19.12.1952
Sameinað þing: 26. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í D-deild Alþingistíðinda. (2375)

14. mál, mannréttindi og mannfrelsi

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Þessi till. til þál. um aðild Íslands að samningi Evrópuráðsins um verndun mannréttinda og mannfrelsis er lögð fyrir hið háa Alþingi af hæstv. ríkisstj. Þessi sáttmáli Evrópuráðsríkjanna er gerður á grundvelli samþykktar ráðgjafarþingsins og var undirritaður af ráðherranefnd Evrópuráðsins í Rómaborg 4. nóv. 1950. Voru þar mættir utanríkisráðherrar allra þátttökuríkjanna eða fulltrúar þeirra.

Með sáttmálanum hafa þátttökuríki Evrópuráðsins orðið ásátt um að leggja gerðir sínar viðvíkjandi helgi hinna þýðingarmestu mannréttinda og grundvallar persónufrelsis undir alþjóðlegt eftirlit. Þessi mannréttindi og frelsi mynda undirstöður að sönnu lýðræðislegu þjóðskipulagi. Alþjóðlegar varnir eru þannig í fyrsta sinn reistar, sem beina má gegn einræðiskenndum aðgerðum. Hér ræðir um sameiginlegt átak frjálsu þjóðanna, árangur náinnar samvinnu þjóðarheilda og ríkisstjórna í lýðræðisríkjum Evrópu, starfandi í báðum deildum Evrópuráðsins, ráðherranefndinni og ráðgjafarþinginu.

Í formála fyrir þessum sáttmála er það tekið fram, að hann sé fyrir þær sakir gerður, að ríkisstjórnir þær, sem að sáttmálanum standi, þ. e. a. s. stjórnir þátttökuríkja Evrópuráðsins, hafi með tilliti til hinnar almennu yfirlýsingar um mannréttindi, sem hafi verið gerð á þingi Sameinuðu þjóðanna 10. des. 1948, og með því að yfirlýsing þessi miði að því að tryggja almenna og virka viðurkenningu umræddra mannréttinda og þar sem markmið Evrópuráðsins sé að koma á meiri einingu þátttökuríkjanna, gert þessa samþykkt, en ein leiðin til slíkrar einingar sé viðurkenning almennra mannréttinda og grundvallarfrelsis. Vilja þau staðfesta trú sína á slík grundvallarskilyrði frelsisins, sem séu undirstöðuatriði friðar og réttlætis í heiminum, og þeim verði bezt við haldið annars vegar með virku lýðræðislegu stjórnarfari og hins vegar með almennri viðurkenningu þeirra mannréttinda, sem slíkt stjórnarfar byggist á. Hafi því stjórnir þeirra ríkja Evrópu, sem sömu skoðanir hafa í þessum efnum og eiga sameiginlega arfleifð stjórnarfarslegra erfðakenninga, hugsjóna, frelsis, laga og réttar, ákveðið að taka höndum saman til þess að standa sameiginlega vörð um þau mannréttindi, sem hin almenna yfirlýsing hljóðar um.

Þessi sáttmáli er saminn í fimm aðalköflum og 66 greinum. Í 1. kaflanum, sem er 18 greinar, ræðir um hið almenna persónufrelsi. Í 2. kafla ræðir um framkvæmdavald það, sem sett skuli á stofn sameiginlega af þátttökuríkjunum til að tryggja alþjóðleg afskipti af mannréttindamálum, og er þar á meðal gert ráð fyrir Evrópunefnd og Evrópudómstóli, er um þessi mál skuli fjalla. Í 3. kaflanum eru ákvæði um, hversu slík n. skuli skipuð, en í henni er gert ráð fyrir, að einn maður frá hverju þátttökuríki eigi sæti. Þá eru þar ákvæði um meðferð mála í nefndinni, áður en til þess kemur, að þeim sé skotið til úrskurðar í Evrópudómi. Er sá kafli í 17 greinum. 4. kaflinn ræðir um mannréttindadómstól Evrópu, af hvaða aðilum hann skuli skipaður og á hvern hátt og svo um meðferð mála og dómsúrskurði meðal annars. Er sá kafli í 17 greinum. Og loks er 5. kaflinn um fullnægingu dóma og fullgildingu sáttmálans, hversu langan tíma hann sé bindandi fyrir þátttökuríkin o. s. frv., en hann er í 10 greinum.

