14.01.1953
Sameinað þing: 28. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í D-deild Alþingistíðinda. (2383)
157. mál, smíði fiskibáta innanlands
Jóhann Jósefsson:
Herra forseti. Hv. flm. þessarar till. til þál., hv. þm. Siglf., sem einnig á sæti í allshn., hafði einmitt minnzt á það við mig í morgun, að hann yrði sökum lasleika forfallaður, og bað mig sem formann n. að segja nokkur orð um þá niðurstöðu, sem hv. n. komst að varðandi þáltill. hans um bátasmíði innanlands, — niðurstöðu, er liggur fyrir hér á þskj. 511.
Það er deginum ljósara og er löngu vitað, að það er stórkostleg afturför í smíði á hæfilegum fiskiskipum hér innanlands, — afturför, sem er mjög skaðleg bæði fyrir þá, sem þessa smíði stunda, framþróun skipasmíðanna hér á landi og líka fyrir þá útgerðarmenn, sem á ýmsum tímum þurfa að eignast ný skip. Á iðnaðarþingi, sem haldið var hér í haust, var þetta mjög til umræðu, og meðan það þing stóð, kom nefnd manna frá því þingi og fékk áheyrn hjá báðum sjútvn. hv. Alþ., og tjáðu þeir þessi vandkvæði, sem að vísu ýmsir af okkur þekktu. En þeir gerðu meira. Þeir höfðu á prjónunum hugmyndir um að koma aftur af stað hér skipasmíði innanlands, sem þeir lögðu fyrir þessar n. í frv.-formi ásamt grg. og sjútvn. síðan tóku til meðferðar. Á meðan þessu fór fram, var lagt fram í hv. Nd. frv. frá að ég held tveimur, ef ekki fleiri hv. Alþfl.-mönnum, sem miðar að því að fá gefna eftir tolla og söluskatt á því efni, sem fer til skipa, og er tilgangurinn auðsæilega sá að greiða fyrir því, að bátar séu smíðaðir hér á landi.
Sjútvn. tóku á þessum málum iðnaðarmanna eins og þær höfðu aðstöðu til, leituðu álits fiskimálasjóðs um lán út á skipin, héldu allmarga fundi til að ræða þetta mjög svo stóra vandamál og áttu að síðustu viðtal við hæstv. fjmrh. og einnig við hæstv. sjútvmrh. eða atvmrh. í því skyni að fá hrundið af stað nokkru átaki þessar skipasmíðar varðandi, átaki, sem ekki er hægt að gera nema með því, að ríkisstj. og Alþ. beiti sér einhuga að því að kippa í lag þeim skorti á innlendum bátum, sem fyrir hendi er. Ég verð því miður að játa það, að allar tilraunir sjútvn. Alþ., líka hjá hæstv. ríkisstj., fengust ekki feti framar en ætlazt var til í frv. stjórnarandstöðunnar, Alþfl., og eftir því sem ég veit bezt, þá stendur til, að því verði bætt inn í heimildagrein fjárl., að gefa megi eftir tolla af efni, sem fer til innlendra bátasmíða, og tel ég víst, að það muni þá gilda líka um aflvélarnar, sem eiga þar að vera með. Því miður liggur það þegar í augum uppi, að þessi fyrirgreiðsla, svo góð sem hún er, nær hvergi nærri til þess að brúa það djúp í fyrsta lagi, sem er á milli fiskiskipa eða báta smíðaðra innanlands og milli báta, sem smíðaðir eru eða smíðaða má fá utanlands, og í öðru lagi verða bátarnir, svo dýrir sem þeir kunna að reynast, ofurefli útgerðarmönnum eða fiskimönnum að eignast, nema miklu meiri lán fáist út á þá, en nú eru föng á. Eins og vitað er, hefur togaraflotinn verið fenginn til landsins með tilhlutun ríkisvaldsins og með stórkostlegri fyrirgreiðslu hvað tilkostnað snertir, sem í togarana þarf að leggja af ríkisins hálfu. Upphaflega mun það hafa verið svo, að um 85% voru lögð fram sem lán frá ríkinu, en eigendum ætlað að annast um 15%. Í sjálfu sér væri það ekkert ósanngjarnt, að slíkt hið sama ætti sér stað í bátasmíðunum, og þess væri undir núverandi kringumstæðum fyllilega þörf, að þetta væri gert. En hæstv. ríkisstj. virðist ekki hafa fengið augun opin fyrir þeim vandræðum, sem hér eru á ferðinni, því að eins og ég tók fram áður, þá nær þessi tollafyrirgreiðsla, sem fyrirhuguð er, allt of skammt í þessu efni. Þetta er þeim mun hörmulegra sem hér er margt í húfi, sem við getum ekki án verið. Það er í fyrsta lagi atvinna fjölda af skipasmiðum í húfi, og skipasmiðir hafa frá öndverðu verið hinir þörfustu þegnar þessa þjóðfélags, — menn, sem þjóðin má ekki án vera. Í öðru lagi er það í húfi, að þeir, sem stunda skipasmíðar eða hafa stundað og nú undanfarin ár hafa aðeins getað fengið viðgerðir á skipum til meðferðar, hverfi frá þeirri atvinnugrein og leggi aðra smíði fyrir sig, og þá blasir það beint við, að hinn stóri vélbátafloti landsmanna eigi í fá eða lítil hús að venda innanlands til þess að fá almennilega af hendi leysta viðgerð á skipum sínum, og þörfin fyrir slíkt er dagleg og verður alltaf svo.
