05.02.1953
Sameinað þing: 37. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í D-deild Alþingistíðinda. (2468)
154. mál, heyforðabúr
Frsm. (Jón Gíslason):
Herra forseti. Þessi þáltill. á þskj. 245, um heyforðabúr, hefur verið rædd í allshn. N. hefur orðið sammála um að breyta tillgr. allmikið, eins og fram kemur á þskj. 688. Aðalbreytingin á tillgr. er sú, að því er slegið föstu, að Búnaðarfélag Íslands verði aðili að þeirri athugun um möguleika á stofnun heyforðabúra, sem þáltill. fer fram á. — N. er einróma um að leggja til, að till. verði samþ. eins og hún er orðuð á þskj. 688.