29.01.1953
Efri deild: 58. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1515 í B-deild Alþingistíðinda. (2168)

40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Hér er um mjög merkilegt og óvenjulegt mál að ræða og þess vegna mjög miður farið, að það skuli hafa komið fyrir, sem lýst var yfir af einum stuðningsmanni þessa frv., hv. frsm., 4. landsk. þm., að ekki hafi enzt tími til að athuga málið í n. og að það hafi eiginlega verið nánast á hlaupum, sem menn hafa afgreitt það. Ég verð að telja þetta mjög miður farið, því að hér er vissulega um slíkt mál að ræða, að ekki hefði veitt af, að n. hefði setið lengi og vel á rökstólum til þess að finna á því rétta lausn, og greinilegt er, að þær till., sem hér hafa fram komið um afgreiðslu málsins á þann veg, að frv. verði samþ. — án breyt. eða með breyt. — eru byggðar á mjög lítilli íhugun.

Þess gætti t. d. mjög hjá hv. þm. N-M., frsm. eins minni hl., að hann hafði í frammi ákaflega hæpnar fullyrðingar um marga hluti. Svo að tekið sé eitt af síðustu dæmunum úr ræðu hans, einungis til þess að sanna, á hversu veikum fótum öll hans rökfærsla stendur, þá er það, að þm. sagði, að það færi betur á því að samþ. brtt. hv. 4. landsk. eða a. m. k. væri hann til með að athuga það. En hann sagðist ekki vilja gera það á þessu þingi, en hét því, að hann skyldi gera það á næsta þingi. Það var alveg skýlaus yfirlýsing frá hv. þm. (PZ: Athuga það.) — Já, athuga það. Nú stendur þannig á, að komið gæti fyrir, að hv. þm. héldi nú ekki heilsu sinni eða lifði, því að komið gæti fyrir, sem við skulum vona að ekki verði um þennan ágæta hv. þm., að maður hátt á sjötugsaldri hefði annaðhvort verið kallaður heim til feðra sinna á fund drottins á þeim mánuðum, sem líða til næsta þings, eða að hann yrði svo heilsulaus, að þó að hann vildi bjóða sig fram, þá gæti hann það ekki. Það er enn fremur alveg óvíst, að hv. þm. bjóði sig fram við þær kosningar, sem eiga að öllu forfallalausu að fara fram fyrir næsta þing. (Gripið fram í.) Það er óvíst, að hv. þm. vilji bjóða sig fram, og kynni þó að felast í orðum hans, að hann hefði í því óbifanlegan vilja. Það er óvíst, að kjósendur vilji velta honum stuðning til framboðs. Það er enn fremur óvíst, að kjósendur vilji kjósa hann, jafnvel þó að hann gæfi kost á sér og gæti fengið meðmælendur. Allt eru þetta svo mörg óviss atriði, að þegar hann heitir því, að hann skuli athuga mál á næsta þingi, þá er það ákaflega lítils virði, það er fyllilega að lofa upp í ermina sína. (PZ: Það er misskilningur.) Nei, það er enginn misskilningur, það er fyllilega rétt, nema hv. þm. hafi tekið sér vald æðra mannlegu valdi, og þó að við vitum, að hann sé nú mikils háttar og mjög vel virður, þá hefur hann nú ekki enn þá komizt til slíks máttar frekar en aðrar mannlegar verur. Ég vek aðeins athygli á því vegna þess, að þetta er einkennandi um þau loforð og fullyrðingar, sem eru hafðar í frammi í sambandi við þetta mál.

