28.10.1952
Efri deild: 16. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1582 í B-deild Alþingistíðinda. (2236)
98. mál, Búnaðarbankinn, byggingarsjóður verkamanna, lánadeild smáíbúðarhúsa o.fl.
Landbrh. (Hermann Jónasson):
Herra forseti. Það, sem ég sagði áðan, var það, að erlendur ráðamaður hefði sagt, að þeir mundu þar í landi halda áfram að borga allt að 150 millj. ísl. króna í beina styrki til bænda árlega, meðan aðrir atvinnuvegir stæðu undir því, og teldi það hyggilega fjármálapólitík. Þetta heimfæra tveir hv. alþm., sem hér hafa talað, upp á frv., sem hér liggur fyrir. Þeir spyrja um það, hvort eigi að greiða íslenzkum bændum svo og svo háar upphæðir, sem koma frá þjóðinni og þá frá öðrum atvinnugreinum, í styrki.
Ég vil vekja athygli á, að það er ekki verið að spyrja um það í þessu sambandi. Það, sem verið er að spyrja um, er það, hvort bændur eigi hér eins og alls staðar annars staðar að hafa lægri vexti en aðrar atvinnugreinar. Það er það, sem verið er að spyrja um, og það er ekkert hliðstætt við það, hvort það eigi að borga bændum svo og svo stórar fjárhæðir í bein fjárframlög, í meðgjöf með sinni framleiðslu. Og ég vil spyrja hv. alþm., sem hér hafa talað í þá átt, að það væri óþarft að bera þetta frv. fram, og komið þar með ýmsar mótbárur, sem ég skal minnast á, — ég vil spyrja þá að því, en ekki aðeins þá, sem hafa talað, heldur alla þá, sem eiga eftir að greiða atkv. um þetta frv., hvort þeir viti til þess, að það sé til nokkurt land hér nálægt okkur, þó að þau séu miklu betri landbúnaðarlönd en Ísland, að bændurnir þar greiði ekki langtum lægri vexti en nokkur önnur atvinnugrein. Ég vil gjarnan, að mér væri bent á þetta af einhverjum þm., ef það er svo í raun og veru, að bændur í einhverju nálægu landi greiði jafnháa vexti og aðrar atvinnugreinar. Ég minnist þess, að þegar tekið var að reyna að sjá fyrir því, að bændur greiddu hér lægri vexti en aðrar atvinnugreinar, eins og mun vera annars staðar, þá höfðu t. d. Norðmenn komið því skipulagi á hjá sér áður. Og þegar við erum að ræða þetta, þá erum við ekki að ræða um bein fjárframlög frá ríkinu; við erum að ræða um það, hvort íslenzkir bændur eigi að þessu leyti að búa við sömu kjör eins og stéttarbræður þeirra annars staðar, sem þó búa í löndum, sem eru betri landbúnaðarlönd en Ísland. Það er þetta, sem málið raunverulega snýst um. Þó að þau rök, sem ég bar hér fram fyrir því, að sjóðirnir, sem Búnaðarbankinn hefur yfir að ráða, mundu eyðast, ef sjóðirnir héldu áfram að taka lán með háum vöxtum og lánuðu með lágum vöxtum, væru notuð í rökum andstæðinganna á annan hátt en leyfilegt er, og þarf ekki að svara því, þá hlýtur það að liggja í augum uppi fyrir þá, sem vilja taka þessum rökum rétt, að um leið og sjóðirnir eiga að greiða til baka með vöxtum til ríkisins þá sjóði, sem upphaflega var álitið að mundu verða nægilegir til þess að veita bændum lán með lágum vöxtum, eða nánar tiltekið 2½%, — um leið og sjóðirnir byrja að ekki aðeins endurgreiða þetta, heldur taka á sig í vaxandi mæli vaxtamun á 5½% stuttum lánum og útlánum aftur, sem eru 2½% og allt upp í 42 ár, þá er útilokað, að sjóðirnir geti gert þetta, þeir étast upp, og þeir geta ekki veitt bændum þau lán, sem ætlazt var til með löggjöfinni, sem um sjóðina var selt. Og ég vil nú aftur spyrja, og ég álit, að sú spurning sýni fram á, að hér er ekki verið að fara með neina fjarstæðu: Vill einhver af hv. alþm. — það getur verið, að það sé af vanþekkingu minni — benda mér á einhverja sjóði eða einhverjar lánsstofnanir, sem lögð er sú kvöð á herðar að taka lán með háum vöxtum og til stutts tíma og lána út aftur á þennan hátt? Í hvaða atvinnugrein er þetta? Til dæmis er það þannig með stofnlánadeildina, að hún fær sín lán með 2½% vöxtum, eða er það ekki rétt? Ég fullyrði það, og ég vil biðja hv. þm. að athuga þetta gaumgæfilega, að það er hvergi til, að atvinnugrein eins og sjávarútvegurinn, sem yfirleitt er að vísu hér stórtækur í töpum og gróða, búi við hagkvæmari vaxtakjör en landbúnaðurinn. Það er ekki hægt að búa við þá reginfjarstæðu að láta sjóð, sem átti að lána út peninga til framleiðslu og til þess að koma upp nýjum atvinnutækjum, búa við lakari vaxtakjör en þau, sem hann lánar út með. Við verðum þess vegna að horfast í augu við það, að eftir að búið var að veita ræktunarsjóði og byggingarsjóði tvö lán til stutts tíma með háum vöxtum, sem var talið að mundi vera óþarfi, þegar sjóðirnir voru stofnaðir í upphafi, — það var talið, að það framlag, sem lagt var til sjóðanna, mundi verða nægilegt, — og nú er í aðsigi að taka þriðja lánið með háum vöxtum og til stutts tíma, og sjóðunum er lagt það á herðar að lána þetta út aftur á þann hátt, sem ég hef margtekið fram, þá er verið að eyða sjóðunum, og það er það, sem menn verða að gera sér ljóst, hvort þeir vilja eða vilja ekki.