Þetta sjónarmið leitaðist sjútvn. við að gera skýrt fyrir hæstv. ríkisstj. Þetta sjónarmið hafa vissulega þeir haft fyrir augum, sem fluttu frv. í Nd. um fyrirgreiðslu skipasmíðanna, og þetta sjónarmið liggur enn fyrir hendi í þeirri till. til þál., sem hv. þm. Siglf. flutti hér á sínum tíma og hér er nú til umræðu. Að vísu fer hann þar inn á leið, sem hann áður hafði farið sem ráðherra og mundi kannske nú vera álitin ekki eins heppileg og önnur úrræði. Það er vitað, að þegar hv. flm. þessarar till. var ráðherra, kom hann því til leiðar, að ríkið réðst í að smíða nokkra vélbáta, — þeir voru nú raunar allmargir, 50 talsins, 35 tonna og 55 tonna. Þetta þótti á þeim tíma nokkuð varhugaverð ráðstöfun, og ég skal játa það, að ég var þá þeirrar skoðunar, að það væri allhart úr hlaði riðið, en það kom aftur í minn hlut síðar meir í sömu stöðu og hv. flm. þessa frv. hafði verið, þegar hann hratt málinu af stað, að hafa með úthlutun á þessum skipum að gera, og það reyndist svo, að þau urðu færri, en nauðsyn var á að hafa. Þar fékk ég a. m. k. fulla sannfæringu fyrir því, að það spor, sem stigið var og þótti djarft í þessu efni, hefði verið rétt, en nú er allt látið drattast, nú er ekki skipt sér af því, þó að ráðamönnum þjóðarinnar sé sýnt fram á, að hér sé hreinasti voði á ferðum, en þetta má sannarlega ekki svona til ganga. Það er gersamlega ófullnægjandi skref, þó að hér verði samþykkt og útfært í verkinu að fella niður tolla af efni til skipa. Það verður ekki til þess að hrinda af stað þeirri nýsmíði, sem okkur er nauðsynleg, því miður, það þarf sterkara og meira átak, og það þarf útvegun meira fjár til að lána þeim, sem smíða skipin, — lán, sem síðar geta gengið yfir á hendur þeirra eða bak þeirra, sem eiga að standa undir rekstri þessara skipa í framtíðinni.
