03.02.1953
Efri deild: 66. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1596 í B-deild Alþingistíðinda. (2248)

98. mál, Búnaðarbankinn, byggingarsjóður verkamanna, lánadeild smáíbúðarhúsa o.fl.

Landbrh. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Ég býst við, að það hafi kannske ekki verið athugað, enda hef ég komizt að því, að sumir hv. þm. hafa ekki athugað það, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, um Búnaðarbankann, á eftir að fara gegnum 4 umr.: eina í þessari hv. d. og 3 í hinni. Hins vegar á frv. um Iðnaðarbankann eftir að fara gegnum eina umr. hér í þessari hv. d. Það væri því nógur tími til að stöðva þetta mál, sem hér liggur fyrir, ef það lægi fyrir. En þess vegna er það, að hér er eingöngu verið að Ijúka þessu máli til þess að flýta fyrir vinnubrögðum í þinginu og koma í veg fyrir, að þetta mál tefjist sérstaklega. Ég get jafnframt upplýst það, að sú yfirlýsing, sem fjmrh. gefur hér, er, að ég hygg, eingöngu í samræmi við yfirlýsingu, sem kemur þar með frá allri ríkisstjórninni, um atriðið, en alls ekki að reyna á nokkurn hátt að stöðva málið, sem auðvitað kemur ekki til mála.