Hv. þm. taldi einnig, að það væri mjög að ástæðulausu, að nú væri vitnað til lausnar vinnudeilunnar fyrir jólin til ábendingar um það, að óheppilegt væri að afgreiða þetta frv. Og hann hélt því fram, að allir hefðu mátt sjá, að frv. mundi verða samþ. Nú veit ég ekki um það, hvert fylgi þetta frv. hefur í d., en greinilegt er það, að tveir þm., sinn úr hvorum flokki, hafa nú þegar lagt til, að frv. verði vísað frá. Ég er nú þriðji þm., sem stendur upp til þess að leggja á móti frv., og ég hygg, að svo sé um fleiri hv. þm., að þeir sýnist óráðnir eða beinlínis andvígir frv. Það kann að vera, að hv. þm. N-M. hafi ætlað sér að vera með frv. og að það hafi verið kunnugt, — ég veit ekki um það. En við þekkjum nú af reynslunni, að jafnvel þó að hv. þm. hafi í nál. og í mörgum ýtarlegum ræðum lagt til, að ákveðin afgreiðsla máls ætti sér stað hér í hv. þd., þá hefur hann ekki alls fyrir löngu hlaupið frá því, þegar til atkvgr. kom, svo að það, að hv. þm. sé þekktur að því að vera með máli á vissu stigi, kynni allt eins að benda til þess, að hann yrði á móti því, þegar kæmi að atkvgr.

Þegar allt þetta er athugað, þá sjá menn, að í þessu eru svo mörg óviss atriði, að það var engin von til þess, að menn gætu búizt við því, þegar vinnudeilan var leyst, að þetta óskapnaðarfrv. yrði afgreitt á þessu þingi.

Hv. þm. vitnar að vísu til þess, að málið hafi verið fyrir fyrri þingum, en það er einmitt eftirtektarvert, að þó að þá hefði í lófa legið, ef meiri hl. var með því, eins og hv. þm. segir, að afgreiða málið á þinglegan hátt, þá hefur það einmitt ekki verið gert. Það er ekki fyrr en nú, að gerð er tilraun til þess, sem ef til vill tekst, ef til vill tekst ekki, að afgreiða málið með lögum, eins og ætíð hefur verið ljóst að nauðsynlegt var að gera, ef það átti að ná fram að ganga. Þetta er slíkt atriði, að það var auðvitað með öllu ómögulegt fyrir ríkisstj. að gefa um það fyrirmæli án þess að hafa við lagabókstaf að styðjast, og það var beinlínis óviðeigandi meðferð, sem málið hlaut á síðasta þingi, þegar það var gefið í skyn í þál. eða sagt berum orðum, að ef stj. teldi sig ekki hafa næga heimild án laga, þá ætti hún að gefa út um það bráðabirgðalög. Sannleikurinn er sá, að Alþ. á aldrei á slíkan veg að vísa stj., á brbl. varðandi tiltekna úrlausn tiltekins máls. Ef Alþ. telur, að um þetta þurfi að setja löggjöf eða að það sé vissara að setja um það löggjöf, þá á Alþ. sjálft vitanlega að setja löggjöf um málið. Og það, að 1öggjöfin var ekki sett á síðasta þingi, var ekki hægt að skilja á annan veg en þann, að það væri ekki full alvara hjá þeim hv. þm., sem í orði kveðnu beittu sér fyrir þessu máli, að ef þeir hefðu í raun og veru ætlazt til þess, að lög yrðu um þetta sett, þá áttu þeir ekki að vísa því til stj., heldur áttu vitanlega að gera það meðan þingið sat, og þingið hafði vissulega nógan tíma til þess, enda ef meiri hl. var málinu fylgjandi, þá gat hann hlutazt til um það, að þingi yrði ekki slitið fyrr, en lögleg meðferð hefði átt sér stað í málinu. Sú meðferð varð þess vegna þinginu sízt til sæmdar. Og þó að einhver meiri hl. hafi greitt atkv. með slíkri þál., þá er það auðvitað með öllu óvíst, að lagafrv. geti fengið samþykkt Alþ. eða þurfi að fá samþykkt Alþ., þó að meiri hl. sé fyrir máli í Sþ. Það kynni val svo að vera, að allir stuðningsmenn málsins eða flestir væru í Nd., en yfirleitt andstöðumennirnir, þótt þeir væru færri, væru í Ed., en með þeim hætti, að þeir hefðu fullkomlega þinglegan, löglegan og stjórnskipulegan rétt til þess að fella málið.

