15.10.1952
Sameinað þing: 5. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í D-deild Alþingistíðinda. (2752)
53. mál, kjötútflutningur til Bandaríkjanna
Landbrh. (Hermann Jónasson):
Það skortir ekki, að það eru bornar sannanirnar upp í hendurnar á mér í hvert skipti, sem þessir þm. tala. Nú er farið að dylgja um það, að þessir peningar muni aldrei koma, verið að dylgja um það, að þessi maður er kjötið keypti, sé orðinn gjaldþrota. Þetta eru dylgjurnar, sem hafa verið bornar út hér um bæinn. (Gripið fram í: Það er bara fyrirspurn.) Fyrirspurn? Ætli það sé ekki sams konar fyrirspurn og hér er um rætt, ætli það sé ekki sama eðlið í því öllu saman? Svo er annað. Það er sagt, að það sé verið að senda út kjöt, sem nægur markaður sé fyrir í landinu. Geta þessir hv. þm. ekki skilið það, að þegar verið er að auka sauðfjáreign landsmanna, sé of seint, þegar kjötframleiðslan er orðin miklu meiri, en landsmenn þurfa á að halda, að leita fyrir sér allt í einu með markaði, bíða með það þangað til? Þeir geta ómögulega skilið, að það þurfi 2–3 ár til þess að vinna markaði, áður en kjötið selst í stórum stíl, en það er það, sem verið er að gera með þessum umræddu sölutilraunum.
Í annan stað er atriði, sem sýnir ljóslega, hve ófróðir þessir þm. eru um allt, sem snertir þetta mál. Þeir eru að tala um það, að ég hafi sagt, að það hafi verið selt eitthvert kjötrusl úr landi. Þeir vita náttúrlega ekkert um það, að eftir gæðaflokkunum íslenzku er íslenzkur smekkur þannig, að kjötið þarf að vera feitt, skrokkarnir mjög stórir, sem fylgist vanalega að. En hjá sumum erlendum neytendum er það þannig, að þeim þykir betra, að kjötið sé magrara, skrokkarnir minni og þykir betri 2. flokkur, af því að þeir borða yfirleitt ekki kjötfitu; sem sagt: þeim þykir mörgum 2. flokkur betri en 1. flokkur. Þetta er bara eitt meðal annars, sem auðséð er að alþm., sem síðast talaði, veit ekki nokkurn skapaðan hlut um og leggur það út þannig, að ég hafi sagt, að það væri flutt út rusl.