23.10.1952
Neðri deild: 13. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í B-deild Alþingistíðinda. (240)
5. mál, Búnaðarbanki Íslands
Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Fjhn. d. hefur athugað þetta frv., eins og henni var falið. Nm. eru samþykkir því, að sú lántökuheimild, sem gert er ráð fyrir í frv., verði veitt. Er þess að vænta, að unnt verði að fá þetta lán; sem frv. gerir ráð fyrir handa stofnlánadeildum Búnaðarbankans, þar sem það verður að teljast mjög þýðingarmikið, að Ræktunarsjóður og Byggingarsjóður geti haldið áfram að veita lán til ræktunar og bygginga í sveitum. — Komið hefur fram brtt. við frv. á þskj. 74, og var hún einnig athuguð í n. Meiri hl. n., sem hefur gefið út nál. á þskj. 97, telur sér ekki fært að fallast á þessa brtt., þar sem hún mundi hafa í för með sér veruleg útgjöld fyrir ríkissjóð, og er það því till. meiri hl., að frv. verði samþ. óbreytt eins og það liggur fyrir á þskj. 5.