkað hér á mönnum í Reykjavík eða atvinnurekstri hér, t. d. við Faxaflóa, sér til hagsbóta. En í því efni má líka minna á það, að það hefur verið farin sú leið til hagsbóta að nokkru leyti fyrir alla landsmenn, að öll olía landsmanna hefur verið flutt inn hingað og olíuverðið í Reykjavík hefur verið lækkað stórkostlega frá því, sem það hefði getað verið, ef Reykvíkingar hefðu aðeins flutt inn sína olíu, með því að þeir hafa fengið að flytja inn alla okkar olíu líka og lækkað þannig fragt á sinni olíu. Samkv. opinberum skýrslum, sem liggja fyrir, er það svo, að bátaolían er notuð að meiri hluta til, hjá aðilum úti á landi fram yfir það, sem þeir nota, sem hér búa við lægsta olíuverðið. Það er nokkur meiri hluti magnsins, sem er notaður af aðilum úti á landi. Þessi meiri hluti magnsins er fluttur með hinum stóru tankskipum hingað inn til birgðastöðvanna í Reykjavík, og á þann hátt hefur olíuverðið hér verið lækkað. Ef þeir, sem hér búa, vildu knýja það fram, að það yrðu byggðar allstórar tankstöðvar, eins og uppi hafa verið raddir um, á Norðurlandi, á Vestfjörðum og á Austfjörðum, og þeir tækju að flytja inn í eins stórum skipum og þeir fá við ráðið til sín og eftir sætu svo þeir hér við flóann að flytja inn sína olíu, þá er það alveg gefið mál, að þeir mundu þá verða að hækka sina olíu nokkuð vegna flutningskostnaðar og vegna kostnaðarins, sem hér er af tankstöðvunum, en nú er kostnaði af rekstri tankstöðvanna hér í Reykjavík dreift á allt olíumagn landsins.
Auðvitað er það eins hér hjá okkur og hjá mörgum öðrum, að það eru í rauninni fyrirkomulagsatriði, hvort við teljum það heppilegra að flytja olíuna þannig inn til landsins, að hún sé sett á land í nokkuð margar stórar tankstöðvar og þar sé síðan tiltölulega lægst verð, sem hækki eitthvað dálítið, eftir því sem því er aftur dreift út frá meginstöðvunum. Við höfum nú komizt að þeirri niðurstöðu, Íslendingar, að það væri í rauninni alveg eins hagstætt að flytja olíu til okkar, sem erum ekki fleiri en við vitum, í eina aðalbirgðastöð, flytja hana sameiginlega inn til allrar þjóðarinnar og nota síðan hagkvæm tankskip til þess að dreifa henni út um landsbyggðina. Ég er næstum sannfærður um, að þetta er í rauninni hagstæðara fyrirkomulag, heldur en ef við færum að festa stórfé í því að byggja allstórar tankstöðvar í Norðurlandi, Vestfjörðum og Austfjörðum og hefðum svo líka þessar stóru tankstöðvar, sem hér eru í Reykjavík. Það yrði óeðlileg fjárfesting, óhentug fjárfesting og flutningurinn á olíu til landsins gæfi sízt betri þjóðhagslega útkomu fyrir okkur heldur en með því skipulagi, sem við höfum nú.
Ég vil líka láta það koma fram í þessu sambandi, að það er ekkert nýtt fyrirbæri, þar sem nokkuð svipað stendur á eins og hjá okkur Íslendingum, að olíuverð er haft jafnt um allt land. Það liggur m. a. fyrir í þeim plöggum, sem hér hafa verið send Alþingi, að í Noregi með sína löngu og miklu strandlengju og sínar dreifðu útgerðarstöðvar er eitt og sama olíuverð um allt landið. Um allan Noreg gildir eitt og sama olíuverð. Það hefur m. a. Landssamband íslenzkra útvegsmanna þurft að upplýsa hér í sínu bréfi, þótt þeir séu annars á móti jöfnun á verðinu. Það liggur líka fyrir, að það er eitt og sama olíuverð í Danmörku allri. Í Englandi er aftur fyrirkomulagið á hina leiðina. Þar þekkjum við nokkrar meginstöðvar, þar sem eru virkilega stórar tankstöðvar, er stórir olíufarmar berast til. Þær stöðvar eru um allt England. Þær eru norður í Skotlandi, og þær eru víðs vegar um England, þessar tiltölulega stóru tankstöðvar. Og þar er olíuverðið lægst, en er aftur talsvert hærra í smærri dreifingarstöðvum víða úti um landið.
