10.10.1952
Neðri deild: 6. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í B-deild Alþingistíðinda. (220)
3. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins
Atvmrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Eins og öllum hv. þm. er kunnugt, hafa margvísleg vandamál spunnizt af síldarleysi undanfarinna 8 ára. Meðal þeirra eru þau vandkvæði, sem hafa stafað af getuleysi útgerðarmanna til að greiða áfallið kaupgjald eftir síldarvertíðina, og á undanförnum árum hefur það getuleysi bitnað þunglega á sjómönnum, sem hlut eiga að máli og auðvitað hafa ekki haft efnalega aðstöðu til að þola þá löngu bið, sem orðið hefur á greiðslum á kaupgjaldi þeirra. Smátt og smátt hefur nú flestum orðið ljós þörfin á því að reyna að ráða bót á þessu, án þess að jafnverulegur dráttur yrði á og verið hefur á undanförnum árum, og að þessu sinni var nú eftir atvíkum ráðið skjótt og sæmilega vel fram úr málinu. Ég held það hafi verið með bréfi 9. ágúst, sem L.Í.Ú., stjórn síldarverksmiðja ríkisins og síldarútvegsnefnd skrifuðu atvmrn. og leiddu athygli að þessu vandamáli, sem að sjálfsögðu þá einnig var kunnugt rn., og gerðu um það ýmsar tillögur, hvernig fram úr skyldi ráða. Ég var nú að vísu sjálfur um þær mundir ekki heill heilsu, en gat þó haft símleiðis samband við skrifstofustjórann í mínu rn., og eftir að hann hafði talað um málið bæði við stjórn hlutatryggingasjóðsins og þá fyrst og fremst formann hennar, Davíð Ólafsson fiskimálastjóra, og einnig ýtarlegast við fjmrh. og fjmrn., þá varð að ráði að leysa málið á þeim grundvelli, sem kunnugt er og ég held að ég geri stytzt grein fyrir með því aðeins að leyfa mér að lesa hér upp örstutt bréf frá rn. til hlutatryggingasjóðs, en það sýnir efni málsins í aðalatriðum. Það bréf er dagsett 11 dögum eftir að fyrra bréfið, sem ég gat um, er dagsett, en það er skemmra á milli frá því okkur barst hið fyrrnefnda bréf og þar til þetta bréf var ritað. Bréfið er frá atvmrn. til stjórnar hlutatryggingasjóðs bátaútvegsins og hljóðar svo:
„Ráðuneytið skírskotar til samtala við stjórn hlutatryggingasjóðsins um aðstoð við síldarútvegsmenn vegna aflabrests í sumar. Sjóðsstjórnin telur eftir lauslega áætlun, að um 8–81/2 millj. kr. þurfi til þess að greiða síldveiðískipunum, sem veitt hafa með herpinót eða hringnót, þar með taldir togarar, bætur samkv. reglum hlutatryggingasjóðsins. Síldveiðideildin á í reiðufé 2 millj. og 250 þús. kr. auk stofnframlags ríkissjóðs, 21/2 millj., en skuldar hins vegar vegna bráðabirgðalána fyrir árið 1950 21/2 milljón. Ráðuneytinu er ljóst, að alger vá er fyrir dyrum, ef síldarútvegsmönnum verður ekki veitt aðstoð vegna aflabrestsins, og telur eftir atvikum rétt, að aðstoðin verði veitt samkv. reglum aflatryggingasjóðsins.
Til þess að gera sjóðnum kleift að veita aðstoð, telur ráðuneytið rétt, að eftirfarandi ráðstafanir verði gerðar:
1. Samþykki bankanna verði fengið til frestunar á greiðslu afborgana á bráðabirgðalánum frá 1950, og mun ríkissjóður taka að sér að greiða vexti af lánum þessum.
2. Ráðuneytið heimilar stjórn hlutatryggingasjóðs, að hún f.h. síldveiðideildar taki lán hjá hinni almennu fiskveiðadeild allt að 31/2 millj. kr. Lán þetta endurgreiðist af tekjum síldveiðideildarinnar, en ríkissjóður mun taka að sér bakábyrgðarlán, þannig að tryggt sé, að hin almenna fiskideild fái lánsupphæðina endurgreidda, þegar á henni þarf að halda til bótagreiðslu. Ríkissjóður mun greiða í vexti 5% af lánsupphæðinni frá lántökudegi. Hér er gert ráð fyrir, að togarar þeir, sem stunduðu síldveiðar síðastliðið sumar, fái bætur á sama hátt og síldveiðiskip í fyrsta flokki.“
Ég held, að þetta skýri í aðalefnum það ráð, sem að var hnigið og eins og ég áðan gat um, þá var þetta gert allt saman í samráði við fjmrn.
Ég skal aðeins geta þess, að það þótti ekki fært að útiloka þá togara, sem síldveiðar höfðu stundað, frá bótum úr hlutatryggingasjóðnum, enda ekki réttlátt, þó að hin almennu ákvæði hlutatryggingasjóðs eða aflatryggingasjóðs nái ekki til togara, því að togararnir eru náttúrlega, þegar þeir eru við síldveiðar, fyrst og fremst eins og önnur síldveiðiskip. Auk þess áttu hér aðallega hlut að máli skip, sem ríkissjóður hefur nú að nokkru leyti hvort eð er á sínum herðum, og það réð nokkuð, sjónarmiðinu einnig til ákvörðunar ríkisstjórnarinnar. Ég vil aðeins segja frá því, að þessar ráðstafanir hafa að því leyti komið að góðu gagni, að menn hafa fengið úrlausn vandamálanna, sem hafa þjakað fjölda sjómanna mánuðum saman, og oft raunar hefur nú endirinn orðið sá, að nokkur og ekki eðlilegur hluti af kaupgjaldi sjómanna hefur orðið eftir í vasa málfærslumanna, sem meira hafa nú litið á sinn hag, en sjómannanna og tekið að sér innheimtur á þessum kröfum þeirra á útgerðina.
Ég held þess vegna, að það hafi eftir atvikum verið vel ráðið fram úr þessum brýnu þörfum, en að vísu — og það er rétt, að menn geri sér það ljóst — vekur allt þetta mál athygli á því, að hlutatryggingasjóðurinn stendur enn ekki svo traustum fótum sem þörf er á og allir, sem að þessu máli hafa unnið og staðið, en það er sjálfsagt yfirgnæfandi meiri hluti alls Alþ., mundu óska eftir. Það er þess vegna til athugunar einnig í þessu sambandi, hvort mönnum þykir ekki nú alveg óhjákvæmilegt að gera nýjar tillögur um auknar tekjur fyrir þennan sjóð. Ég hef nú ekki viljað á þessu stigi málsins bera fram um það till., en ég beini því til n., sem fær málið til meðferðar, að taka einnig þá hlið málsins til athugunar. — Ég leyfi mér svo, herra forseti, að mælast til þess, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. sjútvn.