03.02.1953
Efri deild: 64. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1549 í B-deild Alþingistíðinda. (2192)
40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ræða hv. þm. Barð. sannaði mjög ljóslega það, sem ég hef sagt, að það eru mörg atriði, sem eru mjög óupplýst í þessu máli enn þá, og þess vegna þarfnast frv. miklu nánari athugunar, en það hefur enn þá fengið. Það er að vísu svo, að bæði hæstv. forseti og hv. þm. Barð. mæla því mjög á mót, að þetta frv. sé rekið hér áfram af óeðlilegri hörku og hraða. Ég vitna einungis til ummæla eins af hv. nm., hv. 4. landsk. þm., sem lýsti yfir því hér í þd. fyrir helgina, að málið hefði verið afgreitt með þeim hætti í n., að það hefði verið á hlaupum, það hefði ekki fengizt reglulegur nefndarfundur um málið, enn þá síður íhugun þess mikla vanda, sem hér er um að ræða, heldur hefðu menn á hlaupum hitzt og samið nál., sem að vísu ganga nú mjög á við og dreif. Við vitum það hins vegar, að ætlunin er sú, að nm. íhugi mál af skynsemd og í næði, a. m. k. tylli sér niður, á meðan þeir eru að athuga þau mál, sem þeim eru fengin til umsagnar, en við höfum yfirlýsingu eins nefndarmanns, sem ekki hefur verið á móti mælt, því síður hnekkt, um það, að þessi sjálfsagða aðferð hafi ekki fengizt um þetta mál. Hv. nm., sem eru frv. fylgjandi, taka ekki heldur undir það að fá til íhugunar þær brtt., sem ég hef hér borið fram. Ef þeim væri í mun að athuga þetta mál, en ekki beita ofurvaldi á þingi til þess að knýja það í gegn, þá mundu þeir vitanlega taka sér þótt ekki væri nema stutta stund til þess að lesa sjálfir yfir þær brtt., sem hér hefur verið lýst og greinilega kom fram af ummælum hv. þm. Barð. a. m. k., að hann hafði alls ekki gert sér neina grein fyrir, hvað í fólst. Hann bar líka fram ýmsar spurningar og spurði réttilega um það, alveg á sama veg eins og ég: Ef á að setja löggjöf um þetta, þetta, þetta og þetta, þarf þá ekki að setja löggjöf um önnur atriði til viðbótar? Það er einmitt alveg nákvæmlega það sama, sem ég hef verið að halda hér fram í d. í dag og undanfarna daga, að hér er tekinn aðeins einn lítill angi af stóru máli, borið fram frv. um lausn á þeim litla hluta málsins, en sjálf meginatriðin látin óleyst og án þess að afstaða sé tekin til þeirra. Það er slík afgreiðsla, sem ég tel Alþ. vera með öllu ósæmandi, og þess vegna hef ég með mínum ummælum reynt að stuðla að því, að málið væri athugað frá fleiri hliðum og gaumgæfilegar, en þessir hv. þm. virðast vilja gefa sér tíma til.
Hv. þm. Barð. hélt því mjög eindregið fram, að það ætti ekki að setja upp neitt skrifstofubákn hér samkvæmt þessu frv., heldur væri í lófa lagið fyrir olíufélögin sjálf að taka að sér þá verðjöfnun, sem hér um ræðir, en samkv. frv. eiga olíufélögin alls ekki að hafa þessa verðjöfnun með höndum. Hv. þm. vakti athygli á þessu sama atriði, — ég hygg, að það hafi verið annaðhvort á föstudag eða laugardag s. l. Ég benti þá á, að ef hann vildi fylgja þessu eftir, ætti hann að breyta frv. til samræmis við þetta, og það þyrfti einmitt að íhuga málið sérstaklega út frá því sjónarmiði. Hann hefur ekki fengizt til þess.
