12.11.1952
Sameinað þing: 12. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í D-deild Alþingistíðinda. (2594)
27. mál, smáíbúðarhús
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Mig langar til þess að bæta nokkrum orðum við þær umræður, sem hér hafa átt sér stað. — Hv. 7. landsk. hefur komið hér fram, og lítur út fyrir, að hann vilji gera sig að einhverjum baráttumanni fyrir ákveðinni rishæð í smáibúðabyggingum. Af þessu tilefni finnst mér, að menn ættu fyrst og fremst að gera sér grein fyrir því hér í þinginu, að ef hann og hans flokksmenn hefðu einhverju ráðið í þessum málum, þá væri ekki deilt um rishæð í smáíbúðabyggingum, af því að það væri þá ekki deilt um neinar smáíbúðabyggingar. Þeir hafa hvergi nálægt því komið að gera einstaklingum kleift að byggja þessar smáíbúðabyggingar, sem um er talað. Það er hins vegar alveg öndvert við þeirra stefnu og öll þeirra afskipti af byggingarmálum. Þess vegna verður þetta nokkuð hjákátlegt, þegar hv. 7. landsk. vill láta líta svo út hér á þingi eins og hann sé að gerast einhver málsvari og fyrirsvarsmaður þeirra manna, sem í þessum byggingum standa, og málsins í heild.
Sannleikurinn er sá, að það má eiginlega segja, að fyrsta skrefið í þessu máli sé stigið hér á Alþ. þegar sjálfstæðismenn beittu sér fyrir því, að eignaaukning, sem skapaðist af aukavinnu manna við eigin byggingar, yrði skattfrjáls, á þingi 1948 og 1949, en það var nauðsynlegt þá til þess að gera einstaklingum kleift að stunda sjálfir í eigin aukavinnu byggingarstarfsemi sína og með sínu venzlaliði og vinum, eftir því sem framast mátti verða. Þetta lyfti undir marga, þetta skattfrelsi lyfti undir eigin byggingarstarfsemi á sínum tíma. Þegar dró úr möguleikum manna til bygginga vegna þrengri lánamarkaða á árunum þar á eftir, þá voru það sjálfstæðismenn hér í bæjarstjórn Reykjavíkur, sem höfðu forgöngu um nýjan þátt byggingarmálanna með hinum svo kölluðu Bústaðavegshúsum, þar sem bæjarfélagið hóf byggingu húsa með þeim hætti, að bæjarstjórnin gerði byggingarnar fokheldar og útbjó þær að öðru leyti þannig, að upp frá því væri auðvelt og hentugt fyrir einstaklingana að taka sjálfir við og ljúka byggingunum að verulegu leyti með eigin vinnu. Þá var svo háttað um fjáröflun og lánamarkaði, eða fjárhag og fjárreiður, að hægt var að lána einstaklingunum af hálfu bæjarfélagsins það, sem komið var í byggingarnar, þegar fyrri hluta byggingarstigsins var lokið. En eftir því sem þrengdist á dalnum, var ekki hægt að halda þessari byggingarstarfsemi áfram, vegna þess að bæjarstjórnin hér í Reykjavík hafði hugsað sér að sjálfsögðu að fá lán í lánsstofnunum á móti þeim lánum, sem hún hafði látið einstaklingunum í té, en þar voru alls staðar lokaðar dyr, og menn skilja það, að bæjarsjóðurinn gat með eðlilegum hætti ekki orðið útlánastofnun í fasteignir og hefur vissulega ekki það hlutverk. Samt var það svo, að bæjarstjórn Reykjavíkur varð að lána úr bæjarsjóði um 15 millj. kr. í þessu skyni í sambandi við byggingu Bústaðavegshúsanna. En þegar leiðirnar voru lokaðar hér í Reykjavík til þess að afla lána handa einstaklingunum, sem þannig vildu byggja, þá var það einnig bæjarstjórn Reykjavíkur, sem hafði forgöngu um hinar svo kölluðu smáíbúðabyggingar og lét skipuleggja smáíbúðabyggingasvæði