03.02.1953
Efri deild: 64. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1544 í B-deild Alþingistíðinda. (2189)

40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni

Forseti (BSt):

Út af ummælum hæstv. ráðh. um það, að þetta frv. sé rekið hér áfram með ofurkappi, vil ég geta þess, að ég get ekki tekið slíkt til mín. Hér er frv. á dagskrá afbrigðalaust, og ég sé ekki, að það hafi verið rekið neitt óeðlilega áfram frá minni hendi. Oftar en einu sinni hefur þetta mál verið tekið af dagskrá samkv. ósk.