Um daginn gerði hann sér grein fyrir, að þetta, sem hann vill og telur eðlilegt, felst ekki í frv. Nú, þegar komið er fram á þriðjudag, segir hann, að þetta sé vel hægt samkvæmt frv., að félögin eigi sjálf að taka þetta að sér og það þurfi ekkert skrifstofubákn til þess að annast þetta. En hvað segir frv. sjálft, með leyfi hæstv. forseta? Í 2. gr. segir:
„Greiða skal verðjöfnunargjald af olíu og benzíni, sem keypt er til landsins. Gjald þetta ákveður viðskmrn. fyrir missiri í senn, og sé upphæð þess við það miðuð, að gjaldið nægi til að greiða flutningskostnað á því magni af olíu og benzíni, sem þarf að flytja frá innflutningsstöðum til annarra útsölustaða, svo að fullnægt verði eftirspurn eftir þessum vörum hvar sem er á landinu. Verðjöfnunargjaldið reiknast af seldu magni af olíu og benzíni, og skulu olíufélögin og innflytjendur greiða gjaldið til viðskmrn. ársfjórðungslega.“
Þarna er sem sagt um það að ræða, að innflytjendurnir, olíufélögin, eiga að gjalda tiltekinn skatt af höndum til ákveðinna ríkisstofnana, til viðskmrn. Þetta er ekkert annað en sérstök skattheimta, sem alls ekki lendir á olíufélögunum, heldur á neytendunum, og síðan segir í 3. gr., hvernig eigi að fara með:
„Verðjöfnunargjald samkv. 2. gr. skal leggjast í verðjöfnunarsjóð. Úr verðjöfnunarsjóði skal greiða flutningskostnað á olíu og benzíni frá innflutningsstöðum til annarra útsölustaða. Viðskmrn. annast greiðslur úr sjóðnum eftir reglum, er það setur með reglugerð.“
Og það er ekki svo einu sinni, að viðskmrn., sem á nú að taka við fénu, eigi að geyma það, enn síður olíufélögin, eins og hv. þm. sagði. Nei, samkv. seinni málsgr. 3. gr. skal þetta fé, sem á hverjum tíma er í verðjöfnunarsjóði, ávaxtað í banka á sérstökum reikningi. Og í 4. gr. segir enn fremur um þetta:
„Nú verður afgangur í verðjöfnunarsjóði í árslok, og skal hann þá yfirfærast til næsta árs. Ef tekjur sjóðsins eitthvert ár hrökkva ekki fyrir öllum gjöldum samkv. 3. gr., skal greiða það, sem á vantar, af fyrstu tekjum sjóðsins næsta ár.“
Það er sem sagt greinilegt og óumdeilanlegt, að þarna er verið að setja upp sérstakan sjóð, sem á að vísu að vera undir eftirliti og stjórn viðskmrn., en á að geymast í banka. Eins og ég hef margoft tekið fram, þá er það, sem hér er um að ræða, ekkert annað en það, að fulltrúar tiltekinna héraða á landinu nota sitt þinglega fylgi til þess að leggja skatt á þá menn, sem búa í þeim héruðum landsins, sem hafa að tiltölu of fáa þingmenn. Vegna þess, að þm. utan af landsbyggðinni eru hlutfallslega fleiri miðað við fólksfjölda heldur en rétt er, þá hafa þeir gert bandalag sín á milli til þess að skattleggja með þessum sérstaka hætti íbúa Reykjavíkur og þá, sem búa hér umhverfis Faxaflóa. Það er ekkert annað, sem í þessu frv. felst. Það er verið að taka með löggjöf úr vasa íbúanna hér peninga til þess að afhenda íbúunum úti á landi.
