29.10.1952
Sameinað þing: 8. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í D-deild Alþingistíðinda. (2767)
91. mál, réttarrannsókn á starfsemi S.Í.F.
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Mér finnst nú hv. þm. gera mér nokkuð hátt undir höfði, ef hann telur, að þær reglur, sem hér á landi gilda um meiðyrði og refsingar fyrir þær, séu settar af mér. Sannleikurinn er sá, að sú löggjöf var sett áður en ég kom á þing — núverandi löggjöf — og var sniðin eftir því, sem tíðkast hjá öðrum vestrænum þjóðum. Hjá Íslendingum og öðrum menningarþjóðum tíðkast sem sé sá siður, að sá, er ber fram ákæru gegn öðrum, verður að sanna sakaratriði. Við vitum það, að hv. þingmaður vill hafa annan hátt á. Hann vill fá að vera ákærandinn og með ákærunni einni geta dæmt menn jafnvel til dauða, að minnsta kosti til pyntingar og þrælkunar. Það er þessi munur á réttarhugmyndum sem svo glögglega kemur fram. Hv. þm. telur, að það sé sérstaklega illa með sig farið og hafi verið fyrir sérstök áhrif mín á réttarvörzluna í landinu, að því er skilja varð, að hann hefði verið dæmdur fyrir það að bera fram sakargiftir, sem hann hefur ekki reynzt maður til að færa nein rök að, þegar honum gafst færi á því að standa við þær fyrir dómstólunum. Sem betur fer, þá eigum við, alveg án minnar tilhlutunar, við þá réttarskipun að búa, að slefberinn, óþokkinn, sem finnur upp á því að hafa eftir eða skrökva upp sakargiftum á náunga sinn, verður dæmdur. Það er á honum, sem sönnunarskyldan hvílir um það, að það sé ástæða fyrir hans söguburði. Og það er vegna þess, að í þessum málum, eins og svo ótalmörgum öðrum málum, hefur reynzt, að söguburður hv. þm. og hans virðulega blaðs er söguburður slefberans, óþokkans, sem hann fékk á einum og sama degi þá refsidóma, sem ég áðan gat um.
Ég verð nú að segja, að það er nánast broslegt, þegar þess í hv. þm. fer hér að sakast við mig um það, að ef ég þyrði að láta nafns míns getið, þá mundu einhverjir menn hafa getað fengið mig dæmdan tugum eða hundruðum sinnum fyrir einhverjar greinar í Morgunblaðinu. Ég veit ekki, hvað hv. þm. á við í einstökum atriðum, því að ef hv. þm. hefði talið, að þarna væri um slíkt að ræða, að refsingu ætti skilið, og hann vildi koma refsingu fram, þá var honum nær að höfða mál á hendur þeim mönnum, sem ábyrgð bera á því, sem í Morgunblaðinu stendur. Það er í lófa lagið eftir landsins lögum fyrir hann að koma fram refsingu á hendur þeim mönnum, sem á þessu eru ábyrgir. En það gleður mig vissulega, ef hv. þm. eignar mér að einhverju leyti þá góðu baráttu, sem Morgunblaðið hefur gegn hans óþjóðhollu stefnu. Því miður á ég þar ekki eins mikinn hlut að og hv. þm. virðist halda, en það hvetur mig mjög til frekari átaka í því, þegar ég finn, hversu illa er komið við hv. þm. í þeim meinlausu greinum, sem í því góða blaði hafa birzt um hann og hans flokk. En nokkuð langt er gengið, að hv. þm. skuli gera svo lítið úr sér að fara að finna að þessu hér í þinginu og segja, að hann hefði getað fengið mig dæmdan fyrir einhverjar greinar í Morgunblaðinu, bara ef ég hefði sett nafn mitt við þær, — maðurinn, sem ber ábyrgð á blaði, sem er alveg ýkjulaust hægt að segja um, að það sé undantekning sá dagur, síðan ég gerðist ráðherra fyrir nærri sex árum, að ég hefði ekki