Það er harla einkennandi tákn þeirra tíma, er við lifum á, hversu mannréttindamálin eru ofarlega á baugi á alþjóðaþingum hinna frelsisunnandi þjóða. Hér á landi höfum vér sem betur fer notið þessara mannréttinda og þekkjum ekki af eigin reynd annað. Stjórnarskrá vor frá 1874, sem þáverandi konungur landsins færði þjóðinni, markaði skýrar línur í þessu efni, og þótt stjórnarskrá landsins hafi oft síðan verið breytt, hafa almenn mannréttindi og persónufrelsi jafnan verið tryggð landsins börnum. Og svo er enn í dag í stjórnarskrá lýðveldisins frá 1944.

Vegna þess að íslenzka þjóðin hefur jafnan átt og aldrei misst þessi dýrmætu réttindi, sem við teljum sjálfsögð, finnst oss ef til vill minna um þau en vera ber og eigum þess vegna erfitt með að skilja, hvers vegna alþjóðaráðstefnur, hver af annarri, hafa mannréttindamálin á dagskrá og leggja á þau höfuðáherzlu. Þetta mun helzt vera af því, að við heiminum blasir sú sorglega staðreynd í þeim ríkjum, þar sem einræðið heldur á veldissprota, að sjálfsögðustu réttindi mannsins eru lítilsvirt.

Þegar undirskrift þessa sáttmála fór fram í Rómaborg, eins og ég áður lýsti, árið 1950, þann 4. nóv., voru mættir fulltrúar allra þátttökuríkja Evrópuráðsins, í flestum tilfellum utanríkisráðherra eða þá fulltrúi utanríkisráðherra. Hver þeirra lét nokkuð ummælt, þegar undirskriftir höfðu farið fram. Ég vil ekki þreyta hv. Alþingi á því að lesa upp ummæli allra þeirra fulltrúa, sem hér ræðir um, en ég leyfi mér að benda á ummæli fulltrúa fyrir þrjú ríki, þ. á m. Ísland, til þess að gefa hv. alþm. innsæi í það hugarfar, sem hefur ráðið hjá þeim, er að undirskrift þessa sáttmála stóðu.

Fulltrúi utanríkisráðherra Íslands, herra sendiherra Pétur Benediktsson frá Íslandi, mælti:

„Þessi samtök til verndunar mannréttindum eru hornsteinn þess varnarvirkis, sem verður bakhjarl baráttu vorrar fyrir mannréttindum gegn þeim, sem nú ógna rétti og persónulegu frelsi.“

Utanríkisráðherra Írlands, hinn heimskunni gáfumaður Sian McBride, sem hér var á ferð s. l. sumar, mælti við þetta tækifæri:

„Þau átök, sem nú standa yfir í heiminum, eiga sér stað að miklu leyti í hugum og tilfinningum mannkynsins. Í þessum átökum hef ég fundið til þess, að oss skortir skýran og ótvíræðan sáttmála varðandi þau réttindi, sem vér sem lýðveldissinnar ábyrgjumst þjóðum vorum. Sá sáttmáli, er hér liggur fyrir, er spor í þá átt.“

Utanríkisráðherra Noregs, Halvard Lange, sagði :

„Hingað til hefur vernd almennra mannréttinda átt sér stað innan takmarka þjóðfélaga vorra. Sáttmáli sá, sem hér er gerður, færir verndun á grundvallarfrelsi hvers einstaklings á rýmra svið, Evrópusvið:“

Ég ætla, að þessi ummæli nægi til þess að sýna fram á þýðingu þessa merka máls, sem hér er á ferðinni, og eins nægi til aukins skilnings fyrir þá, sem líta svo á með réttu, að mörg þau atriði, sem eru í þessum sáttmála, höfum vér þegar í lögum, þessi ummæli um, að með honum er frelsisgrundvöllurinn færður á rýmra svið, en hingað til, að hann hefur verið innan hvers einstaks þjóðfélags hjá þeim ríkjum, sem þarna eiga hlut að máli.

Utanrmn. hélt fund þann 17. des. til þess að ræða þessa þáltill. og féllst á að mæla einróma með, að hún væri samþ. af hinu háa Alþingi óbreytt. Einn nm. (FRV) var fjarstaddur sökum veikinda, annar nm. (GTh) hafði boðað forföll.