10.12.1952
Sameinað þing: 24. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í D-deild Alþingistíðinda. (2396)
168. mál, Vestmannaeyja- og Akureyrarflugvellir
Flm. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram þessa till. á þskj. 306, eftir að ég hef fengið þær upplýsingar, að ekki er útlit fyrir, að sú endurbót eða stækkun á flugvellinum í Vestmannaeyjum fari fram á þessu ári eða á næsta ári, sem ég hafði fastlega vænzt eftir, ef leggja má til grundvallar þær áætlanir í flugmálum, sem liggja í skjölum flugráðs hjá hv. fjvn.
Eins og kunnugt er, var þessi flugvöllur tekinn í notkun haustið 1946, og hefur verið á undanförnum árum fram að árinu 1951 unnið þar mikið og þarft verk til þess að stækka völlinn og bæta. En á árinu 1951 bregður svo við, að mjög er dregið úr öllum framkvæmdum, og á þessu ári hafa þær algerlega legið niðri. Þetta tel ég mjög alvarlegt og ekki hættulaust að láta við svo búið standa og finn mig því knúðan til þess, þar sem hér er um mitt kjördæmi að ræða, að gera nokkurt átak til þess að forða því, að vinna við stækkun flugvallarins leggist niður eða haldi áfram að liggja niðri eins og nú er.
Eins og kunnugt er, þá er þarna um eina braut að ræða, þ. e. a. s. braut frá austri til vesturs, sem er eðlilegt vegna landslagsins og líka vegna áttarinnar, þar sem mjög er tíð austanátt í Vestmannaeyjum. Hins vegar er það svo, að hér sunnanlands og í Vestmannaeyjum líka er oftast mest heiðríkja og bjartast veður í háátt, t. d. í norðanátt, en þá er þessi braut, sem liggur frá austri til vesturs, ekki fær til afnota, vegna þess að þá stendur vindurinn þvert á brautina, og má svo að segja enginn slíkur vindur vera til þess að tálma flug. Þetta er ákaflega illa farið vegna þess, eins og ég sagði, að veðrið er oftast nær bjartast og bezt einmitt með þeirri vindstöðu.
En þó er annað, sem hér kemur til greina og er þýðingarmeira, og það er öryggið. Öryggi vallarins er stefnt mjög í hættu, ef ekki fæst sú lenging á hann, sem stefnt var að, sem sé að hann komist upp í 1.200 metra lengd. Kunnugir menn segja, að með nægri lengd — og það er álitið, að 1.200 metrar séu nægileg lengd — megi þrátt fyrir nokkurn hliðarvind nota völlinn, og í öllum áttum, líka í beinni átt, er lengd flugbrautarinnar þarna mjög þýðingarmikil til öryggis, þannig að flugvélar hafi nægt tilhlaup til þess að hefja sig til flugs og næga lengd til að renna eftir, þegar lent er í óhagstæðum vindi.
Vestmannaeyjar hafa sáralitlar farþegasamgöngur aðrar en í lofti, og þess vegna finnst mér, að ekki hvað sízt þurfi þess að gæta á þeim stað, að gert sé það sem unnt er til þess, að flugsamgöngurnar, svo þýðingarmiklar sem þær eru, geti átt sér stað án mikilla hindrana og sérstaklega án mikillar áhættu.
Það er hér ekki um svo stórfellt atriði að ræða frá kostnaðarhliðinni skoðað, að það sé á nokkurn hátt afsakanlegt að láta þá menn, sem þarna búa, og þá, sem þurfa að heimsækja eyjarnar, búa árum saman við ótrygg skilyrði hvað sjálfan lendingarstaðinn áhrærir.
Ég er undrandi yfir því, að þetta verk hefur fallið niður svo langt skeið sem um er að ræða, og tel það geta horft í hið mesta óefni, ef ekki er gerð þar sú umbót, sem farið er fram á með þessari þáltill.
Ég skal ekki fjölyrða um annað viðvíkjandi þessum flugvelli, sem úr mætti bæta á tiltölulega ódýran hátt og hefur þó ekki verið gert, svo sem lýsingu o. fl., en legg höfuðáherzlu á, að flugbrautin, þessi eina braut, sé gerð svo örugg sem verða má. Tel ég, að það muni geta bætt stórum samgöngurnar og sérstaklega aukið nauðsynlegt öryggi.
Ég minnist þess og hv. alþm. munu minnast þess, að ég hef hér áður vakið athygli á sérstöku atriði, þótt það væri ekki í Vestmannaeyjum sjálfum. Það var hér í höfuðstaðnum og horfði til mikils öryggis fyrir flugið, og þá var daufheyrzt við því af hálfu stjórnarvaldanna illu heilli langan tíma, eftir að sjálft Alþ. var búið að leggja sitt samþykki á verkið. Það var daufheyrzt við því vegna þess, að stjórnarvöldin mikluðu fyrir sér þann kostnað, sem í því sambandi þurfti þá að leggja í. Þegar svo til kom og verkið var unnið, — það var þegar teknar voru niður loftskeytastengurnar hérna á Melunum, — þá kom það í ljós, að þessi kostnaður, sem menn höfðu gert sér í hugarlund að talinn yrði í hundruðum þúsunda, varð í kringum 100 þús. kr. Og þess háttar atriði koma stundum fyrir, að menn álita að óreyndu, að þetta og þetta sé ókleifara kostnaðarins vegna, en það reynist.
Ég vildi óska þess, að þeir, sem með þessi mál fara, sæju í tíma, að það er hættulegt að láta flugbrautina í Vestmannaeyjum vera hálffullgerða yfir lengri tíma, jafnmikið og hún er notuð. T. d. er mér sagt, að á s. l. ári hafi verið lent á flugbrautinni tvo af hverjum þrem dögum ársins. Þess vegna sný ég mér enn til hins háa Alþ. út af þessu máli og undirstrika, að hér er bæði um nauðsynlega samgöngubót að ræða og þó einkum og sér í lagi öryggismál fyrir þá, sem hér eiga hlut að máli, og vænti þess, að hv. Alþ. vilji stuðla að því, að þarna sé ráðin sú bót á, sem um er að ræða í þessari þáltill.
Ég býst við, að þar sem í till. er hert á, að inntar séu af hendi verklegar framkvæmdir, sem þá mundu kosta eitthvað, — mér er ekki vel ljóst, hversu miklu hér mundi þurfa til að kosta; ég ætla þó, að ef um 3–4 hundruð þús. kr. væru lagðar fram til þess að gera þennan flugvöll sæmilega úr garði, mundi það fara mjög langt, — en þar sem, eins og ég minntist á áður, einhver kostnaður hlýtur ávallt á að falla, þá ætla ég, að þessari till. þurfi, ef umr. verður frestað, að vísa til hv. fjvn., og vil ég mjög mælast til þess við hv. n., að hún taki þetta mál til gaumgæfilegrar athugunar og afgreiðslu, þannig að Alþ. eigi þess kost að heyra hennar úrskurð um till. og greiða um hana atkv. áður en þingi lýkur.