og lét gera teikningar að smáíbúðabyggingum, löngu áður en reglur fjárhagsráðs voru um þetta settar. Þessum undirbúningi var lokið hér í Reykjavík, þegar smáíbúðabyggingar voru gefnar frjálsar af hálfu fjárhagsráðs. Og það var í kjölfar þessa frumkvæðis sjálfstæðismanna hér í Reykjavík, sem hv. 7. landsk. og ýmsir aðrir reyndu að sigla í sambandi við smáíbúðabyggingar, en það hafði enginn orðið var við neina viðleitni í þessu efni eða neina forgöngu af hálfu hv. 7. landsk. í Kópavogi, áður en að þessu kom. Hitt var svo það, að þegar málið var þannig undirbúið og þegar hæstv. ríkisstj. stofnaði lánadeild smáíbúða í fyrra með framlagi af tekjuafgangi ársins 1951, þá var það fyrst, sem hv. 7. landsk. sendi vinsamlegt bréf til allra íbúa í sínum hreppi og sagði: Komið þið nú til mín, elskulegir. Nú skal ég reyna að sækja um lán fyrir ykkur. — Hann hafði hvorki haft neitt frumkvæði um málið né reynt neitt að afla þessum mönnum láns, en þegar aðrir gerðu mögulegt, að hægt væri að fá eitthvert lánsfé í þessu skyni, þá bauð þessi hv. þm. fram sína starfskrafta til að sækja um lánin, til að skrifa út eyðublöðin og til að gera sig vinsælan af því. Það er því hans aðalþáttur í þessu máli.
Það er rétt, sem hæstv. forsrh. hefur sagt hér, að það eru tiltölulega fáir aðilar, sem deilan stendur um í sambandi við þetta mál, og hún byggist á því, að í öndverðu var um að ræða tvenns konar gerðir smáíbúðabygginga, annars vegar á minni grunnfleti og með hærri risum, en hins vegar á stærri grunnfleti og rislaust. Stefnan var sú, að í staðinn fyrir að í fyrra tilfellinu innréttuðu menn risið síðar, þá mundu þeir, sem byggðu í rislausu byggingunum, stækka sínar byggingar síðar með því að stækka út grunnflötinn. Þessar byggingar féllu undir þær reglur, sem fjárhagsráð setti síðar, og þessi deila er komin til af því, að eftir að menn byrjuðu og kusu sér sjálfir heldur að byggja smáíbúðabyggingar rislausar, þá vaknaði löngun þeirra til þess að geta hækkað risin, sem þýðir náttúrlega, þegar þessi hús eru fullbyggð, miklu stærri hús en upphaflega var ráðgert, og skal ég ekki hafa neitt út á það að setja. En þetta vildi ég segja til þess að árétta það, sem hæstv. félmrh. sagði hér, að þau mistök, ef einhver eru, sem hér hafa átt sér stað, eru sprottin af því, að hér var upphaflega hugsað um tvær mismunandi gerðir, annars vegar rislaus hús og hins vegar hús með risum, sem væru svo síðar innréttaðar íbúðir í. En það er ósköp líkt hv. 7. landsk. og hans flokksmönnum, að þegar þeir halda að einhver mistök eigi sér stað í einhverju máli, þá koma þeir til skjalanna, þá er kominn tími fyrir þessa menn, kommúnistana, til þess að láta að sér kveða. Þess vegna stendur 7. landsk. hér í ræðustólnum og vill reyna að gera mikið úr sér, en það er ekki til þess — hann hefur aldrei gert það fram að þessu — að rétta hlut þeirra, sem hafa staðið í smáíbúðabyggingunum, ekki til þess að efla á neinn hátt þeirra möguleika til þess að koma þaki yfir höfuðið. En þegar mistök hafa átt sér stað, þó að búið sé að bæta úr, þá er tími kommúnismans kominn, aðeins til að reyna að koma illu til leiðar, og þess vegna er það, sem hv. 7. landsk. hefur komið hér upp í ræðustólinn, og af engu öðru. Þessu held ég að hv. þm. ættu að gera sér grein fyrir.