getað fengið ábyrgðarmenn blaðsins — þá, sem ábyrgir eru að lögum fyrir skrifum í það — dæmda í stórsektir og ekki aðeins eina sekt á dag, heldur sjálfsagt oft tíu sektir á dag. Ég segi fyrir mitt leyti, að mér hefur aldrei komið þetta til hugar. Ég met ekki þessa menn svo mikils, að ég vilji vera að ónáða dómstólana við það að vera að elta þeirra óþverra þar uppi. Ég læt mér nægja þá fyrirlitningu, sem þessir menn baka sér hjá öllum góðum mönnum fyrir þeirra sorpskrif, óþverra, sem að vísu má segja að setji blett á okkar land og okkar þjóð, en það er líka þjóðin, sem svarar fyrir það við almennar alþingiskosningar. En það má hins vegar vel vera, að það væri víst þrifaverk bæði gagnvart þessum þingmanni og öðrum sorpblöðum, sem nokkuð eru farin að tíðkast hér — því miður um of — ef menn almennt tækju sig saman um að láta þessa menn svara til saka, vegna þess að hv. þm. starfar í því skjóli, að lögin eru ekki látin ná til hans. Það vita allir þm., og alþjóð veit það, að sólin gengur ekki til viðar einn einasta dag, þegar þetta blað kemur út, svo að ekki sé þar sérstaklega um mig og ýmsa aðra góða menn sá óhróður, að mikil refsing lægi við, ef menn nenntu að eltast við hann. En eins og ég segi: Ég læt þjóðina sjálfa um það að dæma það við almennar alþingiskosningar. Þetta er einn þátturinn í hinni pólitísku baráttu — að vísu einn af þeim ógeðfelldari, ekki vegna þess, að mér standi ekki sjálfum á sama um þetta, heldur vegna þess, að það sýnir veikleika hjá þjóðinni, að nokkur einstaklingur hennar skuli vilja gripa til slíkra ráða og tíðkuð eru í þessari blaðamennsku.
Varðandi þau atriði, sem hv. þm. gerði hér að umræðuefni og sagði, að ég hefði ekki upplýst, þá svaraði ég fyrirspurninni eins og hún var lögð fram og eins og efni stóðu til. Það er nú auðséð, að hv. þm. vildi eftir á, að fyrirspurnin hefði verið með allt öðrum hætti. Hann hefði nú eftir á viljað spyrja um pólitísk atriði í þessu sambandi, en ekki þau, sem heyra undir réttarrannsóknina, og það er alveg ljóst, af hverju það kemur, af hverju hv. þm. reynir nú að koma sér inn á aðra braut. Það er vegna þess, að hann hélt, að rannsókn hefði ekki verið lokið og mál hefði ekki verið fyrirskipað, þannig að þetta kæmi ekki undir úrskurð dómstólanna, og þá ætlaði hann að reyna að setja mig í vanda og dómsmálastjórnina fyrir það, að við hefðum þarna sýnt einhverja hlífð. Þegar hann svo uppgötvar, að eigin sögn, fyrir fáum dögum, að málsókn var fyrirskipuð fyrir mörgum mánuðum, dómur genginn fyrir mörgum mánuðum og málið komið til hæstaréttar, þá reynir hv. þm. að færa málið yfir á allt annan grundvöll, þá fer hann almennt að tala um saltfisksverzlun Íslendinga og gera hana tortryggilega. Þetta er atriði, sem hefur nú um áratugi verið einn af áróðursþáttum þessara manna í íslenzkum stjórnmálum. Í því gerist í sjálfu sér ekki neitt nýtt, blekkingarnar eru þær sömu, — blekkingar þær, sem útvegsmenn sjálfir hafa fordæmt. Ef útvegsmenn sjálfir, sem mest eiga í húfi, tryðu nokkru af því, sem fram kemur hjá hv. þm. og hans félögum í þessari rógstarfsemi, þá mundu þeir hafa tekið stjórnina af núverandi forustumönnum S. Í. F. eða lagt þann félagsskap niður. Það hafa þeir ekki gert, vegna þess að þeir hafa metið þessar ásakanir sem ómerk ómagaorð.
