28.10.1952
Efri deild: 16. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1579 í B-deild Alþingistíðinda. (2234)

98. mál, Búnaðarbankinn, byggingarsjóður verkamanna, lánadeild smáíbúðarhúsa o.fl.

Landbrh. (Hermann Jónasson):

Ég vildi, áður en mál þetta fer til athugunar í n., segja aðeins örfá orð, — þau verða mjög fá, — til þess að skýra málið að einhverju leyti, ef unnt er. Eins og menn vita, þá stóð von til þess, þegar byggingarsjóður og ræktunarsjóður fengu lán hjá ríkissjóði, að þeir sjóðir yrðu nægilega miklir til þess að lána út um óákveðinn tíma, langan tíma. En vegna breyt. á verðgildi peninganna urðu þessir peningar, sem ríkið lánaði byggingar- og ræktunarsjóði, ekki nema örlítill hluti þeirrar fjárhæðar, sem þurfti að lána, með vaxandi dýrtíð og vaxandi kostnaði við ræktun og byggingar. Síðan hefur þetta færzt í það horf, sem er eftirtektarvert og umhugsunarvert í sambandi við þetta mál, að það er tekið að lána byggingarsjóði og ræktunarsjóði peninga, sem stundum eru taldir eftir og stundum eru talin alveg sérstök hlunnindi fyrir byggingar- og ræktunarsjóðinn, en þetta eru 5½% lán. Ákaflega mikil hlunnindi held ég að hv. þm. þætti það, ef þeir fengju 5½% lán til 20 ára, en ættu svo að lána sömu peningana út með 2½% vöxtum allt upp í 42 ár. Haldið þið, að mönnum fyndist það ekki dásamleg hlunnindi, ef það fengist af hálfu ríkisins? M. ö. o., þegar það kom í ljós, að þessir sjóðir, sem þannig var til stofnað, að veitt voru ódýr lán af ríkisins hálfu, voru alls kostar ónógir, þá er byrjað að lána sjóðum, sem ríkið ætlar að styrkja og styðja, með 5½% vöxtum, en á þeim hvílir hins vegar sú kvöð að lána til allt að 42 ára og taka allt niður í 2½% vexti. Þetta vitanlega endar með því, sem er raunar einfalt dæmi, að sjóðirnir tærast upp á stuttum tíma með þessu móti, það liggur í hlutarins eðli og þarf ekki skýringa við. Nú er það þannig, að ríkissjóður er að reyna að útvega lán að nýju, að vísu ekki þessi ódýru lán, heldur 5½% lán eða 6% lán til sjóðanna, til þess að þeir geti lánað það út aftur með 2½%. Jafnhliða því, sem verið er að reyna að útvega þessi lán og allskostar ósýnt, að það verði hægt að ná í þessi lán, þá skulda sjóðirnir núna um 3 millj., sem þeir eiga að fara að borga ríkinu, og þetta er á sama tíma sem verið er að neita bændum um að veita þeim lán út á framkvæmdir.

Menn eiga dálítið erfitt með að átta sig á því hér í þessu landi, engu síður þm. en aðrir, og þarf einkennilega oft að minna á það, að ekki aðeins hér í þessu landi, heldur er það alls staðar talið svo, eftir því sem ég bezt veit, að það er útilokað, að landbúnaðurinn geti nokkurn tíma staðið undir jafnvaxtaháum lánum og flestir aðrir atvinnuvegir. Þetta er atvinnuvegur, sem er viðast í vexti og þarf að leggja mikið í kostnað, og í annan stað er það vitað mál, að arður af landbúnaði, þó að hann sé öruggur, er lægri en af flestum öðrum atvinnugreinum. Það var t. d. ekki neitt einkennileg pólitík í augum þess ráðh., sem núna kom frá Luxembourg og stanzaði hér í nokkra daga og var að spyrja okkur hér eftir landbúnaði, — hann upplýsti okkur um það, að það lifðu 30% af þjóðinni á landbúnaði; þeir hafa iðnað, og það eru flest hráefnin flutt inn og meira að segja kol og koks sem nauðsynlegur aflgjafi; þeirra iðnaður stendur nú samt sem áður mjög vel, af því að þeir hafa það mikla og langa æfingu og eru framúrskarandi iðnaðarmenn, — það var ekkert einkennileg pólitík frá hans hendi, þegar hann sagði okkur það, að þeir borguðu á hverju ári, Luxembourgarmenn, sem eru helmingi fleiri en við, 150 millj. í styrki til bænda og enginn bóndi borgar skatt. Þeir töldu þetta alveg sjálfsagða pólitík og heppilega fyrir þá þar. Það þyrftu 30% af þjóðinni að vera við þessa atvinnugrein og þeir teldu það eðlilega og mjög skynsamlega ráðstöfun. Og svo mikið er víst, að þó að þeir reki þessa fjármálapólitík, sem ég er hræddur um að ýmsum hér mundi þykja einkennileg, þá standa þeir nú það vel í fjármálum, að þeir hafa ákaflega sterka utanríkisverzlun og eru mjög sterklr fjármálalega, þannig að þeir hafa enga þörf fyrir lán frá útlöndum í neinni mynd. Þessi pólitík er frá þeirra sjónarmiði, sagði hann, sjálfsögð, meðan aðrar atvinnugreinar standa þannig, að þær geti staðið undir því, því að ef við missum þennan litla landbúnað, sem við höfum, þá er þjóðin illa stödd. Það er ábyggilegt. Við getum vitanlega flutt inn mjög ódýrar landbúnaðarvörur. Það er ásókn um það frá Hollandi, en við gerum það alls ekki hér.

Við verðum að reka okkur á það í sambandi við umhugsunina um landbúnaðinn, hvort sem það er hér eða annars staðar, að hann gefur minni arð en aðrar atvinnugreinar. Hann gefur öruggan arð, og hann er ákaflega sterk undirstaða að ýmsu leyti fyrir okkar þjóðfélag, og með þeim huga verðum við að athuga þetta frv., sem hér liggur fyrir, og ég vil ekki heldur að fyrra bragði efast um, að það verði gert.