Ég held, að menn muni komast að raun um það við að athuga þetta mál, að það er ekki einasta, að það er sanngirni í því að koma á verðjöfnun á þessari vörutegund, heldur er það í rauninni alveg óhjákvæmilegt, eins og nú er komið með atvinnureksturinn í landinu. Það er alveg óhjákvæmilegt á sama tíma, sem við segjum, að vera skuli eitt og sama fiskverð um allt land. Við höfum t. d. nákvæmlega sama útflutningsverð á fiski, frá hvaða höfn sem hann er tekinn. Það skiptir engu máli, þótt það sé jafnvel ódýrara að ferma skipið til Reykjavíkur eða einhverrar annarrar hafnar á Íslandi heldur en þeirrar þriðju, að þar sé sem sagt óhagstæðast að ferma skipið; eigi að síður er sama útflutningsverð á fiski. Við höfum gengið þar út frá einu og sama verði um allt land. En þetta er svo stór liður í rekstrinum, að það verður ekki komizt hjá því, á svipaðan hátt eins og Norðmenn hafa komizt að raun um, að þar verðum við að ganga út frá sambærilegu verði líka.
Svo er aftur það atriðið, sem rétt er að víkja að nokkrum orðum. Það er nokkuð eðlilegt, að þeir, sem t. d. búa hér við Faxaflóa eða reka sína ritgerð héðan frá Faxaflóa og eiga sannanlega í vök að verjast, eru almennt með báta, sem bera sig illa, og eru með togara núna, sem þeir eru að komast í þrot með að reka, engu síður en við úti á landi, — það er ósköp mannlegt og eðlilegt, að þeir segja: Ekki þolum við nokkra hækkun. — Ég hugsa kannske, að við hefðum flestir sagt það undir þessum kringumstæðum, svo að það er ekki neitt til þess að verða hissa á. En mér finnst, að sá almenni vandi, sem snýr að því hjá þeim eins og okkur, að það er mikill vandi að láta þennan rekstur bera sig, verði að vera að nokkru leyti sameiginlegt átak, hvernig á að leysa það mál, og þeir verði litlu bættari, þótt þeir sleppi aðeins lengur, en allir hinir, sem eru býsna margir og viða dreifðir úti um land og annast útgerð, þótt þeir fái að sjá á eftir þeim öllum á höfuðið. En í þessu sambandi kemur maður aftur að því, hvort olíufélögin, sem hafa með höndum söluna, gætu ekki að einhverju leyti tekið eitthvað af þessu á sínar herðar. Það hefur komið hér greinilega fram, að olíufélögin taka þá afstöðu til þessa máls, að þau mæla mjög hart á móti því, að jafnað verði verðið, og hafa flutt hér inn í þingið mjög langt mál um það og greinilega mjög hlutdrægt, því að þar er í ýmsum greinum ranglega skýrt frá og áætlanir allar mjög greinilega gerðar þannig, að það er verið að sverta þá verðjöfnun, sem hér er verið að gera ráð fyrir að koma í framkvæmd. Að þessu hefur nú verið vikið nokkuð af öðrum, svo að ég skal ekki vera að fara mörgum orðum um það. En þegar olíufélögin leggja fram þessi gögn sín, eru þau svona vilhöll í málinu eins og ég hef nú bent á og margir aðrir hafa bent á, að olíuverðið til báta mundi sennilega hækka hér í Reykjavík um 3 aura og annars staðar við Faxaflóa um 2 aura á lítra. Þau áætla sem sagt, að olíuverðið hér mundi hækka um 2–3 aura á lítra hér við Faxaflóa. Aftur komast þau að þeirri einkennilegu niðurstöðu, að annars staðar á landinn muni olían ekki lækka nema um 1½ eyri. Ég hygg nú, að flestir muni slá því föstu, eftir að hafa lesið gögn olíufélaganna, að þarna sé ríflega í lagt. Við skulum nú samt sem áður ganga út frá þessum tölum þeirra og segja, að olíuverðið með almennu jöfnunarverði mundi hækka hér um 2–3 aura á lítra. Þau stilla þessu upp í sínu plaggi sem mjög óviðráðanlegum hlut. En hvað gerist svo? Svo líður örlítill tími, og þessi sömu olíufélög verða að ganga inn á það að lækka olíuverðið um 4 aura á lítra um allt land, án þess að nokkuð hafi gerzt