En nú vil ég beina einni áskorun til hv. þm.: Ef hann veit, að íslenzkur saltfiskur er svona dýrt seldur úti í löndum, hví í ósköpunum útvegar hann þá ekki sjálfur tilboð frá öðrum, t. d. vinum sínum fyrir austan járntjaldið, í að kaupa þennan fisk? Hví í ósköpunum reynir þessi dindill aftan í rússneska ríkinu ekki að minnsta kosti að hafa þau áhrif á sjálfan búkinn, að hann fáist til þess að svara öllum þeim tilboðum, sem íslenzka ríkisstj. hefur gert Rússum um að selja þeim afurðir á síðustu árum? Allt frá því að Rússar áttu skipti við okkur um tveggja ára bil, 1946 og 1947 þá hafa Íslendingar hvað eftir annað leitað til rússneskra yfirvalda og farið þess á leit við þau, að upp verði tekin mjög víðtæk verzlunarviðskipti. Yfirleitt höfum við aldrei fengið svör, hvað þá heldur meira, við þeim málaleitunum, sem við höfum borið fram í þessum efnum, og það er eftirtektarvert, að þegar nýr rússneskur sendifulltrúi kom til Íslands á s. l. vori og heilsaði upp á mig, þá bar tal okkar með eðlilegum hætti að því, að þessi viðskipti hefðu ekki tekizt á undanförnum árum. Rússneski sendifulltrúinn virtist telja, að þar hefði staðið á íslenzkum yfirvöldum. Þetta varð til þess, að ég þá þegar í stað sendi honum bréf, þar sem ég rakti ýtarlega það, sem fram hafði farið, með tilvitnunum í dagsetningar um tiltekin samtöl og tiltekin bréf, og óskaði þess, að hann í framhaldi af þeim góðu orðum, sem hann hafði haft við mig, og frómum áhuga hans fyrir viðskiptunum hlutaðist nú til um, að úr þeim gæti orðið. Þetta bréf var sent snemma í vor eða seinni part vetrar. Það er ekki komið svar til ríkisstj. enn í dag, ekki einu sinni viðurkenning fyrir því, að rússneska sendiráðið hafi móttekið bréfið. Það varð til þess, að við hinn 7. okt. — minnir mig — ítrekuðum málaleitun okkar til rússneska sendiráðsins hér um þetta og óskuðum eftir þeirra undirtektum um þessi málefni. Það eru nú að vísu ekki liðnar nema nokkrar vikur síðan, en þær hafa líka liðið án þess, að við fengjum nokkurt svar.
Og það er ekki þannig, að einstakt sé um málaleitanir íslenzku stjórnarinnar. Hv. þm. Siglf. lét einu sinni orð falla að því hér í hv. þingi, að ekki væri von til þess, að rússneska stj. vildi kaupa saltfisk, saltsíld eða freðfisk af Íslendingum, meðan jafnvondur maður og Bjarni Ben. væri utanrrh. Það hefur líka tekizt þannig til, að þetta hefur verið reynt eftir fleiri leiðum. Það var haldin mikil viðskiptaráðstefna í Rússlandi á s. l. vori, og þangað fóru einhverjir íslenzkir viðskipta- og kaupmenn. Einhver þeirra lagði trúnað á öll þau fögru orð, sem þar voru sögð, að Rússar vildu hafa viðskipti við lýðræðisþjóðirnar, og í framhaldi af því mun hafa verið leitað eftir ákveðnum viðskiptum. Samkvæmt því, sem mér er tjáð, hefur ekkert svar fengizt við þeirri málaleitun, sem send var og byggð var á þeim ummælum, sem þessi maður hafði heyrt á þessari viðskiptaráðstefnu austur í Moskva.
Hér var í sumar haldið mikið þing samvinnumanna, eins og menn muna, og þar voru Rússar mættir í mikilli n., og form. þeirrar n. mælti fögrum orðum um það á þessum fundi, að Rússar vildu hafa viðskipti við lýðræðisþjóðirnar, það stæði alls ekki á Rússum, heldur á lýðræðisþjóðunum um það. Þetta varð til þess, að S. Í. S. aflaði sér heimildar til þess að gera tilboð til Rússa um sölu á ákveðnum vörum, og eftir því sem mér er tjáð, þá hefur enn ekki borizt svar við þessum tilboðum, þótt margir mánuðir séu liðnir. Þannig fer ætíð, þegar þetta er skoðað ofan í kjölinn.
Eftir að skjöl eru fram lögð og ótvíræðar sannanir settar fram, þannig að allir heilskyggnir menn sjá, hver sannleikurinn er, þá kemur hv. þm. engu að síður til þess að segja: Það stendur eingöngu á íslenzku stjórninni, það stendur á því, að hún hindrar viðskiptin, það er hún, sem vill halda verndarhendi yfir einokunaraðstöðu S. Í. F. og þeirra herra, sem þar eru að féfletta almenning. — Þetta verður sú saga, sem hv. þm. kemur til með að segja í sínu blaði á ókomnum mánuðum. Það mætti segja, að það væri nokkur freisting, þegar sá þvættingur fer að birtast með meinyrðum, illyrðum og ljótum getsökum, að taka hv. þm. hvern einasta dag og fá hann dæmdan í nokkur hundruð króna eða þúsund króna sekt, — kannske eina á hverjum klukkutíma, ef menn vildu svo við hafa. Ég geri nú samt ekki ráð fyrir því, að ég nenni að eltast við það. Ég tel, að ómerk séu ómagaorðin.