03.02.1953
Efri deild: 66. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1599 í B-deild Alþingistíðinda. (2254)

98. mál, Búnaðarbankinn, byggingarsjóður verkamanna, lánadeild smáíbúðarhúsa o.fl.

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Ég verð að segja það, að ég kann ákaflega illa þeirri tortryggni, sem bæði hefur komið hér fram gagnvart mér sem forseta og frá a. m. k. einum hv. meðnm. mínum í fjhn. til mín sem form. n. Ég vil biðja hv. þm. Barð. að gera grein fyrir því, hvaða ástæðu hann hefur til þess að væna mig um að svíkjast að mönnum um mál, sem ég er búinn að lofa fylgi, eða að ég muni sitja á svikráðum við það. Við erum nú búnir að vera nokkur ár á þingi, og ég held, að hann hafi enga slíka reynslu. Ég skildi ummælin í fjhn. þannig, að þessi mál ættu að vísu að fylgjast að, þannig að menn væru með þeim báðum, en eins og hér hefur verið tekið fram af tveimur hæstv. ráðh., þá geta nú ekki málin fylgzt að algerlega. Annað er búið að ganga í gegnum Nd., en hitt ekki. Þegar tvær umr. eru búnar enn um Iðnaðarbankann, þá er það orðið að lögum, en þá á þetta frv. eftir að ganga í gegnum hv. Nd.

Nú dettur mér ekki í hug að halda það, þótt atvik hefðu legið svo, að frv. hefðu getað orðið hér samferða, að það hefði verið neitt svikizt um það að afgr. þetta mál. Mér dettur ekki í hug að halda það. En það er, eins og allir sjá, miklu meiri ástæða samt til að búast við því, það er miklu hægara að gera það. Ég kann þessu mjög illa, og ég mun að vísu, úr því að þetta hefur fram komið, sem forseti fresta þessu máli til næsta fundar, en sú eina ástæða, sem fram hefur komið til þess að gera slíkt, er yfirlýsing hv. 4. þm. Reykv. um það, að hann óski að bera fram brtt. Hitt, þessi tortryggni, finnst mér svo að segja alveg dæmalaust. En hvað snertir þessa ástæðu hv. 4 þm. Reykv., að hann segist nú þurfa að bera fram brtt., þá er það að vísu ákaflega undarlegt; hann hafði marga mánuði til þess að bera fram brtt. fyrir 2. umr. málsins.