03.02.1953
Efri deild: 66. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1596 í B-deild Alþingistíðinda. (2246)

98. mál, Búnaðarbankinn, byggingarsjóður verkamanna, lánadeild smáíbúðarhúsa o.fl.

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég sé, að hæstv. forseti hefur lýst því, að hér yrði tekið fyrir á dagskrá til 3. umr. frv. um Búnaðarbankann. Það var fullkomið samkomulag í hv. fjhn., að frv. um Búnaðarbankann annars vegar og frv. um Iðnaðarbankann hins vegar skyldu fylgjast að út úr þessari hv. d. hér og að öðru málinu skyldi ekki hraðað frekar en hinu. Ég vil því óska þess við hæstv. forseta, að málið sé tekið út af dagskrá nú. Ég hef enga ástæðu til þess að bera traust til þeirra manna, sem berja þetta mál hér fram nú og hafa lofað í n., að málin skyldu fylgjast að, eftir að komið hefur yfirlýsing um það frá hæstv. ráðh., að hann ætli sér að, — ja, maður veit ekki hvað, e. t. v. að stoppa málið, það veit ég ekki. En ég óska mjög eftir því, að málið sé tekið út af dagskrá og haldin séu þau loforð, sem voru samþ. og lofað í fjhn.