10.12.1952
Sameinað þing: 24. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í D-deild Alþingistíðinda. (2334)
97. mál, fiskveiðar á fjarlægum miðum
Frsm. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins leiðrétta misskilning hjá hv. þm. Barð. Ég hélt því aldrei fram, að loftskeytastöðvar nýju togaranna væru ekki nægilega sterkar. Mér er kunnugt um, að þær eru það. Ég sagði það í sambandi við síldveiðar skipa, sem hafa sótt nokkuð á s. l. sumri til veiða út frá landinu, alllangt austur og norður í haf, að tæki þessara skipa, sem eru miklu minni en togararnir, mundu naumast vera nægilega sterk til þess að ná til landstöðvanna, en ég átti ekki við nýju togarana í því sambandi.