29.01.1953
Efri deild: 58. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1531 í B-deild Alþingistíðinda. (2171)

40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Þar sem ég veit, að hv. þm. Barð. þarf senn að víkja af fundi, þá vil ég, áður en hann færi, nota tækifærið til þess að svara honum nokkrum orðum.

Okkur greinir alls ekki á um það, mig og hv. þm. Barð., að það sé nauðsynlegt að gera ráðstafanir til þess að halda uppi hagsmunum strjálbýlisins, þannig að sveitir landsins og sjávarpláss leggist ekki í auðn. Þetta hef ég reynt að sýna með skiptum mínum af almenningsmálum og tók mjög glögglega fram í ræðu minni áðan, og hv. þm. hefur mjög beitt sér í þessum efnum sjálfur, svo að okkur greinir ekki á um það. Það, sem okkur kemur ekki saman um í þessum efnum, er hitt, hvort þessi tiltekna ráðstöfun út af fyrir sig sé heppileg eða ekki, bæði í þessu sérstaka skyni og svo hvort hún sé ekki beinlínis ósanngjörn gagnvart öðrum, vegna þess að annað er, hvort menn vilja gera almennar ráðstafanir, sem miða að tilteknum tilgangi, eða hvort menn vilja beinlínis ganga á rétt tiltekins hóps manna öðrum til hags. Þetta er gerólíkt. Og ég held því eindregið fram, að þær till., sem felast í þessu frv., séu þess eðlis, eins og ég sagði, að þar séu þm. frá strjálbýlinu að nota meirihlutavald sitt hér á þingi til þess að ganga á hag hinna.

Hv. þm. fannst ég fara um þetta of hörðum orðum. Það kann nú að vera um okkur báða, hv. þm. og mig, að við kveðum stundum fastar að orði, en ætlunin sé, og er þá sætt í því sameiginlegt skipbrot, en efni málsins er óhaggað, hvað sem orðalagi líður, og það var í raun og veru játað af hv. þm. Barð., að hér er um að ræða hreina hagsmunatogstreitu. Það er um það að ræða, að tiltekinn hópur þm. vill nota sitt þinglega vald til þess að hafa fé af tilteknum borgurum sínum kjósendum til framdráttar. Þetta er óhagganleg staðreynd, sem ekki verður fram hjá komizt. Það má segja, að þetta sé gert í ýmsum öðrum tilfellum, en það er gert með óhagkvæmari hætti í þessu tilfelli, en víðast hvar annars staðar. Það er farið óhyggilegar að, og ránið, ef svo má segja, er enn þá bersýnilegra og þar með illþolanlegra hér heldur en almennt gerist. Og þessi aðferð hlýtur að leiða til svo margra annarra hliðstæðra aðferða, að það verður að skoða allar afleiðingarnar, áður en menn geta samþykkt þessa einu ráðstöfun, enda er það mjög athyglisvert, að bæði hv. þm. Barð. og hv. 4. landsk. þm. leggja á það mjög ríka áherzlu í sinum málflutningi, að þetta mál hafi engan veginn fengið þá meðferð, sem því beri, og þurfi að athugast miklu betur, en enn hefur gefizt kostur á, og það er mjög athyglisvert, að úr því að jafnvel fyrirsvarsmönnum frv. finnst þetta, þá er ekki óeðlilegt, að við hinir, sem sjáum enn þá fleiri annmarka á málinu, séum á sömu skoðun. Þess vegna virðist mér allt hníga að því, að það sé eðlilegt og raunar óhjákvæmilegt að fresta meðferð þessa máls á þessu þingi og láta þá næsta þing um að gefa sér tíma til þess að íhuga allt þetta mál í öllum sínum margháttaða vanda, áður en löggjöf verður um það sett. — Það er líka á það að líta, sem hv. þm. Barð. svo réttilega bendir á, að það er allsendis ósannað, jafnvel þótt menn vilji koma á slíku jafnaðarverði, sem hér er um talað, að þá sé hagkvæmasta aðferðin sú að setja upp stórt skrifstofubákn, meira og minna á almennings vegum, hvort það er ekki miklu hyggilegra að gera einhverjar ráðstafanir til þess, að olíufélögin sjálf komi á slíkri verðjöfnun, án þess að ríkið hafi slík náin afskipti af málinu eins og þetta frv. vill gera ráð fyrir.