Ég hef oft tekið það fram áður í þessum umræðum, að það getur verið mjög skynsamlegt og verjanlegt og að meginstefnu til algerlega rétt að jafna lífskjörin á milli manna, bæði innan tiltekinna byggðarlaga og í mismunandi byggðarlögum, og mikið af ríkissjóðnum gengur einmitt til þess að gera slíkar ráðstafanir, en þá er það gert með heildarhagsmuni fyrir augum, þá er það gert til þess að gefa fólkinu úti á landi færi á því að fá lagða vegi, byggðar brýr, fá síma, stunda jarðrækt og ýmiss konar aðrar þarfar og hollar framkvæmdir. Það er mjög eðlilegt og skiljanlegt, að fé úr þéttbýlinu, þar sem fólkið sýnist komast betur af í bili, sé á þennan hátt varið til þess að bæta lífskjör manna úti um land og gera mögulegt, að byggð haldist þar við. Þessari stefnu er ég algerlega sammála. En ég er hinu algerlega ósammála, sem hér er ætlazt til að gert sé, að ríkið taki eina vörutegund út úr, geri ráðstafanir til þess, að flutningur hennar um landið verði óhagkvæmari og dýrari, en hefur verið fram að þessu, eins og margsannað er, vegna þess að fyrsta afleiðingin af þessu frv. verður sú, að ýmiss konar aðilar, sem fram að þessu hafa talið sér nauðsyn að taka vöruna þar, sem hún var ódýrari, missa nú alla löngun í þessa átt og leggja það yfir á þennan sjóð að standa undir flutningskostnaðinum. Jafnvel hv. þm. N-M., sem ég hef nú ekki talið skarpvitrari eða skeleggari mann í neinn heldur en hv. þm. Barð., sá þetta og játaði. Hann játaði meira að segja, að það væri svo mikil hætta af spillingu hugarfarsins í sambandi við þessa löggjöf hjá sumu fólki, að hann bauðst til þess að taka að sér einhvers konar umferðarprédikunarstarf til þess að brýna fyrir fólki óeigingirni og góða lifnaðarhætti. Ég játa, að ég hélt því fram, þegar þetta tilboð kom fram frá hv. þm. N-M., að það væri lítils virði og hann með sínum orðum, þótt kraftmikil séu, mundi ekki vega á móti því ranglæti, sem í þessu frv. felst. En hv. þm. N-M. gerði sér grein fyrir hættunni og gat ekki mælt á móti því, að þetta mundi verða til þess að skapa óþarfa útgjöld og óþarfa kostnað. Jafnvel hann er víðsýnni en hv. þm. Barð.
Hv. þm. Barð. sér nú þetta öðru hvoru, öðru hvoru játar hann hreinlega það, sem er aðalatriði þessa máls, að hér er um hreina hagsmunatogstreitu að ræða milli héraða. Það er um það að ræða, að þm. ýmissa héraða vilja nota vald sitt á þingi til þess að gera óskynsamlegar ráðstafanir til þess að bæta hag sinna kjósenda. Ef þetta væru skynsamlegar ráðstafanir og ráðstafanir, sem horfðu þjóðarheildinni til góðs, þá væri sjálfsagt að vera með þessu, en af því að þetta verður til þess að gera flutning vörunnar dýrari og allt óhagkvæmara í sambandi við þetta og af því að þetta verður til þess að koma upp nýju skrifstofubákni með ærnum kostnaði, nýjum embættismannafjölda, sem hv. þm. Barð. stundum talar mikið á móti, þá held ég, að þessi aðferð til þess að bæta kjör manna úti um land sé ákaflega óhepplleg og óskynsamleg.
