03.02.1953
Efri deild: 65. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1595 í B-deild Alþingistíðinda. (2244)
98. mál, Búnaðarbankinn, byggingarsjóður verkamanna, lánadeild smáíbúðarhúsa o.fl.
Frsm. (Karl Krístjánsson):
Herra forseti. Það var snemma á þessu þingi, sem ég ásamt hv. 2. þm. S-M. og hv. 8. þm. Reykv. flutti þetta frv. Það er búið að vera lengi til athugunar í hv. fjhn. Nú leggur n. til einróma, að það verði samþ., en með dálitlum viðauka.
Ég gerði allrækilega grein fyrir efni frv. hér í þessari hv. d. við 1. umr. Sé ég því enga nauðsyn til bera að hafa nú langa framsögu, enda n., sem það hefur haft til athugunar, sammála og naumur orðinn tími fram til þingslita.
Þó vil ég með örfáum orðum minnast á viðauka þann, sem n. leggur til að tekinn verði upp í frv. — Brtt. n. eru tvær. Fyrri till. hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Aftan við 1. gr. kemur ný gr., svo hljóðandi: Þær 4 millj. kr., sem lánaðar hafa verið af greiðsluafgangi ríkissjóðs 1951 til útrýmingar heilsuspillandi íbúða samkv. 3. kafla laga nr. 44 1946, skal ríkisstj., jafnóðum og þær endurgreiðast, lána að nýju til sams konar framkvæmda. Sama gildir um ógreidda vexti til ríkissjóðs af þessu fé.“
Seinni till. er um breytingu á fyrirsögn frv. til samræmis við efnisviðbótina, sem fyrri till. felur í sér.
Þegar ráðstafað var tekjuafgangi ríkisins frá 1951 með lögum, þá var ákveðið, að 4 millj. skyldu ganga til lána handa sveitarfélögum til útrýmingar heilsuspillandi íbúða samkv. 3. kafla l. nr. 44 frá 1946. Þar sem þetta er eina upphæðin, sem ekki er í frv. af upphæðum þeim, sem varið var til útlánastarfsemi af tekjuafganginum, þá þótti n. rétt að leggja til, að sú upphæð yrði tekin inn í frv. líka.
Væntir n. þess, að hv. þd. fallist á að samþ. frv. með þessari breytingu.