12.11.1952
Sameinað þing: 12. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í D-deild Alþingistíðinda. (2592)

27. mál, smáíbúðarhús

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Ég sé nú ekki ástæðu til að lengja mikið umræður um þetta mál, því að það kom ekkert nýtt fram í þessari síðari ræðu hv. 7. landsk. þm. Hann sneri algerlega út úr því, sem ég sagði, án þess þó að þora, — af því að hann veit, að það er algerlega rétt frá skýrt, — að mótmæla því, að meginatriðið í þessu máli er það, að fjárhagsráð út af fyrir sig réð ekki þessum teikningum. Það er nefnd í Reykjavík, sem ræður teikningunum fyrir Reykjavík, og þar hefur engin kvörtun komið utan af landi um þetta. (Gripið fram í.) Það kann að vera. Ég hef ekki orðið var við neina óánægju nema hjá nokkrum mönnum hér í Reykjavík. Það er það rétta í þessu máli, því að eins og ég skýrði í fyrri ræðu minni mjög greinilega, þá er þetta þannig, að fjárhagsráð ákvað heildarstærð húsanna, en ekki teikningarnar, og menn gátu valið um ýmsar teikningar. Það er því algerlega rangt hjá hv. 7. landsk., þegar hann er að reyna að sanna það, að allir þessir 900 menn séu óánægðir með stærðina á húsunum. Ég þekki marga menn, sem eru að byggja þessi hús og eru harðánægðir með stærðina og kærðu sig ekkert um stærri hús, — menn, sem eru að byggja svona 58, 60 og upp í 65 m2 hús með háu risi. Það hefur ekki verið nokkurn tíma neinn ágreiningur um þetta, af því að það var innan þeirra stærðartakmarka, sem ákveðið var. Þegar þess vegna hv. 7. landsk. er að reyna að koma því inn, að hér hafi verið barátta á milli allra þeirra manna, sem eru að reisa þessi smáhýsi, og fjárhagsráðs, þá er það auðvitað hrein fölsun á staðreyndum og ekkert annað, því að ég hef talað við svo marga menn, sem eru að reisa hús af þessum gerðum, að ég veit það ósköp vel.

Ég skal ekkert um það dæma, hvað mikið vit fjárhagsráð út af fyrir sig hefur á húsabyggingum. Ég hef ekki verið ánægður með allar gerðir þess, frekar en annarra í þessum efnum, en að heyra hv. 7. landsk. vera að belgja sig hér út sem einhvern byggingarfræðing, það ógnar mér, því að allt, sem hann segir, staðfestir það greinilega, að hann hefur ekki vit á þessu að nokkru ráði, hefur ekki hugmynd um það, hvað rétt er í þessu efni, ef hann álítur, að það henti öllum, sem eiga að byggja smáíbúðir nú, að fara upp í stærð, sem er 340–360 m3. Það mundi nú gera það að verkum, að helmingi færri hefðu farið af stað, ef átt hefði að miða við það, og við skulum segja, að það hefði ekki átt að veita styrk í minni íbúðir, en eitthvað slíkt, sem mér virðist nú helzt vaka fyrir hv. þm. Með þessu, sem nú var gert, var ekkert breytt um það meginatriði í reglum fjárhagsráðs, að stærð smáíbúðanna skuli miðast við það, sem ákveðið var í upphafi. Það er bara þessi eini flokkur húsa af þessari stærð og með þessari þakhæð, sem leyft var að hækka af þeim ástæðum, sem þegar hefur verið tekið fram, og ég leit þannig á, að það væri sjálfsagt að leyfa það, því að þegar rishæð er orðin 2 m, þá áleit ég, að ekkert vit væri annað, en að hækka það upp í 3 eða upp undir 3, svo að hægt væri að fá þar sæmileg íbúðarherbergi uppi í risinu.