Við höfum, eins og vitað er, í allshn. ekki leyfi til að skakka hér neinu um hvað snertir fjárreiður ríkisins. En við höfum leyfi til að láta uppi okkar álit og höfum gert það, undirstrikað nauðsynina með þeirri brtt., sem flutt er á þskj. 511 við hina upphaflegu þáltill., og með leyfi hæstv. forseta vil ég lesa hana hér upp:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta athuga, hve mikið fiskibátafloti landsmanna hefur rýrnað á síðustu þrem árum, og athuga jafnframt möguleika á því að láta smíða hentuga fiskibáta í íslenzkum skipasmíðastöðvum.“
Það stendur hér ekki neitt um það, að þetta eigi endilega að gera á ríkisins kostnað, heldur eru hæstv. ríkisstj. opnaðar fleiri leiðir í því efni og þ. á m. sú, sem mjög var til umræðu í sjútvn. hér á öndverðu þingi og ég veit, að þeir, sem einna mesta reynslu hafa í stjórnarráðinu af þessum málum, smíði á fiskiskipum og afhendingu þeirra, aðhyllast. Það er sú leið að greiða verðlaun á hverja smálest, sem smíðuð er, þeim skipasmíðastöðvum, sem í það ráðast, — verðlaun, sem geti nálgazt það að brúa að nokkru eða mestu leyti þann gífurlega verðmismun, sem er á innlendum og útlendum bátum, og kæmu þannig að gagni bæði skipasmíðastöðvunum, iðnaðinum í landinu, sem fæst við skipasmíðar, og líka útvegsmönnunum, sem við skipunum eiga að taka, því að það er vitað og hefur sannazt, svo að segja á öllum tímum, að vel smíðaðir innlendir fiskibátar eru betri, sterkari og oftast nær betri sjóskip og hentugri fyrir íslenzkan sjávarútveg heldur en bátar, sem aðkeyptir eru, og er þó því sízt að neita, að oft eru það góðir bátar, sem fluttir eru til landsins. Mestu mistökin í þeim efnum munu hafa átt sér stað, þegar ríkisstj. á sínum tíma, utanþingsríkisstjórnin, sem kölluð var, lét smíða hina mörgu báta og dýru í Svíþjóð. Þeir hafa yfir höfuð ekki reynzt eins vel og aðrir aðkeyptir bátar. Ég tel það þess vegna hina mestu nauðsyn, og allir hv. nm. í allshn. Sþ. voru sammála um að leggja til, að þessu máli yrði gaumur gefinn á þann hátt, sem segir í brtt. n. Það er allt of mikið í húfi, eins og ég þegar hef sýnt fram á, fyrir þá, sem ráða hér í þessu landi, og þar er í rauninni Alþingi efst á baugi, að láta þessar smíðar fljóta sofandi að feigðarósi, því að það er ekki einasta iðnaðurinn, heldur líka sjávarútvegurinn, sem þar er í hættu staddur af þeim orsökum.
Ef við værum í vafa um þörfina, sem á því er að viðhalda hinum íslenzka fiskiskipastól, þá get ég bent á, að samkvæmt skýrslu, sem n. sú í iðnaðarþinginu, sem kom til sjútvn., lagði fram, er talið, að á tímabilinu frá 1949 og fram á 1952, að báðum þessum árum meðtöldum, hafi fækkun íslenzkra fiskiskipa orðið samtals 129 skip. Það getur vel verið, að á þessu tímabili hafi hitzt svo á, að fleiri gamlir bátar hafi gengið úr sér, en endranær, en talan er líka alveg gífurleg, og þegar þess er gætt, að á þessum sömu árum mun ekki hafa verið smíðaður einn einasti bátur í landinu, þá gefur auga leið, að hverju rekur í þessum efnum fyrir þá þjóð, sem á 97% af gjaldeyrisöflun sinni undir því, sem fiskifloti landsins aflar.
Ég verð enn að láta í ljós það, hvað ég harma hinar daufu undirtektir hjá hæstv. ríkisstj. í þessu máli. þegar sjútvn. beggja deilda lögðu fyrir hana hina brýnu nauðsyn, sem hér er á ferðinni. Þegar þess er gætt enn fremur, að með lögunum um útvíkkun landhelginnar eru margir tugir, ef ekki hundruð af smærri fiskibátum gerðir óvirkir til sóknar eins og hún verður í framtíðinni, gerðir óvirkir til þess að sækja á grunnmiðin eins og þeir höfðu gert með dragnótinni, og þess í stað verða svo eigendur þeirra og þeir, sem af þeim höfðu framfærslu, að sækjast eftir lengri sókn og stærri skipum, þá gefur það auga leið, hversu brýn sú nauðsyn er, sem hér er, því að í viðbót við allt annað kemur þetta nýja atriði hér til greina. Í viðbót við allt annað kemur það hér til greina, að fjöldi manna, sem á undanförnum árum hefur getað sætt sig við litla farkosti og stutta sókn, verður nú að venda sínu kvæði í kross og sækja á djúpmið, og til þess þarf betri skip.
Ég skal svo ekki að ástæðulausu þreyta hv. Alþ. á fleiri orðum um þetta efni, en ég gat ekki svo við það skilizt, að ég reyndi ekki að gera það ljóst, hvað hér blasir við, eins og ég þegar hef lýst, og ég vonast til, að hv. Alþ. fallist á að samþ. þá þáltill., sem hér liggur fyrir, svo breytta sem allshn. leggur til.