29.01.1953
Efri deild: 58. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1503 í B-deild Alþingistíðinda. (2164)

40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni

Frsm. 1. minni hl. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti. Eins og nál. bera með sér, þá hefur n. klofnað í málinu. Við, ég og hv. þm. Seyðf., leggjum til, að frv. verði samþ. óbreytt, en aðrir vilja ýmist vísa því frá eða breyta því töluvert.

Eins og frv. liggur fyrir, fer það fram á það, að þessir nauðsynlegu orkugjafar, steinolían og benzínið, séu seldir með sama verði um land allt, þannig að menn hafi hvað þann útgjaldalið snertir sömu aðstöðu hvar sem er á landinu, bæði til benzínkaupa til bílarekstrar og olíu til útgerðar. Við lítum þannig á, ég og hv. þm. Seyðf., að með því að láta þessar nauðsynlegu vörur vera miklum mun ódýrari á einum stað en öðrum, þá að verið að hlúa að atvinnurekstrinum á þeim stað og vinna að því, að fólkið flytjist á þá staði og atvinnureksturinn einskorðist meira og minna við þá. Það er nú ekki heppilegt eins og atvinnulífi er háttað hér á landi, að allt fólk og atvinnulíf safnist og einskorðist við sárafáa staði eða einn stað á landinu, og þess vegna teljum við, að það sé liður í því að halda fólkinu úti um landið og nota gæði þess og aðstöðu sem bezt að skapa sem allra jafnasta aðstöðu fyrir þá menn, sem atvinnulífið þurfa að stunda, hvar sem þeir eru búsettir. Teljum við þess vegna, að þetta sé spor í rétta átt, og ég tel a. m. k. sjálfur, að það þurfi að fylgja ýmislegt fleira á eftir í svipaða átt. Ég taldi á sínum tíma, þegar var byrjað að leggja hér rafveitur um landið og rafvirkjanir, að hið opinbera ætti að jafna verðinu á svæðin, þannig að það yrði jafnt hjá öllum þeim, sem hefðu bezta aðstöðu til að fá raforku frá einhverju ákveðnu fallvatni. Það voru þá ósköp fáir menn, sem vildu fara inn á þá braut, og það hefur nú haft sínar afleiðingar, sem ég skal ekki fara út í hér, en það er margt fleira, sem þarf að jafna til þess að skapa fólkinu sem líkasta aðstöðu í landinu, og þetta frumvarp er einn liður í þá átt, og þess vegna fylgi ég því og vil láta samþ. það óbreytt.