Hitt er svo annað mál, að ef menn vilja taka upp slíka jöfnunaraðferð eins og hér er ráðgert, þá er auðvitað sjálfsagt að jafna miklu fleiri atriði heldur en þetta eitt. Það tjáir ekki fyrir útvegsmenn utan af landi að segja: Ja, það verður að gera ráðstafanir til þess, að við fáum ódýrari olíu eða olíu með sama verði og útvegsmenn við Faxaflóa, af því að við fáum sama fiskverð og þeir. — Það er sannað og hefur ekki verið á móti því mælt t. d., að útvegsmenn hér í Reykjavík verða að borga hærra kaup en útvegsmenn víðs vegar úti um land. Það er líka sannað og óvefengjanlegt, og jafnvel hv. þm. N-M. komst ekki hjá því að játa það, að kostnaður við notkun fasteigna og annarra mannvirkja er ákaflega misjafn víðs vegar á landinu. Hér er það þannig, eins og við vitum, að það er lagt til grundvallar fasteignamat margfaldað svo og svo mikið varðandi ýmiss konar útgjöld til ríkisins, og alveg sama kemur fram varðandi mat á eigin leigu og annað slíkt og þá vitanlega einnig á húsaleigu á milli manna. Fasteignamatið í þessu sambandi er margfaldað með miklu hærri tölu í Reykjavík og á nokkrum stöðum öðrum heldur en víðs vegar úti um land, þannig að ef menn vilja koma á raunverulegum jöfnuði og sjá til þess, að menn beri raunverulega sama hlut frá borði, þá tjáir ekki að taka aðeins einn lítinn þátt þessa máls og segja: Útvegsmenn eiga í þessu efni að sitja alls staðar við sama hlut. — Þá verður að reikna dæmið alveg til hlítar.
Ég hef aðeins tekið eitt atriði um kostnaðinn af fasteignum og öðrum mannvirkjum og lagt til, að það verði stofnaður svipaður verðjöfnunarsjóður um það eins og varðandi olíuna. Ég játa það og sagði það í minni ræðu áðan, að það er auðvitað sanngjarnt að taka mörg fleiri atriði til samanburðar í þessum efnum, en einmitt þess vegna tel ég, að þetta frv. þurfi að fá miklu rækilegri íhugun en það enn hefur fengið, og það ber óneitanlega mjög mikinn keim af því, að það er sótt af ofurkappi og ekki af sanngirni eða góðvild eins og skyldi, enda kom það fram, að það var einhver illur andi, sem talaði fyrir munn hv. þm. Barð. öðru hverju í hans ræðu. Hann lét út úr sér orð, sem minntu frekar á suma lakari þm. heldur en hann, bæði mig og suma aðra, og ég ætla ekki að fara að eltast við það, en það sýnir einungis, eins og ég segi, að það eru einhver annarleg öfl, sem eru þarna að verki, en ekki hans heilbrigða og góða skynsemd, sem venjulega ræður hans till. og aðgerðum.
Fyrir mér hefur ekki vakað að tefja þetta mál með óþarfa umræðum eða málalengingum, heldur einungis að benda á þann vanda, sem hér er á höndum, og reyna að brýna fyrir þm., — ég óttast, að það sé fyrir daufum eyrum, það er alveg rétt, — en ég hef engu að síður viljað gera mitt til þess að reyna að vekja þessa menn til sanngjarnrar umhugsunar og vitundar um þá rangsleitni, sem þeir eru hér í þann veginn að fremja gagnvart vissum hluta landsfólksins, meira að segja meiri hluta landsfólksins, sem hefur ekki nógu marga þm. til þess að verja sig í slíku hagsmunatogstreitumáli eins og þessu.
Hitt er svo óvefengjanlegt, að þó að frv. allt sé til óþurftar, þá er ákvæðið til bráðabirgða til bóta. Það er til bóta vegna þess, að það frestar þó, að sú hækkun, sem á að verða á þessum vörutegundum hér í Reykjavík, komi til framkvæmda, ef það verður talið og á meðan það verður talið til riftingar á þeim kaupsamningi, sem gerður var hér fyrir jólin. Og ef ákvæðið stendur óbreytt, þá verður það til þess að draga úr líkunum fyrir því, að þeim samningi verði sagt upp og ný vinnustyrjöld hefjist til líkingar við það, sem var hér í desembermánuði og ég hélt a. m. k. að hv. þm. Barð. allra manna sízt vildi.
Ég vil nú enn á ný skora á hv. dm. að athuga þetta mál til hlítar og láta sanngirni ráða, en ekki einungis ákefðina eftir því að taka fé af samborgurum sínum til hags fyrir sína eigin kjósendur.