10.12.1952
Sameinað þing: 24. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í D-deild Alþingistíðinda. (2332)

97. mál, fiskveiðar á fjarlægum miðum

Frsm. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Till. sú, sem hér um ræðir, gerir ráð fyrir því, að ríkisstj. verði falið að athuga, hvernig bezt verði hægt að bæta aðstöðu íslenzkra skipa og sjómanna, er stunda fiskveiðar á fjarlægum miðum. Í grg. till. er tekið fram, að fyrst og fremst sé höfð hér í huga aðstaða íslenzkra fiskiskipa og sjómanna við Grænland.

Svo sem öllum hv. þm. er kunnugt, þá gerist nú það meir og meir, að íslenzk fiskiskip sækja á fjarlæg mið, og hefur það sérstaklega komið til greina eftir að hinir stórvirku togarar hafa komið til landsins og hafið veiðar. Þessi skip hafa aðstöðu til þess að sækja langar leiðir til veiða, og eru einmitt meðal annars kaup þeirra til landsins byggð á því, að þeim sé kleift að stunda slíkar veiðar.

Nú er það einnig svo, að með stækkun landhelginnar, sem útilokar botnvörpuveiðar innan hinnar nýju landhelgislínu, vex að sjálfsögðu nauðsyn þess, að togurunum og hinum stærri veiðiskipum sé tryggð sem bezt aðstaða til að stunda veiðar fjarri landi, og svo sem í grg. er að vikið, eru það auðvitað fyrst og fremst veiðar við Grænland. E. t. v. koma að vísu til greina fleiri staðir hér á norðurslóðum, en það er fyrst og fremst þar, sem mikilvægt er að tryggja íslenzkum fiskiskipum nauðsynlega aðstöðu til veiðanna.

Það er samdóma álit allshn., að mikil nauðsyn sé, að þetta verði gert, og því mælir n. einróma með því, að till. þessi verði samþ. og að þessu verði unnið sem bráðast og leitazt við að tryggja aðstöðu íslenzkra sjómanna og fiskiskipa sem bezt að þessu leyti.

N. mælir því með því, að till. verði samþ. með örlítið breyttu orðalagi eða innskoti, þannig að á eftir orðinu „aðbúnaðar“, þar sem talað er um, að sjómenn geti notið sem bezts aðbúnaðar við störf sín, komi: og öryggis. Með því er n. aðeins að leggja enn meiri áherzlu á nauðsyn þess að tryggja, að sjómenn hafi sem bezta tryggingu og sem bezt öryggi við sín störf á þessum veiðum, því að eins og gefur að skilja, þá er það mikil nauðsyn, þegar fjarri landinu er farið til veiða, að það sé tryggt með öllum tiltækilegum ráðum, að sjómennirnir, sem þessar veiðar stunda, búi við sem beztan aðbúnað að öllu leyti.

Ég vil geta þess í sambandi við þessa till., að nú hefur það nokkuð verið stundað á s. l. sumri að sækja æði langt frá landi til síldveiða, þannig að skip hafa sótt alllangt austur og norður í haf og lengra en áður hefur tíðkazt til slíkra veiða. Þetta gerir það að verkum, að mjög brýn nauðsyn er á því að tryggja þessum skipum, sem þannig sækja, betri aðbúnað að ýmsu leyti og auka öryggi sjómannanna. Má m. a. á það benda, að loftskeytastöðvar þeirra skipa munu naumast vera nægilega sterkar til þess, að þær geti haft samband við næstu landstöðvar. Einnig þetta þarf að sjálfsögðu að athuga, þegar um er að ræða sókn svo langt frá landi, og því nauðsynlegt, að þessi öryggistæki séu fullnægjandi. Þá má gera ótvírætt ráð fyrir því, að sókn íslenzkra veiðiskipa á hin fjarlægari mið fari vaxandi á næstu árum, og því er sérstök þörf til þess, að að þessu máli sé undinn sem bráðastur bugur. Það er því einróma álit allshn. að mæla með því, að þessi till. verði samþ. með þeirri smávægilegu breytingu, sem ég gat um.