þeim til hagsbóta, nema síður sé, í sambandi við rekstur þeirra. Þá sannast allt í einu, að þau hefðu t. d., áður en þetta samkomulag var nú gert, sem var bundið við verkfallið, getað tekið við verðjöfnuninni samkv. þessu frv. og samkv. þeirra eigin tölum og getað framkvæmt hana þannig, að til engrar hækkunar hefði þurft að grípa hér í Reykjavík, samkv. því, sem nú er fram komið, og fullri verðjöfnun hefði verið hægt að ná, miðað við þá almennu verðlagningu, sem þá lá fyrir. Þetta hefur nú sannazt í málinu, eins og nú er komið. Og þó liggur enn annað og meira fyrir, og það er það, að við vitum allir, að í ágústmánuði í sumar fengu olíufélögin að hækka hið almenna olíuverð í landinu um rétt um 10%, og sú hækkun var leyfð án þess að þá hefði skeð nokkur verðhækkun eða nokkur sérstök hækkun í sambandi í þeirra dreifingarkostnað eða nokkuð, sem hefði getað gert þeirra verzlunarhag verri, en áður var. Þessari miklu verðhækkun, sem þá var leyfð og nú hefur að vísu í sambandi við verkfallið verið skilað aftur að nokkru leyti, hefur þó ekki verið skilað aftur að öllu leyti. Mér sýnist því, að það sé bara út frá þessu full ástæða að búast við því, að olíufélögin gætu, um leið og þessi verðjöfnun yrði samþ., enn þá tekið á sig þessa 2–3 aura lækkun á lítra, sem sennilega yrði nú ekki nema 1–2 aurar, ef réttilega væri metið, sem verðlagið ætti annars að hækka um hér í Reykjavík, og það væri því hægt núna, a. m. k. á fyrsta ári verðjöfnunarinnar, að koma á jöfnunarverði án þess að þurfa að hækka verðlagið nokkuð hér við Faxaflóa, að vísu með því að leggja þar nokkuð á olíufélögin.
Það hefur nú lengi þótt við brenna, að verðlagning olíufélaganna hafi verið þannig, að það hafi verið full ástæða að taka hana til athugunar. Ef menn vildu heyra aðeins örlítið í sambandi við verðlagningu á olíu, sem við þekkjum til, þá mætti t. d. nefna þessar tölur, að þegar olíuverðið á togaraolíunni hér í Reykjavík, þar sem hún er langódýrust, eins og ég hef sagt áður, var 455 kr. á tonn, þá var verð á þessari sömu olíu úti í Esbjerg 369 kr. Og við fáum nú ekki séð, að það eigi ekki að vera nákvæmlega sama aðstaða til þess að selja t. d. þessa brennsluolíu togaranna á sams konar verði hér í Reykjavík eins og t. d. í Esbjerg, þar sem sú olía kemur frá Mexicoflóa í alveg sams konar skipum eins og við flytjum hingað, því að við flytjum þessa olíu hingað í þeim stærstu tankskipum, sem almennt eru notuð til þessara flutninga.
Verðmismunurinn á hinni almennu bátaolíu er ekki minni. Þegar verðið hér í Reykjavík á bátaolíunni var kr. 863.50 á tonn, þá var það úti í Esbjerg 648 kr., eða það munaði um 220 kr. á tonni. Í Þýzkalandi var verðmunurinn þó enn þá meiri. Þá var þessi almenna bátaolía þar ekki nema 594 kr. á tonn, en hér 863 kr. Sá mikil verðmunur, sem alltaf er á allri þessari olíu hér hjá okkur og í nágrannalöndum okkar, er okkur ekki skiljanlegur. Og slík fyrirbæri eins og þau, sem komu fram í sambandi við lausn verkfallsins, þegar þau gáfu eftir jafnverulegan hluta af olíuverðinu eins og þau gerðu þá, án þess að nokkuð hefði komið fyrir, eru okkur ekki heldur skiljanleg.
Það fyrirbæri hefur líka verið dregið inn í umræðurnar, þegar ein ríkisstofnun, innkaupastofnun ríkisins, fékk samning við eitt af olíufélögunum um það, að hún fengi 123 kr. í afslátt af hverju tonni frá hinu auglýsta olíuverði, sem var hér í Reykjavík og í Hvalfirði. Hún fékk afslátt um 123 kr. á tonn, á sama tíma sem verðlagsyfirvöldin töldu, að þau hefðu heimilað þeim 20 kr.í álagningu á tonn, og þetta hefur vitanlega ekki fengizt skýrt hér á Alþingi.
