28.10.1952
Neðri deild: 16. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í B-deild Alþingistíðinda. (223)
3. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins
Frsm. (Gísli Guðmundsson):
Herra forseti. Þetta frv. er flutt af hæstv. ríkisstj. til staðfestingar brbl. frá 20. ágúst s.l., um breyt. á l. um hlutatryggingasjóð bátaútvegsins. Í frv. felast þrjú meginatriði. Í fyrsta lagi, að heimilt sé að skerða stofnfé síldveiðideildar hlutatryggingasjóðsins á árinu 1952 þrátt fyrir ákvæði l. um, að þetta stofnfé megi ekki skerða. Í öðru lagi, að ríkisstj. sé heimilt að ábyrgjast allt að 4 millj. kr. lán, sem síldveiðideildin tekur hjá hinni almennu fiskideild sjóðsins, og sömuleiðis að ákveða, að ríkissjóður greiði vexti af lánum deildarinnar. Í þriðja lagi, að togarar, sem stunduðu síldveiðar sumarið 1952, njóti bóta úr sjóðnum, en skv. l. er svo til ætlazt, að sjóðurinn greiði eingöngu bætur til bátaflotans, enda eingöngu greitt í sjóðinn af þeim afurðum, sem hann aflar. — Þessu til viðbótar, sem ég nú hef sagt, má taka það fram, að á árinu 1950 var með sérstökum l. veitt heimild til þess að skerða stofnfé síldveiðideildarinnar. Þetta stofnfé er að upphæð 2.5 millj. kr. Það kom ekki til þess á árinu 1950, að stofnféð yrði skert, heldur var sú leið farin, að sjóðurinn tók lán til greiðslu bóta, sem staðið hefur síðan, að því leyti sem hann notaði ekki sínar eigin tekjur til að greiða bæturnar. Þess vegna var það svo nú, þegar til mála kom að greiða bætur eftir sumarsíldveiðarnar 1952, að þetta stofnfé var enn fyrir hendi, og þurfti því sérstaka heimild til þess að skerða það. Það fé, sem nú hefur verið notað til þess að greiða bætur vegna sumarsíldveiðanna í ár, er samtals 6.4 millj. kr., skv. upplýsingum, sem n. hefur fengið hjá stjórn sjóðsins um það efni. Sú upphæð er þannig fengin, að það er fyrst og fremst stofnfé deildarinnar, 2.5 millj., sem nú verður notað, og þar að auki nokkrar tekjur, sem deildinni höfðu safnazt síðan 1950, og svo í þriðja lagi lán, sem stjórn sjóðsins hefur tekið með ábyrgð ríkisins skv. brbl., en ég skal taka það fram, að skv. þessum sömu upplýsingum hefur 4 millj. kr. heimildin ekki verið notuð nema að nokkru leyti. Lánin, sem síldveiðideildin hefur tekið 1950 og aftur 1952, eru nú samtals um 4 millj. kr., og af þeirri upphæð á ríkissjóður að greiða vexti samkvæmt því, sem segir í þessu frv.
Sjútvn. hefur haft frv. til athugunar og borið það saman við brbl., sem gefin voru út 20. ágúst s.l., og að lokinni þessari athugun leggur hún til, að frv. verði samþykkt.