07.11.1952
Efri deild: 22. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1190 í B-deild Alþingistíðinda. (2272)

132. mál, lausn ítaka af jörðum

Frsm. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti. Þetta frv. er nú að efni til gamall kunningi hér í d., hefur oft legið fyrir henni og alltaf verið hér samþ. í einhverri mynd. Í fyrra strandaði það í Nd. Það var sent þaðan til lagaprófessoranna við Háskóla Íslands, og kom grg. um frv., eins og það þá var, frá próf. Ólafi Lárussyni, sem hafði ýmislegt við það að athuga, aðallega þó að orðalagi, en ofur lítið líka að efni. Þessi grg. hans í fyrra varð orsök til þess, að frv. dagaði þá uppi í Nd.

Hæstv. landbrh. tók svo frv. og sendi það búnaðarþinginu, sem reyndar hefur alltaf mælt með því, og óskaði eftir, að það skipaði tvo menn, ásamt einum, sem hann tilnefndi sjálfur, til að taka frv. til athugunar enn á ný og reyna að færa það í þann búning, sem menn gætu fellt sig við. Þetta var gert, og var próf. Ólafur Lárusson skipaður í n. af landbrh. og formaður hennar. Og frv. í því formi, sem það liggur hér fyrir, er að orðalagi til algerlega hans verk og að efni til mest líka. Það er ekki margt nýtt í því efnislega frá því, sem áður hefur verið hér í d. Það má kannske helzt telja það, að undanskilin kaupréttinum eru ítök, sem eru yngri en 25 ára; það var ekki í frv., sem hér hafa legið fyrir áður. Að öðru leyti held ég, að það sé ekkert nýtt í því. Það er dálítið öðruvísi orðað og öðruvísi uppbyggt og vafalaust með betra lagamáli heldur en það hefur verið áður. Og ég vænti þess, að d. muni vera tiltölulega fljót að afgr. það. Landbn. hefur ekki tekið afstöðu til þess á fundum sínum. Hún var sammála um að flytja það, og ég hygg, að hún muni taka það fyrir og semja um það nál., hvort sem því verður vísað til hennar eða ekki, — það skiptir ekki máli í því sambandi, — en það er kannske réttara að gera það samt, formlegra, eftir þeirri venju, sem nú hefur verið hér upp tekin. Mun hún þá reyna að afgr. það tiltölulega fljótt eftir helgina, svo að það geti þá komið hér til 2. umr.

Ég skal ekki fara langt út í þessi margs konar ítök, sem til eru, mörg bara að nafninu og mörgum til leiðinda og skapraunar út frá ýmsu, sem gerist í sambandi við þau, og hver þörf er á, að þetta frv. verði samþykkt, — ég hef svo oft gert það áður, og skal því alveg leiða það hjá mér. En ég vona, að menn geti sætt sig við frv. í þessum nýja búningi. Og að minnsta kosti þeim aðfinnslum, sem próf. Ólafur Lárusson kom með í fyrra og gerðu að verkum, að það strandaði þá í Nd., verður ekki hægt að beita núna, því að þær eru allar komnar fyrir kattarnef með frv. í þessari mynd, sömdu af prófessornum.