Hvernig sem á er litið, verður því að segjast eins og er, að málið hefur ekki hlotið skemmtilega meðferð á undanförnum þingum, og það var vitanlega fráleitt að ætlast til þess af útgerðarmönnum eða atvinnurekendum, þegar þeir gerðu samninginn í desember, að þeir teldu það alveg víst, að þetta lagafrv. yrði samþykkt.

Það er einnig mjög eftirtektarvert, að því er haldið fram, að þetta frv. sé mikið nauðsynjamál fyrir útgerðarmenn landsins, en þrátt fyrir það hafa þeir ekki fengizt til þess að veita málinu stuðning. Það hefur verið rakið áður, að málið hefur verið sent til félaga innan Landssambands ísl. útvegsmanna, flest félaganna hafi ekki virt málið þess að gera um það neina samþykkt, aðeins eitt eða örfá hafa mælt með því og önnur hafa mælt eindregið á móti frv. Ef frv. væri slíkt hagsmunamál útvegsmanna og þá sérstaklega útvegsmanna úti um land eins og hér er látið, þá mundu þeir að sjálfsögðu hafa haft sig í frammi og a. m. k. með fundarhaldi og atkvgr. á fundi sýnt, að þeir vildu styðja að framgangi málsins. Þetta hafa þeir látið undan fallast, og það verður eins og á stendur ekki skilið á neinn annan veg en þann, að þeir séu málinu andvígir.

Það er einnig ljóst, að ávinningur manna úti um land við þetta frv. er miklu minni, en í fljótu bragði virðist. Það kann að vera nokkurra aura munur á olíu og benzíni, hvað þetta sé hærra víðs vegar úti um land heldur en hér, en þegar jöfnunarverð kemur á þetta, þá verður sá ávinningur, sem menn á hinum strjálbýlli stöðum hafa af þessu, svo litill, að engan veginn samsvarar öllu því umstangi og þjóðhagslega óhagræði, sem þessari breytingu er samfara. Ef menn heyra nefndan mun á þessari vöru, annars vegar í Reykjavík og hins vegar einhvers staðar úti á landi, þá hugsa þeir, sem eru úti á landi: Ja, það væri gott, ef við gætum farið niður í það, sem Reykvíkingurinn hefur. — Það er vissulega gott frá þeirra sjónarmiði, en raunin verður alls ekki sú, að þeir lækki svo mikið, heldur aðeins einhvern lítinn hluta af þeim mismun, sem þarna er um að ræða. Málið er þess vegna engan veginn eins mikið hagsmunamál fyrir þessa aðila og sumir vilja láta líta út.

Hinu get ég ekki stillt mig um að finna að, að svo varfærinn maður og orðvar eins og hv. 1. þm. N-M. skyldi gera það að sérstöku árásarefni á hv. 6. landsk. þm., að hann hefði bent á, að það kynni svo að fara, að þetta yrði til þess að gera olíuna dýrari fyrir heildina en ella. Hv. þm. taldi, að það væri ósæmilegt fyrir opinberan starfsmann eða embættismann að láta þetta uppi, þar sem vitað væri, að ætlazt væri til þess, að slíkir menn væru mjög óeigingjarnir og hugsuðu ætíð um hag heildarinnar, en ekki sjálfra sin. Látum það nú vera sem almennt boðorð, og vissulega eigum við allir því að fylgja og reynum sjálfsagt að gera það hver eftir beztu getu, þó að það þyki nú hafa tekizt misjafnlega hjá sumum, eins og dæmin sanna. En látum það vera. Hv. 6. landsk. sagði ekkert, sem gæfi tilefni til þess að bera honum slíkar getsakir á brýn, hann benti einungis á það, hver sú almenna hætta væri í þessu sambandi, og jafnvel hv. 1. þm. N-M. komst ekki hjá því að játa, að það væri mikið ti1, í því, sem hv. 6. landsk. sagði um þá almennu hættu, svo að ef það hefur lýst ljótum hugsunarhætti hjá hv. 6. landsk. að gera sér grein fyrir þessari almennu hættu, þá er sá ljóti hugsunarháttur alveg eins til staðar hjá hv. 1. þm. N-M., sem að vísu kemur engum á óvart, en vert er að vekja athygli á engu að síður vegna hans rökfærslu hér.

