15.10.1952
Sameinað þing: 5. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í D-deild Alþingistíðinda. (2749)
53. mál, kjötútflutningur til Bandaríkjanna
Landbrh. (Hermann Jónasson):
Ég sá nú ekki framan í hv. 4. þm. Reykv. (HG), þegar hann var að flytja þessa harmatölu. Það hefur sjálfsagt verið ákaflega sorglegt á honum andlitið yfir þessum mistökum, eða kannske það hafi verið þetta venjulega glott, sem kemur yfir suma menn. þegar þeir tala um landbúnað, ekki sízt ef þeir þykjast geta náð einhverju taki á því að sýna, að ekki fari þar allt eins úr hendi og æskilegt væri.
Það er eitt af því, sem verður vitanlega aldrei sannað, að fyrirspurnin sé fram komin vegna þess, að grein hafi birzt hér í blaði um það, að allt kjötið, sem hefði verið selt til Bandaríkjanna, eða svo til allt, væri ógreitt. En þegar fyrirspurn af þessu tagi kemur fram daginn eftir að blaðagreinin birtist eða rétt eftir að blaðagreinin birtist, þá þurfa nú fæstir að vera í vafa um það, af hvaða ástæðum hún er fram komin. Hún er vitanlega fram komin til þess að reyna — eins og kemur greinilega fram hjá þessum hv. þm. í þeirri ræðu, sem hann hér hefur flutt — að ófrægja þessa tilraun, sem verið er að gera til þess að vinna markað fyrir eina helztu framleiðsluvöru Íslands. Það er m. a. sagt, að úrvalskjötið hafi verið flutt út. Þessum ósannindum hefur verið mótmælt hér hvað eftir annað og gefnar fullkomnar skýringar á því, að þetta eru ósannindi. Þau eru endurtekin hér enn. Það er alveg fjarri því, að það hafi við nokkur minnstu rök að styðjast, að þetta sé úrvalskjöt. Það er meira að segja flutt út bæði 1. og 2. flokkur kjöts, verulegur hluti 2. flokkur, vegna þess að sumum kaupendunum geðjast betur að því kjöti.
Þá segir hv. 4. þm. Reykv., að það eigi nú að nota þetta kjöt til þess að leita fyrir sér um markaði, svo að allt er á sömu bókina lært. Það stendur ekki eitt einasta orð um það í bréfi Sambands ísl. samvinnufélaga, að það eigi að nota kjötið til þess að leita fyrir sér um markað. Hvar stendur það í því, sem ég las upp? Það stendur ekkert um það, hvort það er selt eða ekki, — það er rétt, — en mestar líkur tel ég til þess, þótt ég hafi ekki fengið upplýsingar um það, að kjötið sé selt fyrir löngu, þó að greiðsla sé ekki komin. Hér er enn verið að reyna að koma þessu sama af stað, að kjöt, sem hafi verið flutt út og mikil þörf hafi verið fyrir hér, sé nú í Bandaríkjunum, skemmt, og sé verið með því kjöti að leita að markaði í Bandaríkjunum núna, sama rangfærslan eins og það, að úrvalskjötið sé flutt út, sem, eins og fyrr segir, er ósatt. Ég vildi sjá, hvað þær yrðu margar fsp. hérna á Alþ., ef spurt væri um það í hvert skipti, sem fiskur er sendur úr landi og fisksendingar eru ekki greiddar. Hvað ætli þær séu margar fisksendingarnar, sem ekki hafa verið greiddar um lengri tíma og ekki eru greiddar enn sumar hverjar? Það heyrist aldrei rætt um það, þegar verið er að leita fyrir sér um markaði og fiskur er sendur út, þannig að hann er ekki greiddur svo að mánuðum skiptir og um margfalt hærri upphæðir að ræða en þessar, sem hér er um rætt. Það er ekki verið að spyrja um það. En ef kjöt er sent út til þess að leita eftir markaði fyrir það og sumir hv. þm. gera sér vonir um að geta ófrægt það fyrirtæki, sem er að leita fyrir sér um markaði, þá er undireins gripið tækifærið. Það er heldur ekkert rætt um það, þegar verið er að tala um vöntun á kjöti hér í landinu, hvernig sé að fá fisk hérna í bænum. Ég held þó, að það sé atriði, sem engu síður væri þörf á að ræða um, en kjötskortinn.
Ég ætla svo ekki að ræða frekar um þetta. En það virðist yfirleitt vera þannig, að þó að flestar þjóðir og þær, sem búa hér nálægt okkur og hafa úr meiru að spila en við, neiti sér um margar af þeim vörum, sem þær framleiða heima hjá sér, þá er það þannig, að það má hér ekki leita fyrir sér um markaði á íslenzku dilkakjöti, ef það verður til minnstu óþæginda einn eða tvo mánuði, án þess að risið sé upp til þess að gera árásir á bændastéttina og þau fyrirtæki, sem eru að leita fyrir sér með þessa markaði.