Hitt verð ég að segja út frá því, sem hv. þm. Barð. vildi halda fram, að olíufélögin græddu svo mikið, að þau gætu af gróða sínum tekið á sig þessa verðjöfnun, að það hygg ég sé algerlega ofmælt og á fullum misskilningi byggt. Í sambandi við lausn vinnudeilunnar á dögunum áttu sér stað viðræður við fulltrúa olíufélaganna, og þar kom fram það, sem ég hygg að ekki verði vefengt, að þessi félög hafa alls ekki svo mikinn gróða sem ýmsir vilja telja sér trú um, og að svo miklu leyti sem um gróða hefur verið að ræða, þá hefur hann verið lagður í ný mannvirki til þess að gefa almenningi kost á því að fá vöruna með hagkvæmari kjörum.

Það er mjög eftirtektarvert í þessu sambandi, þegar menn eru að tala um þennan mikla gróða olíufélaganna, og rétt að rifja það upp fyrir sér, þegar fyrst voru reistir olíugeymar hér á landi af Shellfélaginu fyrir um það bil 25 árum. Ýmsir héldu því fram, að bygging olíugeymanna við Skerjafjörð væri mjög þjóðhættulegt fyrirtæki. Því var haldið fram, að það væri nánast einhvers konar landsafsal í hendur Bretum. Gauragangurinn út af því máli minnti mest á þann hamagang, sem vissir menn hér á landi nú viðhafa út af því, að komið er upp eðlilegum vörnum í landinu, og mátti segja, að sú herferð á hendur þessu Shellfélagi væri eins konar forboði þess, sem síðar hefur orðið í annarri baráttu kommúnista hér. Nú sjá allir, að það fjármagn, sem þarna var lagt í þessa olíugeyma, hefur orðið til þess að gera olíuna stórkostlega miklu ódýrari fyrir alla landsmenn, en áður var, og þessi bygging olíufélaganna, fyrst á olíugeymum hér í Reykjavík, í nánd við Reykjavík og síðan smám saman úti um landið, er eitt mesta framfaraspor, sem hér hefur verið stigið í þessum efnum, og það að gera félögunum kleift að gera slíkar ráðstafanir, er auðvitað miklu hagkvæmara fyrir allan almenning til lækkunar á verðinu, heldur en slík opinber íhlutun, sem hér er verið að gera ráðstafanir til.

Þar fyrir utan kom í ljós í þessum viðræðum, sem menn áttu við olíufélögin, að a. m. k. tvö þeirra hafa ekki borgað arð svo að árum skiptir, og var ljóst, að a. m. k. eitt — af sérstökum ástæðum að vísu — mundi þurfa að taka á sig verulegt tap vegna þeirrar verðlækkunar, sem samþykkt fékkst í sambandi við lausn vinnudeilunnar. Það var gerð alveg grein fyrir því, og menn áttuðu sig á því, í hverju það lá, að aðilar vildu eftir atvikum taka það á sig, en það sýndi þeirra góða vilja til þess að leysa þann vanda, sem menn þá voru staddir í, en er vitanlega engu að síður staðreynd, að þannig gengur misjafnlega fyrir þessum atvinnurekstri eins og öllum öðrum. Eina olíufélagið hér, sem hefur verulegan gróða, er Olíufélagið, sem hefur veruleg millilandaviðskipti á Keflavíkurflugvelli, en í þeim viðskiptum, sem félögin hafa við landsmenn, mun ekki vera meira en svo, að sá rekstur standi undir öllum þeim útgjöldum, sem á honum hvíla, og þar með nauðsynlegri endurnýjun og aukningu tækja til þess að gera þeim fært að starfa. Ég vildi, að þessi leiðrétting kæmist hér að, úr því að hv. þm. Barð. fór að tala um þennan mikla gróða olíufélaganna, sem raunar hv. 4. landsk. þm. hafði áður vikið að og byggir till. sínar í málinu á.

Hv. þm. Barð. vildi ekki viðurkenna, að það stæði eins á um verðlagssvæðin í tryggingunum eins og varðandi þau efni, sem við ræðum hér um. Það er auðvitað svo um allt, sem tekið er til samanburðar, að það er viss mismunur, vegna þess að atvik eru ólík, — það játa ég, — en ég verð þó eindregið að halda því fram, að samtímis því, sem menn ákveða að halda þessum mismun áfram varðandi tryggingasvæðin, þá sé ákaflega óeðlilegt að gera slíka jöfnunarráðstöfun sem hér er um að ræða, og það samrýmist alls ekki að gera svo gagnstæðar ályktanir sama daginn.

