26.11.1952
Sameinað þing: 16. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í D-deild Alþingistíðinda. (2845)
224. mál, skattmat eigin húsnæðis til tekna
Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Í blaði hæstv. fjmrh. var fyrir nokkrum dögum greinaflokkur, þar sem rætt var um skattmat á eigin húsnæði til tekna húseigendum. Var þar mjög undan því kvartað, að skattmat á eigin húsnæði hér í Rvík væri of lágt, og talið, að húseigendum væri þar mjög ívilnað samanborið við leigjendur. En svo sem kunnugt er, þá er húsnæði reiknað húseigendum til tekna hér í Rvík allt að 30% af fasteignamatsverði, nokkuð mismunandi þó eftir því, hvað húsin eru gömul.
Nú skal ég ekki á þessum stað og á þessari stundu ræða það, hvort fullkomið samræmi sé á milli skattmats á eigin húsnæði hér í Rvík, samanborið við þá leigu, sem leigjendur verða að greiða. En á hinu leikur mér nokkur forvitni að vita, hvort samræmi sé á milli skattmats eigin húsnæðis í Rvík annars vegar, í kaupstöðum hins vegar og svo í þriðja lagi í sveitum, því að sé ástæða til þess að kvarta yfir því, að skattmat á eigin húsnæði hér í Rvík sé ekki nógu hátt miðað við það, sem leigjendur verða að greiða, þá er ekki að ófyrirsynju spurt um það, hvort eigin húsnæði sé metið eins í Rvík annars vegar, í öðrum kaupstöðum í öðru lagi og svo í þriðja lagi í sveitum. Mér er ekki grunlaust um, að meira misræmis gæti á milli skattmats á eigin húsnæði í Rvík og öðrum kaupstöðum og sveitum, heldur en gætir nú á milli skattmats eigin húsnæðis og húsaleigugreiðslna hér í Rvík. Af þessum sökum er þessi fyrirspurn fram borin.