05.11.1952
Sameinað þing: 10. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í D-deild Alþingistíðinda. (2801)

110. mál, malbikun vega

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti, Út af þessari fyrirspurn frá hv. 4. landsk. þm. vil ég aðeins upplýsa það, að fjmrh. hefur ekki gert ráð fyrir þeim gjaldaliðum á fjárlögum, sem hann spyr um, af því að ákvæði 8. gr. l. nr. 84 1932 um þetta efni var numið úr gildi með l. nr. 27 frá 1947.