Um það verður hins vegar alls ekki deilt, að þetta frv. hlýtur að hafa í för með sér margs konar aukinn kostnað fyrir heildina. Það liggur alveg í augum uppi, að þar sem menn nú bæði á bílum og skipum hafa beina hagsmuni af því að taka vöruna þar, sem hún er ódýrust, þá hverfa þeir hagsmunir alveg, þegar það kerfi er komið á, sem hv. 1. þm. N-M. vill hafa. Þá lendir margs konar kostnaður, sem áður hefur sparazt, á heildinni, og allir verða að standa undir. Þetta gefur auga leið, og jafnvel hv. 1. þm. N-M. komst ekki hjá því að játa þetta. Hann vildi að vísu taka að sér almenna fræðslustarfsemi til þess að venja menn á óeigingirni og annað slíkt. Þó að ég meti mikils hans orð og viti, að hann sé áhrifaríkur kennari frá fornu fari, þá held ég, að hann á sínum efri árum geti litlu áorkað miðað við það, sem hans lífsferill kann að hafa sýnt mönnum um það, hvernig menn eigi að hegða sér í þessum efnum. Ég held, að það verði það áhrifaríkasta, sem hann leggur til í þeim efnum, og met þess vegna hitt fyrirheitið ekki ákaflega mikils í þessu sambandi. En það sýnir í raun og veru, hversu langt þarf að sækja til raka fyrir þessu máli, að hv. þm. skuli telja það vera eiginlega forsendu fyrir því, að menn geti samþ. þetta frv., að þeir treysti á það, að hann taki að sér slíka kennslu í óeigingirni og umhugsun um heildina fram yfir einstaklingana.

En það er ekki nóg með það, að þetta muni á ýmsan veg orka til þess, að menn nota ekki sömu hyggindi um öflun vörunnar eins og þeir áður hafa gert, heldur hlýtur þessi verðjöfnun, sem hér á að taka upp, að leiða beinlínis til mikils aukins kostnaðar. Þessu hlýtur að vera samfara stórkostleg skriffinnska til viðbótar allri þeirri skriffinnsku og fargani, sem hér á landi er áður í þeim efnum og menn stundum tala um að sé orðið svo magnað, að fullkomin ástæða sé til þess að losa sig eitthvað undan því. Þessu er helzt jafnandi við skömmtunarskrifstofu eða eitthvað slíkt. Ég skal ekki segja, hvort það þarf marga tugi manna til þess að reikna þetta allt út, en það er a. m. k. óreynt, hversu mikill fjöldi það þarf að vera, sem á að inna þetta starf af höndum, ef vel á að fara. Og það hlýtur að vera ákaflega flókið verk að dæma um til hlítar flutningskostnað og dreifingarkostnað á hverja einustu benzíndælu og hvern einasta olíutank um allt landið, og mér skilst jafnvel, að hér eigi að reikna út heimkeyrslukostnað olíunnar, a. m. k. úti um þær dreifðu byggðir landsins, ef ekki heim á heimili í kaupstöðum. Ef þetta á að vera gert samvizkusamlega og á þann veg, sem lögin segja til um, þá eru menn vissulega að hleypa sér út í þá kostnaðar- og skriffinnskuófæru, að önnur verri hefur naumast þekkzt hér á landi.