Ég álit því fyrir mitt leyti og er einn af þeim, sem eru á þeirri skoðun, að það væri ekkert of í lagt, um leið og þetta mikla nauðsynjamál er samþykkt hér, að gera jöfnunarverð á olíunni, sem ég álít að eigi hiklaust að ná fram að ganga og sé lífsnauðsyn, þá sé samt sem áður, þótt olíufélögin hafi að vísu nýlega látið nokkuð af sinni miklu álagningu, ekkert of í lagt að áætla þeim núna fyrsta árið til reynslu að taka þessa 2–3 aura á lítra, sem olían þyrfti annars að hækka um hér hjá Reykvíkingum. Því er það, að ég fyrir mitt leyti vil styðja till. þm. Siglf. um það bráðabirgðaákvæði við frv. um leið og frv. er samþ. eins og það liggur fyrir, þá sé sett það bráðabirgðaákvæði við frv. til eins árs, að olíuverðið verði þó ekki hækkað hér í Rvík, og olíufélögunum gefist þá fullur kostur á því að sanna það að ári loknu, að þau þurfi þarna að fá svolítið ríflegra, en þau hafa fengið.
Ég skal svo ekki að þessu sinni orðlengja þetta frekar, en vil aðeins segja það í sambandi við þau orð, sem hér féllu frá frsm. minni hl., sem er andvígur frv., að hugleiðingar hans, hv. 5. þm. Reykv., um það, að það væri sanngjarnt, að olíuverð úti á landi yrði lækkað á kostnað ríkissjóðs eða t. d. togurum og bátum þar yrði bættur skaðinn með því, að ríkissjóður greiddi þeim þennan verðmismun, að svona ávísanir eru auðvitað góðar út af fyrir sig, ef þær bara verða teknar gildar. Ef svona ávísanir ganga, ef hann vill tryggja það, að það sé hægt að koma þessu í gegn á þennan hátt, að við fáum sambærilegt olíuverð á við það, sem nú er í Reykjavík, á þann hátt, að ríkissjóður borgi mismuninn, þá skal ekki standa á mér í því efni. En það dugir ekki að sýna mér svona ávísun; ég þykist hafa nokkra reynslu fyrir því, að það þurfi meira til, og ég sætti mig ekki við annað. Það verður eitthvað annað og meira að koma. (Gripið fram í.) Já, en hann er nú samt ekki alveg bankastjóri ríkissjóðs og hefur kannske ekki alveg ávísunarrétt á hann, ekki fullkomlega.
Eins er um þær athugasemdir, sem hann gerði í sambandi við þann verðlagsgrundvöll, sem menn væru nú búnir að koma sér saman um í sambandi við rekstur bátaflotans, þar sem gert hefði verið af hálfu útvegsmanna og af hálfu ríkisvaldsins ráð fyrir tilteknu olíuverði og tilteknum kostnaði í rekstri bátanna. Ekkert af þessu fær vitanlega staðizt, því að það var verið í því tilfelli að semja um fiskverð fyrir allt landið og rekstrarafkomu bátanna um allt land, en þar var bara lagt til grundvallar hið lága olíuverð í Reykjavík, svo að þar hallaðist eins og fyrri daginn á alla aðilana úti á landi. Þeir verða að gera svo vel að sætta sig við þann grundvöll, þó að hann sé byggður á hinu lága olíuverði í Reykjavík, en ekki því háa olíuverði, sem þeir verða að búa við nú úti á landi, enda kemur nú í ljós að, að dómi útvegsmanna sjálfra skakkar þetta nú ekki meiru en svo á rekstri bátanna, þó að verðhækkunin hér í Reykjavík yrði metin eins og olíufélögin telja, að rekstrarkostnaður báts hér á vetrarvertíð í Faxaflóa mundi hækka í kringum 1.000 kr., svo að þar hefur nú sennilega ekki verið gerð heldur áætlun, sem er svo nákvæm.
Ég skal svo ekki orðlengja um þetta frekar, en legg eindregið til fyrir mitt leyti, að þetta frv. nái fram að ganga og það á þeim grundvelli, sem ég hef nú lýst.