14.01.1953
Sameinað þing: 28. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 362 í D-deild Alþingistíðinda. (2833)

144. mál, risnukostnaður

Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir mjög glögg og greinargóð svör við þessum fyrirspurnum okkar hv. þm. Ísaf. Hæstv. forsrh. staðfesti, að það er rétt, sem ég sagði í fyrri ræðu minni, að ríkissjóður greiðir ýmsum embættismönnum og opinberum starfsmönnum peninga sem risnukostnað, án þess að það sé tekið fram í fjárlögum, og taldi upp ýmsa embættismenn, sem fá slíkar fjárgreiðslur.

Ég skil ekki, hvers vegna verið er að tilgreina í fjárlögum risnukostnað sumra embættismanna, en sleppa öðrum. Þetta er auðvitað óeðlilegt, og úr þessu á að sjálfsögðu að bæta. Það ætti líka að fylgjast með því, hvort þessir peningar eru raunverulega notaðir til greiðslu risnukostnaðar eða hvort þeir eru einvörðungu launauppbót, sem með þessum hætti yrði skattfrjáls. En að greiða launauppbætur í slíku formi er auðvitað einnig óeðlilegt og aðfinnsluvert.

Eitt atriði var ekki alls kostar ljóst í upplýsingunum, sem hæstv. forsrh. gaf um, hvaða aðilar það væru, sem nytu hlunninda hjá Áfengisverzluninni að því er snertir verð á vörum hennar. Hann sagði, að það væri forseti, ríkisstjórn og ráðuneytin, auk forseta og varaforseta Alþingis. Ég vil geta þess, að mér var ekki kunnugt um það áður, að varaforsetar Alþingis nytu einnig þessara hlunninda, en það, sem mér var ekki ljóst, var, hvað það þýddi, að ráðuneytin nytu einnig þessara áfengishlunninda. Þýðir þetta það, að skrifstofustjóri eða starfsmenn í ráðuneytunum njóti sömu hlunninda, eða gilda þau eingöngu fyrir ráðherrana sjálfa? Fyrst slík hlunnindi eru veitt á annað borð, þá eiga ráðherrar auðvitað að vera í hópi þeirra, sem þessara hlunninda njóta, þótt um hlunnindin sjálf megi mjög deila. En hitt þykir mér nokkurs um vert að fá upplýst, hvort sömu hlunnindi gildi einnig fyrir einstaka starfsmenn ríkisstjórnarinnar í ráðuneytunum.

Mér finnst tölurnar, sem nefndar voru um viðskipti þessara hlunnindaaðila við Áfengisverzlunina, vera allháar. Hæstv. ráðh. gat þess, vafalaust réttilega, að það væri mjög erfitt að reikna út eða áætla, hvert væri útsöluverð þessara viðskipta. Dreg ég það ekki í efa, enda er álagningin vafalaust mjög misjöfn. Ég hef einhvern tíma heyrt, að það væri mjög varlega áætlað að gera ráð fyrir því, að innkaupsverð áfengis til uppjafnaðar mundi vera um 1/6 hluti útsöluverðsins, og væri það mjög varlega áætlað, sérstaklega ef tekið væri ekki fullt tillit til brennivínsins, sem álagning er mjög mikil á, en mikið tillit til borðvína. En viðskipti þessara aðila við áfengisverzlunina eru auðvitað að mjög verulegu leyti fólgin í kaupum borðvina, en að mjög litlu leyti vafalaust í kaupum á hinum sterkustu brenndu drykkjum. Ef gert er ráð fyrir því, að útsöluverðið sé 1/6 hluti, þá hafa viðskipti ríkisstj. við áfengisverzlunina til risnu numið 387 þús. kr. að útsöluverði á árinu 1951. Það er meira en 1.000 kr. á dag til kaupa á áfengum drykkjum til risnu. Forsetar Alþingis hafa þá keypt áfengi fyrir tæpar 80 þús. kr. að útsöluverði, þ. e. yfir 200 kr. á dag, miðað við útsöluverð.

Það var þannig staðfest hjá hæstv. forsrh., að peningar greiddir til risnu eru meiri en fram kemur í fjárlögum. Úr því finnst mér að hæstv. ríkisstj. eigi að bæta. Enn fremur finnst mér þær tölur, sem nefndar voru um áfengisviðskipti forréttindaaðilanna, vera óeðlilega háar og vildi beina því til hæstv. ríkisstj., þó sérstaklega fjmrh., að framvegis verði gætt um þetta þess hófs, sem telja má nauðsynlegt og eðlilegt.