17.12.1952
Sameinað þing: 25. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í D-deild Alþingistíðinda. (2711)

185. mál, sala þjóð- og kirkjugarða

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Þrír hv. þm. flytja hér till. um að fela ríkisstj. að hlutast til um, að ábúendum þjóðjarða og kirkjujarða verði gefinn kostur á að fá jarðirnar keyptar fyrir fasteignamatsverð.

Till. þessi virðist algerlega óþörf og einkennilegt, að hún skuli vera borin fram á Alþingi. Það eru til lög, nr. 4 frá 1946, um sölu þjóðjarða og kirkjujarða. Í þeim lögum segir, að ábúendur þessara jarða, þjóðjarða og kirkjujarða, hafi rétt til að fá ábúðarjarðir sínar keyptar, ef þeir, eftir því sem við á, fullnægja 1. gr. l. nr. 116 frá 1943, um ættaróðal og erfðaábúð, og auk þess fullnægja þeim skilyrðum að hafa búið á jörðinni í 3 ár, gefa yfirlýsingu um það, um leið og þeir kaupa, að þeir geri jörðina að ættaróðali, og svo að þeir hafi setið jörðina vel og hreppsnefnd mæli með, að ábúandi fái jörð sína keypta. — Þá er enn fremur tekið fram í lögum þessum, að fari fram sala á jörð með þessum hætti, þá skuli söluverðið vera fasteignamatsverð, og einnig, að ef jörð verður seld, eftir að hún hefur verið gerð að ættaróðali, þá eigi ríkið forkaupsrétt að henni fyrir fasteignamatsverð.

Ég vil nú spyrja út af þessari till., sem hér er fram komin: Er flm. hennar ekki kunnugt um þessi lög? Það lítur helzt út fyrir, að þeim sé alls ekki kunnugt um það; að minnsta kosti lét frsm. till. og 1. flm. þess að engu getið, að menn ættu þennan rétt nú, að fá jarðirnar keyptar. En samkvæmt þessum l., sem ég hef vitnað til, hafa ábúendur þjóðjarða og kirkjujarða rétt til að fá ábúðarjarðir sínar keyptar, að fullnægðum ákveðnum skilyrðum, sem lögin setja. Þau skilyrði, sem sett eru í l., virðast mjög eðlileg. Eitt þeirra er það, að ábúandi skuli, um leið og hann kaupir þjóðjörð eða kirkjujörð, gera hana að ættaróðali samkv. l. frá 1943 um ættaróðal og erfðaábúð. Þetta skilyrði er vitanlega sett til þess að koma í veg fyrir, að einstakir menn, sem kaupa jarðir af því opinbera fyrir mjög lágt verð, geti selt þær aftur fyrir margfalt verð og stungið hagnaðinum í sinn vasa. Slík viðskipti, ef þau gerast, eru landbúnaðinum ekki til framdráttar, heldur hið gagnstæða. Ef ábúendum þessara jarða er gert það mögulegt að fá þær keyptar fyrir fasteignamat án þess að gera þær að ættaróðulum, þá geta þeir hagnazt mjög á þeim kaupum, eins og nú er ástatt, með því að selja jarðirnar þegar eftir að þeir hafa náð eignarhaldi á þeim, og ef flm. till. stefna að því að gera slík viðskipti möguleg, þá á till. þeirra engan rétt á sér. Líti þeir hins vegar svo á, að þessi skilyrði, sem sett eru í l. um sölu þjóðjarða og kirkjujarða frá 1946, séu eðlileg, þá er till. þeirra gersamlega óþörf og þýðingarlaus, því að eins og ég hef vikið að, þá hafa allir ábúendur þjóðjarða og kirkjujarða þessa möguleika nú samkvæmt lögum. Það er samkvæmt lögum mögulegt fyrir alla ábúendur þjóðjarða og kirkjujarða að fá þær leigðar á erfðafestu, og þegar því er komið í kring, þá hafa þeir einnig, eins og ég hef rakið, möguleika til þess að fá jarðirnar keyptar fyrir fasteignamatsverð gegn því m. a. að gera þær um leið að ættaróðali, til þess að koma í veg fyrir brask með þær í framtíðinni. Þetta tel ég eðlilegt, og þetta tel ég að séu alveg fullnægjandi ákvæði um sölu þessara jarða.