Hv. þm. segir: Ja, þessu með verðlagssvæðin, því verður ekki breytt, vegna þess að stjórnin hafði gert ákveðinn samning, sem menn eru bundnir við. — Nú geri ég ráð fyrir, að það hefði að vísu alls ekki brotið á móti þeim samningi, sem menn tala um, þó að fólki úti um land hefðu verið veitt aukin hlunnindi frá því, sem í samningnum var um að ræða, þannig að sú röksemd heldur ekki í þessu sambandi. Að samningunum skal ég koma frekar á eftir. En það, sem hv. þm. sagði að væri aðalástæðan, var, að ef þessi munur væri afnuminn, þá mundi það muna ríkissjóð tugum milljóna og menn væru ekki reiðubúnir til þess að taka þann bagga á ríkissjóðinn. En ég spyr nú: Ef það munar ríkissjóð tugum milljóna að taka þann bagga á sig, þá verður það ekki gert nema með því að taka skatta af borgurunum aftur, þannig að sú skattgreiðsla hlyti að jafnast niður á borgarana og þá ekki sízt á þá, sem mesta skattana greiða, þ. e. a. s. fólkið í Reykjavík og hér í nágrenninu, og það telur hv. þm. á þessu stigi málsins vera óframkvæmanlegt og ekki hægt að gera. Ef hann og aðrir hefðu talið það verjanlegt að gera það á þessu stigi málsins, þá hefðu þeir vitanlega einhvern tíma fyrr á þinginu, en nú á þessum síðustu dögum, og í sambandi við þetta síðasta tryggingalagafrv. tekið þá hugmynd upp. Nei, þeir telja, að eins og sakir standi sé ósanngjarnt og óhóflegt að breyta lögunum frá því, sem verið hefur; það er eina skýringin á þeirra atferli. En það er alveg það sama, sem þessir hv. þm. ætla að gera varðandi það mál, sem hér um ræðir. Það er ekkert annað, sem hér um ræðir, heldur en það, að það er verið að leggja skatt á neytendurna í Reykjavík, stundum útgerðarmennina, stundum neytendurna beint, og jafnvel þótt það sé lagt á útgerðina fyrst, þá lendir það á almenningi áður en lýkur. Það er verið að leggja skatt á almenning hér í Reykjavík og við Faxaflóa fólkinu úti um land til hags. Það má segja, að þetta sé gert í ýmsum tilfellum, og það má ætíð deila um það, hvað eigi að ganga langt í þessa átt. Að vissu leyti er þetta eðlilegt og sanngjarnt, en það verða þó að vera ráðstafanir, sem í eðli sínu eru þjóðhagslega hyggilegar, en ekki þegar þær leiða til þess, eins og í þessu tilfelli, að verið er að efna til nýs og óþarfs skrifstofubákns og til þess, að aukinn kostnaður, aukið óhagkvæmi og ráðleysi verður tekið upp í stað sparnaðar og hygginda áður, og það er það, sem mestu máli skiptir í þessu efni. Það er nógu erfitt fyrir fólkið í þéttbýlinu að borga slíkar álögur og skatta, sem hér er um að ræða, ef það fer til nytsamlegra hluta, við skulum segja brúabygginga, jarðræktarstyrkja, símalagninga og ýmissa slíkra framkvæmda, sem eru nauðsynlegar og hollar. En ef það fer til þess að auka á kostnað við vörudreifingu, til þess að á almenningi lendi kostnaður, sem ella hefði með eðlilegum hætti verið borinn uppi af aðilum sjálfum, þeim raunverulega að kostnaðarlausu, er það óhyggileg og óverjandi ráðstöfun, en það er það, sem verið er að gera með þessu frv., og þess vegna er þetta frv. út af fyrir sig ákaflega óhyggilegt, ósanngjarnt og þarfnast miklu rækilegri athugunar við en hægt er að gera á þeim fáu dögum þingsins, sem eftir eru.

Ég skal nú ljúka máli mínu. Ég veit, að hv. þm. Barð. er viðbundinn, og ég vil ekki halda honum hér lengur en vert er, hvort sem menn vilja halda fundinum áfram eða ekki. En ég vil aðeins segja örfá orð út af því, sem hv. þm. Barð. talar um, að það hafi verið gerður samningur á bak við þingið, sem mönnum nú eftir á sé sagt að standa við, varðandi tryggingarnar. Það má auðvitað deila um það, hvað sé samningur í þessum efnum og hvað menn þurfi að standa við af því, sem aðrir hafi gert. Ég vil hins vegar fullyrða, án þess að bera nokkuð á móti því, sem hv. þm. hefur sagt, að varðandi meginatriði þeirrar lausnar vinnudeilunnar, sem varð, þá var það gert í samráði við stuðningsflokka ríkisstj. um meginatriðin. Auðvitað er ekki hægt að ætlast til þess, að einstakir þm. á því stigi málsins gætu athugað til hlítar, hvað fólst í einstökum atriðum þess, sem þeim var sagt frá, — það ætlast enginn til þess, — en eftir því sem atvik stóðu til og mögulegt var, þá var haft fullt samráð við hv. alþm. um lausn þess máls.