Seinasta búnaðarþing og fundur Stéttarsambands bænda gerðu ályktun um þetta, því að þau tóku eftir því, að það var ekki spurning um það, hvort bændur fengju 2½% lán framvegis, það var bara spurningin um, hvort á að loka sjóðunum eftir stuttan tíma með því að halda áfram þessari pólitik. Til dæmis getum við allir, sem hugsum um íslenzkan landbúnað, ekki horft þegjandi á það, að það er ekki hægt að lána núna út á eðlilegar framkvæmdir og umbætur í landbúnaði, og er hver eftir annan rekinn til baka út af því, og á sama tíma standa sjóðirnir í 3 millj. kr. skuld við ríkissjóð, sem þeir geta ekki staðið skil á. Er hægt að horfa á þessa pólitík áfram? Og er hægt að reka þá pólitík gagnvart íslenzkum landbúnaði að láta hann borga hærri vexti en landbúnaður borgar annars staðar? Ég efast um, að menn almennt hafi á sama hátt og Stéttarsambandið og Búnaðarfélagið gert sér þetta ljóst, og ég vil bæta því við þetta, sem ég hef sagt, að ég hef einmitt vegna áskorana Stéttarsambandsins og Búnaðarfélagsins látið reikna út, hvað langan tíma það tekur, að sjóðirnir eyðist með þessu móti. Sá útreikningur liggur fyrir, og sjálfsagt getur n., sem fer með þessi mál, fengið yfirlit yfir það.
Við skulum gera okkur það alveg ljóst, að þessari stefnu er ekki hægt að halda áfram, ef á að veita íslenzkum landbúnaði lán í framtíðinni. Og hverjar aðrar atvinnugreinar geta staðið undir slíku? Þegar talað er um þetta eða hitt, sem gert er fyrir eina eða aðra atvinnugrein, þá er það nú sannast að segja nokkuð teygjanlegt reikningsdæmi, og ég ætla nú ekki að fara að rekja það hér. En ég vil aðeins minna á það, að við mundum æði oft þurfa að spyrja sjálfa okkur svona á þessu þingi og mundum hafa þurft að spyrja okkur á undanförnum þingum, ef við hefðum alltaf hugsað þannig. Þegar eitthvað hefur komið fyrir sjávarútveginn, þá vitum við það, að enginn okkar hefur séð eftir nokkrum tugum milljóna, sem lagðar hafa verið fram til þess að koma í veg fyrir það, að þessi atvinnugrein stöðvaðist, og sú upptalning yrði æði löng, ef við ættum að byrja á að telja það allt saman upp, svo að það yrði ekki milljónatugir, heldur yrði það nú eitthvað meira en tugir milljóna. Og þetta stafar af því, að ég held, að við höfum lagt spurninguna miklu réttar fyrir okkur heldur en hún er lögð hér fram í þessari hv. d. Við höfum spurt sjálfa okkur að því, þegar þurft hefur að halda jafnvægi milli islenzkra atvinnugreina og ein atvinnugreinin hefur verið verr stödd en önnur, eins og þarna liggur fyrir að verður, ef sjóðurinn er látinn eyðast upp, — þá höfum við spurt okkur að því, hvort við hefðum efni á því að láta þróunina í einni atvinnugrein stöðvast. Þannig höfum við spurt, þegar við höfum verið að tala um aðrar atvinnugreinar. Þegar við settum lögin um bátagjaldeyrinn, — við vitum ósköp vel, að hann er tekinn úr vasa almennings, hann er tekinn af almannafé, ef við viljum orða það svo, nokkrir tugir milljóna á ári, — þá spurðum við ekki að því: Hafa aðrar atvinnugreinar efni á þessu? Hefur fólkið efni á að borga þetta? Eða þegar uppbætur eru borgaðar á fiskframleiðsluna, eins og aðrir hafa viljað gera, þá hefur ekki verið spurt um þetta, heldur hefur verið spurt að því: Höfum við efni á því að láta bátaflotann stöðvast? Þannig hefur spurningin verið lögð fyrir, og ég vil biðja hv. alþm. að spyrja á svipaðan hátt, þegar þeir hugsa þetta mál og ræða það: Höfum við efni á því að láta þá þróun, sem nú er að gerast í íslenzkum landbúnaði, — þróun, sem lofar miklu, — hefur þjóðin efni á því að láta hana stöðvast með því að veita íslenzkum landbúnaði lakari vaxtakjör, en landbúnaði annars staðar í þeim löndum, sem þó er betra að búa í? Það er fyrirsjáanlegt, að ef sjóðirnir verða látnir étast upp á þennan hátt, sem ég hef nú margendurtekið, þá vofir ekkert annað yfir en þetta, og það er það, sem verið er að reyna að fyrirbyggja með þessu frv., sem hér liggur fyrir.