03.12.1952
Sameinað þing: 20. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í D-deild Alþingistíðinda. (2447)
117. mál, náttúruauður landsins
Flm. (Páll Þorsteinsson):
Herra forseti. Það leikur ekki á tveim tungum, að atvinnuvegir íslenzku þjóðarinnar þurfa að eflast og verða æ fjölbreyttari. Þeir höfuðatvinnuvegir, sem þjóðin hefur við að styðjast, eru mjög háðir veðurfari og stopulir, einkum sjávarútvegurinn. Nú er svo háttað í þjóðfélaginu, að suma tíma árs er takmörkuð atvinna á ýmsum stöðum og heildarframleiðsla þjóðarinnar nægir ekki til að ná jöfnuði á viðskiptum við önnur lönd. Samt er þjóðin í vexti, sem betur fer, mannfjöldi eykst með ári hverju, verklegar framfarir eru miklar, enda gerir þjóðin kröfur til þess, og hin síðari ár hefur þjóðin sem heild búið við góð lífskjör.
Til þess að þjóðin geti til lengdar notið góðra lífskjara, þarf framleiðslan að aukast. Verklegar framfarir þarf að reisa á fjárhagslega traustum grunni. Eftir því sem fólksfjöldi eykst, þurfa atvinnuvegirnir að verða fjölbreyttari til þess að veita sem flestum landsmönnum aðstöðu til hagnýtra starfa. Mikilvægur þáttur í þessu máli er að hagnýta sem bezt náttúrugæði landsins og gera sér glögga grein fyrir þeim skilyrðum, sem fyrir hendi eru til þess. Mikil auðæfi eru fólgin í fallvötnum landsins og jarðhita. Sú orka, sem þar er bundin, getur orðið undirstaða að mikilli og fjölbreyttri iðnaðarframleiðslu, og enn er ekki hagnýtt nema lítið brot af þeirri orku. Þau stóru fyrirtæki, sem nú er verið að reisa, þ. e. virkjanir við Sog og Laxá og áburðarverksmiðja, verða væntanlega fullgerð, áður en langur tími líður, og nú þegar er hafinn undirbúningur að sementsverksmiðju, sem fyrirhugað er að reisa á næstu árum. Þessi stóru verkefni ber þó að skoða sem áfanga á leið þjóðarinnar. Gera verður ráð fyrir því, að þjóðin hafi kraft til þess og efni á því að halda áfram á sömu braut frá einum áfanga til annars, þótt leiðin milli áfanganna kunni að reynast misjafnlega löng og misjafnlega torfær. En framkvæmdir í þessum efnum þarf að grundvalla á nákvæmum og víðtækum rannsóknum á því, hve fjölbreytt náttúruauðæfi eru til í landinu, hver af þeim er aðgengilegt að hagnýta, hver af náttúruauðæfum landsins geti orðið undirstaða nýrra iðngreina og hvar nýjar iðnaðarstöðvar verði bezt settar. Áríðandi er að vanda sem bezt til þeirra rannsókna, sem að þessu lúta, og taka slíkar rannsóknir að öllum jafnaði langan tíma. Það er kunnugt, að raffræðingum þykir þörf á því að láta fram fara mælingar á fallvötnum um nokkurra ára bil, áður en fallvötnin eru virkjuð, og sem dæmi þess, hve vanda þarf til rannsókna og hve þær taka langan tíma, má nefna sementsverksmiðjuna. Nú eru liðin 15–20 ár síðan fyrst voru gerðar till. um að reisa sementsverksmiðju hér á landi. Þá var að því stefnt, að verksmiðjan yrði reist á Vestfjörðum, af því að þá var ekki annað kunnugt en að þar væru beztu hráefnin til sementsiðnaðar. Árum saman beindust rannsóknir á þessu efni að þeim stað, og till. manna um sementsgerð voru við það miðaðar, en svo breyttist þetta. Skömmu áður en að því kom að undirbúa byggingu sementsverksmiðju fundust hráefni til sementsframleiðslu í Faxaflóa. Það réð úrslitum um það, að verksmiðjunni var valinn staður á Akranesi. Þetta dæmi sýnir, að nauðsyn ber til þess að ætla rúman tíma til rannsókna, áður en ráðizt er í stórframkvæmdir, og að þær rannsóknir séu víðtækar og vandað sem allra bezt til þeirra.
