29.01.1953
Sameinað þing: 34. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í D-deild Alþingistíðinda. (2434)

204. mál, jafnvægi í byggð landsins

Einar Olgeirsson:

Ég vildi aðeins segja örfá orð um þessa till., áður en hún færi til n., en engan veginn tefja fyrir henni.

Mér finnst rétt, að sú n., sem fær þessa góðu till. til meðferðar, athugi það vel, að í l. um fjárhagsráð er upprunalega ákveðið, að fjárhagsráð eigi að hafa með staðsetningu atvinnutækja að gera, m. a. einmitt með það fyrir augum að ná þeim tilgangi, sem hérna er stefnt að. Og ég vil minna á, að við meðferð l. um fjárhagsráð á sínum tíma var nauðsyn heildaráætlunar til margra ára alveg sérstaklega undirstrikuð af Sósfl. Ég vil enn fremur undirstrika það í sambandi við þessa till., að höfuðatriðið í að ná þeim tilgangi, sem hér er á minnzt, er sjálf fjármálapólitíkin í landinu, það, hvernig lánað er til atvinnutækjanna til þess að koma atvinnulífinu upp á hverjum einstökum stað, að lánin séu veitt með nægilega góðum skilmálum til fátækra bæjar- og sveitarfélaga án tillits til þess, hvort það þýði fyrst og fremst, að það sé gróði a.ð slíku, heldur með tilliti til hins, að viðhalda byggðinni þar, að viðhalda atvinnulífinu þar, að gera fólkinu mögulegt að lifa þar. Stærsta verkið, sem gert hefur verið til þess að viðhalda þannig byggðum úti um land, var gert í tíð nýsköpunarstjórnarinnar með togurunum og vélbátunum þá og með stofnlánadeildinni í Landsbankanum.

Ég vildi eindregið mælast til þess, um leið og ég vil taka undir þessa till., að hv. n. reyni að gera hana heldur skarpari úr garði hvað snertir að undirstrika nauðsyn réttrar fjármálastefnu í landinu í sambandi við þetta.

Svo vil ég aðeins minna hv. flm. á, að í sambandi við Framkvæmdabankann er vafalaust tilefni til að gera bindandi ákvarðanir til að ná þessum tilgangi.