05.02.1953
Sameinað þing: 39. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í D-deild Alþingistíðinda. (2731)
215. mál, Hótel Borg
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Þó að ég álíti þetta mál vera þess eðlis, að það mætti vel leyfa að ræða það hér á Alþingi og ég gæti vel greitt fyrir því, að það yrði gert, þá vil ég þó mótmæla því, að þetta sé það mest aðkallandi mál, sem hafi legið og liggi fyrir þessu þingi og þurfi að hraða meir en nokkrum öðrum málum. Og með tilliti til þess, að þetta mál hefur ekki borið að sem einhverja þjóðarógæfu í dag eða á þessari stundu, að Hótel Borg hafi verið lokað, — það hefur gerzt fyrir hálfum mánuði eða þrem vikum, — þá mótmæli ég þessari aðferð hér um allan hraða á þessu máli og tek undir með hv. þm. Borgf. um það. Ég mun þess vegna ekki greiða fyrir því, að málið verði hér tekið fyrir nú, og segi nei.