04.02.1953
Neðri deild: 66. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1564 í B-deild Alþingistíðinda. (2208)

40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni

Jón Gíslason:

Herra forseti. Hv. 5. þm. Reykv. taldi, að þessar brtt. væru alveg gagngerar, og kvartaði um, að þær væru ekki kunnar þdm. Það er vitanlegt, að þær eru nokkuð mikil breyting á frv. frá þeim búningi, sem það er í, þegar það kemur frá hv. Ed., en hv. þdm. eru brtt. ábyggilega gagnkunnar, því að þær eru nákvæmlega eins og frv. var afgreitt hér frá þessari hv. d., svo að þelr geta haft þær fyrir sér hvar sem er til yfirlits.