Annars má nú segja, að það sé að fara úr öskunni í eldinn með þessar íbúðarhúsabyggingar. Einu sinni þótti aðalráðið í þeim efnum að hafa þökin flöt, eiginlega alveg flöt, svo að varla væri um nokkurn vatnshalla að ræða á þeim. Nú eru ýmsir, sem líta svo á, að nú sé eina hjálpræðið að príla þessu upp í loftið með einhverjum óskaplegum þakfleti. Ég held, að hvort tveggja þetta séu nú öfgar og það geti oft verið, að þar sé um heppilegan milliveg að ræða, eins og oft er í ýmsum málum. En ég veit, að fjárhagsráð hefur byggingarfróða menn í sinni þjónustu. Þeim getur vitanlega yfirsézt eins og öllum öðrum, því dettur mér ekki í hug að neita. En um þetta hafa líka fjallað aðrir. Það eru byggingarfróðir menn bæjarfélagsins hér í Reykjavík, þar sem langflestar íbúðirnar eru, svo að það nær náttúrlega ekki nokkurri átt að segja, að þessar reglur hafi verið settar alveg út í loftið af fjárhagsráði og eiginlega bara til bölvunar þeim, sem eru að reisa íbúðirnar, eins og hv. þm. vildi láta skína í. Svona hrópanir eins og þessar sýna það bezt sjálfar, að þingmaðurinn stendur mjög hallur í þessu máli og finnur það. (Gripið fram í.) Hvers vegna? Ja, það veit hann líklega bezt sjálfur, hvers vegna hann stendur hallur í því, af því að hann hefur verið hér með alls konar upphrópanir um þetta, ásakanir á hendur fjárhagsráði, sem hafa ekki við neitt verulegt að styðjast.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um þetta. Mér virðist málið liggja svo ljóst fyrir eins og það getur legið. Ég tók það fram áðan, að þessar reglur eru í endurskoðun nú. Hverjar þær breytingar verða, sem á þeim verða gerðar, ef áfram verður haldið með að veita leyfi til svona smáíbúða í dálítið verulegum stíl, er ekki gott að segja, og sjálfsagt verður þá einmitt gáð að því, að þau mistök, sem kunna að hafa komið fram í byrjun, eins og alltaf má búast við að verði, endurtaki sig ekki. En það kemur ekki til nokkurra mála, að mínum dómi, að leyft sé að byggja þarna mjög stórar íbúðir undir þessu skipulagi. Ég held, að allir hafi verið sammála um, að það ætti að takmarka þetta við það, að húsin væru þannig, að þau gætu hentað fyrir fjölskyldu, en væru náttúrlega ekki rúm, og helzt gengið þannig frá þeim, að þá mætti seinna byggja við þau, og ég verð að segja það, að t. d. þessi hús með í kringum 60 m2 gólffleti og 3 metra risi eru hús, sem hver maður getur verið sæmdur af að búa í, þau eru það rúm. Ég hef nú mestan hluta af ævi minni orðið að búa í íbúð, sem er ekki meiri en það, og geri enn og get sætt mig við það. En nú tala ýmsir um þessa hluti eins og það eigi að fara að byggja einhverjar stórar lúxusbyggingar og hver maður, t. d. eignalaus hjón, eigi að geta byggt einhverjar mjög stórar íbúðir, þegar þau eru að reyna að koma yfir sig húsnæði. Ég álít, að það sé beinlínis skaðlegt að vera að koma slíkri hugsun inn hjá fólki. Það hefur vanalega verið svo hér í okkar þjóðfélagi frá byrjun, að menn hafa orðið að byrja smátt og heldur bæta við eftir því, sem efnahagur og aðstæður hafa leyft, og þetta er einmitt yfirleitt ungt fólk, sem er með þessar byggingar hér, og ég hef talað við marga, sem eru einmitt með þessar gerðir af húsum. Ég álít, að það hafi verið aðalmistökin að leyfa svona mikla stærð innan þessa ramma, það hefði átt að halda sér við minni gólfflöt, en leyfa þá vitanlega alveg ótakmarkaða rishæð eins og menn vildu, til þess að hafa alveg full not af íbúðinni, og það séu eiginlega aðalmistökin, sem hér sé um að ræða, því að út af þessu sprettur óánægjan, en alls ekki hjá því fólki yfirleitt, sem er að reisa 60 m2 húsin með fullri rishæð, enda eru sum þeirra gerð þannig, að það á að vera hægt að byggja við þau seinna, ef aðstæður eru til, og það er einmitt sérstaklega heppileg aðferð, ef hægt er að koma því þannig fyrir.

Ég kann ekki við það, að hér á Alþ. sé svo miklum ásökunum eins og hv. 7. landsk. hefur beint gegn fjárhagsráði ekki svarað, því þó að fjárhagsráði kunni að hafa mistekizt að einhverju leyti í þessum málum og ýmsum öðrum, þá held ég, að það sé engin alfullkomin stofnun til, og ég held nú jafnvel, að það mætti benda á atriði í verkahring hv. 7. landsk. í hans eigin hreppi, þar sem ýmislegt hefur mistekizt og það jafnvel hjá honum, sem setur sig mjög strangan dómara yfir öðrum. Þess vegna tek ég því ekki þegjandi, þegar svona sleggjudómum er kastað fram, án þess að hægt sé að rökstyðja þá að nokkru ráði.