Það má auðvitað endalaust deila um það, hvort sanngjarnt sé og að hve miklu leyti sanngjarnt sé að gera ráðstafanir til þess að bæta hag hinna strjálbýlli héraða og íbúanna þar til jafns við þéttbýlið. Að meginstefnu til og að svo miklu leyti sem hægt er að gera þetta með almennum ráðstöfunum, þá horfir þetta vitanlega í rétta átt. Það er að sjálfsögðu þjóðarnauðsyn, að gert sé mögulegt að halda uppi byggð úti um allar sveitir Íslands og strendur, eftir því sem þar eru lífsmöguleikar til. Okkar land yrði minna og fátækara og íslenzk menning svipminni og í raun og veru mergsogin, ef þannig yrði á málum haldið, að allt fólk flyttist til nokkurra þéttbýlla staða. Þetta er vissulega rétt, og þetta þarf mjög að brýna fyrir mönnum og haga löggjöf eftir því með almennum ráðstöfunum svo sem við verður komið. En þetta leiðir engan veginn til þess, að í einstökum tilfellum eigi að gera svo óhagkvæmar ráðstafanir eins og þessa, vegna þess að það legg ég höfuðáherzlu á, að þessi ráðstöfun út af fyrir sig er í eðli sínu mjög óhagkvæm og hlýtur, eins og ég segi, að leiða til óhyggilegri aðferða um flutning vörunnar út um land heldur en áður hefur verið og til mikils kostnaðar af skrifstofubákni og jöfnun á kostnaðinum.

En það er líka á það að líta, sérstaklega varðandi útgerðina, sem hér skiptir mestu máli, þótt þetta varði einnig aðra aðila, að útgerðin t. d. hér í Reykjavík á við aukinn kostnað nú þegar að búa við það, sem er úti um land. Þetta er orðið mönnum ljóst. Við sáum það síðast við lausn þess verkfalls, sem var á skipunum og fyrst fékkst aflétt fyrir fáum dögum, að þá var jafnvel krafizt meiri kostnaðar fyrir útvegsmenn við laun og kaupgreiðslur til skipverja hér í bænum heldur en í nágrannahöfnunum. Til þessa verkfalls, sem hér stóð, hefði aldrei komið, ef skipverjar hefðu viljað sætta sig við sömu kjör hér í Reykjavík eins og t. d. á Suðurnesjum og Akranesi. Það var vegna þess, að þeir heimtuðu hærra kaup hér heldur en á hinum stöðunum, sem þetta verkfall hófst og stóð í nokkrar vikur. En af þessu leiðir vitanlega aukinn kostnað fyrir útvegsmenn, sem er aðeins eitt dæmi þess, hvernig aðstaðan er misjöfn. Nú kemst hv. 1. þm. N-M. og hans sálubræður og sálusystkini í þessu máli ekki hjá því að svara því. Vilja þau þá gera ráðstafanir til þess að létta af þeim aukakostnaði, sem hvílir á útvegsmönnum hér í bænum umfram þann kostnað, sem útvegsmenn úti á landi víðs vegar verða að bera? Vilja þeir láta ríkið taka að sér miðlun í þessum efnum, t. d. með því, að það verði tekið beint á ríkið, eins og hv. þm. virtist vilja „athuga á næsta þingi“ varðandi kostnaðinn af benzíninu? Vill hann þá athuga það og gefa fyrirheit um það, að hann vilji láta ríkið taka á sig að borga þann mismun, sem kemur af hærra kaupgjaldi til skipverja hér í Reykjavík heldur en annars staðar? Vill hann ekki hafa góð orð um þetta, og góð orð af hans hálfu eru jafnmikils virði eins og fullkomin yfirlýsing, þ. e. a. s. hvorugt er allsendis að marka, þó að ekki sé alveg að engu hafandi? En hann verður að láta sem sagt hið sama gilda í þessum efnum, ef hann vill ekki verða ber að rangindum. Vonandi gefst þm. færi á að svara þessu, þó að auðsjáanlega sé ætlunin að drífa þetta frv. hér í gegn með óhæfilegum hraða og án þess að mönnum gefist færi á því að athuga þetta mikla vandamál eins og skyldi.