Á undanförnum árum hafa verið framkvæmdar rannsóknir á náttúruauði landsins í ýmsum greinum. Hafa þær rannsóknir aðallega farið fram að tilhlutun rannsóknaráðs ríkisins og undir umsjón þess, auk þess sem gerðar eru mælingar á fallvötnum í landinu undir stjórn rafmagnseftirlits ríkisins. Þessar rannsóknir hafa borið árangur á ýmsan hátt. Það er m. a. þeim að þakka, að nú er þegar farið að nota sum jarðefni, sem þóttu ónothæf áður, svo sem vikur til húsagerðar, og gosull er nú unnin úr íslenzku hraungrjóti til einangrunar í húsum. En þær rannsóknir, sem gerðar hafa verið á náttúruauði landsins, eru of skammt á veg komnar, og ekki er til heildaryfirlit yfir þær rannsóknir, sem farið hafa fram, svo að ljóst sé, hvað búið er að rannsaka til nokkurrar hlítar og hvað ekki.
Till. sú, sem hér liggur fyrir og ég flyt ásamt hv. 8. þm. Reykv. (RÞ), hv. þm. V-Sk. (JG) og hv. þm. Dal. (ÁB), felur í sér ákvæði um það, að ríkisstj. láti gera sem gleggst yfirlit yfir þær athuganir, sem fram hafa farið á náttúruauði landsins, og láti enn fremur framkvæma nýjar rannsóknir á náttúruauðæfum, sem ætla má að séu mikilvæg fyrir efnahagsafkomu þjóðarinnar og hafa ekki verið rannsökuð áður til neinnar hlítar.
Eitt af því, sem veldur erfiðleikum í viðskiptum þjóðarinnar og við framkvæmdir, er skortur á erlendum gjaldeyri. Tvær leiðir eru færar til að ráða bót á því. Önnur er sú að auka framleiðslu til útflutnings, hin er sú að hagnýta betur, en gert hefur verið ýmis hráefni, sem til eru í landinu. Þær rannsóknir, sem fram hafa farið, benda til þess, að litlar líkur séu á því, að hér finnist í jörðu dýrmætir málmar, sem hægt sé að vinna til útflutnings, en það er nokkurn veginn vissa fyrir því, að með vinnslu ýmissa hráefna má draga úr innflutningi til landsins og spara gjaldeyri á þann hátt. Áður hef ég drepið á vikur og gosull til húsagerðar. Nýlega hefur t. d. verið birt frétt um það, að á einum stað í landinu hafi fundizt bergtegund, sem líklegt sé að reynist nothæf í veggflísar í hús. Verið er að rannsaka kolalög á Skarðsströnd. Ætla má, að þar og jafnvel víðar í landinu reynist hagkvæmt að vinna efni úr jörðu til að spara innflutning á erlendu brennsluefni. Árlega er varið nokkrum gjaldeyri fyrir fóðurvörur handa búfé landsmanna. Ætla má, að draga megi úr þeim innflutningi, ef framleitt væri í landinu mikið magn af heymjöli og fleiri innlendum fóðurefnum, og ekki er fullrannsakað, hve mikil verðmæti eru fólgin í þaragróðri við strendur landsins.
Við flm. þessarar till. teljum tímabært, að ríkisvaldið hlutist til um, að þessi mál verði tekin til rækilegrar athugunar á sem víðtækustum grundvelli, og væntum þess, að hv. Alþingi geti á það fallizt.