03.02.1953
Efri deild: 64. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1562 í B-deild Alþingistíðinda. (2200)

40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni

Páll Zóphóníasson:

Mér er ekki alveg ljóst, hvort það felst í kostnaði við útgerð, að útgerðarmaður á sumarbústað, sem kostar 780 þúsund, og tekur til viðhalds á honum og í annað svipað af rekstrinum, eða hann á jörð, sem keypt hefur verið fyrir svipað og hýst upp, og telur það líka með rekstrinum, — ég er ekki alveg viss um, hvort dómsmrh. ætlast til, að þetta sé í kostnaðinum, en það kemur ekki fram í gr. Þess vegna vil ég ekki láta telja þetta til kostnaðar og segi nei.