Þá er einnig að líta á það, svo að við tökum annað dæmi, varðandi óhagræði útvegsmanna hér, miðað við það, sem er annars staðar, að þeir verða að borga miklu meiri húsaleigu til síns rekstrar hér í Reykjavík heldur en ef þeir hafa rekstur víðast hvar úti á landi. Og Alþ. hefur beinlínis sjálft gert ráðstafanir til þess að koma slíku misrétti á með því að fyrirskipa ýmis gjöld af fasteignum eftir hærri skattstigum hér í Reykjavík, heldur en annars staðar. Hér mun vera miðað við fasteignamat sex- eða sjöfalt. Víða úti um land er það aðeins fjórfalt, að því er ég hygg, sums staðar tvö- eða þrefalt. Hv. þm. með sitt góða töluminni kann vafalaust skýrslur um þetta, enda er hann sjálfur í ríkisskattanefnd og starfaði mikið að fasteignamati á sinni tíð. En hann verður, ef hann vill koma á þessum jöfnuði um atvinnureksturinn, að tryggja útvegsmönnum hér jafnrétti í þessum efnum, ekki síður, en útvegsmönnunum úti á landi jafnrétti varðandi verðið á olíunni. En ég spái því, að töluverð bið verði á í þessum efnum.

Ég vil nú mjög beina því til hv. nefndar, ef þetta frv. kemst áleiðis, sem ég vona að ekki verði, að þá yrði bætt inn í það við 3. umr. ákvæðum til jöfnunar í þá átt, sem ég hef hér víkið að, og það er raunar mjög athugandi, hvort ekki á að hafa þann hátt á, sem hv. 6. landsk. þm. benti til í sinni ágætu ræðu, að taka einnig upp nú þegar jöfnun á húsaleigu um allt land. Og mér er næst skapi, að það væri nauðsynlegt að breyta þessu frv. við 3. umr. í slíka almenna heimild. En það er ákaflega einkennilegt, að Alþ. skuli gera slíkar ráðstafanir til þess að knýja fram jöfnun á einni vörutegund á sama degi þingsins og samþ. er hér í deildinni frv. varðandi alþýðutryggingarnar, þar sem er gert ráð fyrir beinlínis ólíkum verðlagssvæðum á landinu. Af hverju skyldi vera gert ráð fyrir þessum ólíku verðlagssvæðum á landinu og gert ráð fyrir því, að tilkostnaður allur sé meiri einmitt hér í Reykjavík og á nokkrum öðrum stöðum, heldur en í strjálbýlinu? Ástæðan til þess, að þetta er gert, er eingöngu sú, að kostnaður margs konar er minni, þegar á heildina er litið, úti um land heldur en hér í Reykjavík og á öðrum stöðum í þéttbýlinu. Ef Alþ. telur, að breyting sé orðin á þessu frá því, sem verið hefur, og ég skal játa, að ég geri ráð fyrir, að þessi mismunur sé nú óréttlætanlegur, þá hefði verið sjálfsagt að nota færið nú við þá breyt. á alþýðutryggingalögunum, sem fyrir liggur, til þess að afnema þennan sérstaka mun. Nei, því fer fjarri, að hann sé afnuminn, hann er látinn halda áfram einnig varðandi þau auknu hlunnindi, sem nú á að veita með breytingunum á alþýðutryggingalögunum. En þetta dæmi sýnir, eins og þau önnur, sem ég hef tekið, hversu þetta mál er aðeins hluti af miklu stærra og margþættara máli, máli, sem þarf að athuga miklu gaumgæfilegar, en gert hefur verið og allsendis er óverjandi að taka eitt út af fyrir sig og ætla að afgr. á þann veg, sem einn minni hl. nefndarinnar leggur til, og það er sannast sagt ákaflega einkennilegt, að hv. 1. þm. N-M. skuli nota þetta tækifæri til þess að halda hér prédikun um óeigingirni og það, að menn verði að setja hag heildarinnar fram fyrir hag einstaklinganna, taki einmitt þetta mál til dæmis um það, mál, sem alllr vita að byggist eingöngu á því, að vissir landshlutar vilja nota sína styrku aðstöðu hér á Alþ. til þess að taka fé af samborgurum sínum, meiri hluta manna í landinu, sem hafa ekki þinglegan styrk vegna rangrar kjördæmaskipunar á við þá. Þetta dæmi er þess vegna einstakt dæmi um það, hvernig menn misnota þann trúnað, sem þjóðin í heild hefur veitt þeim, til framdráttar fyrir sérstaka hagsmuni á kostnað heildarinnar.