20.01.1953
Neðri deild: 53. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í C-deild Alþingistíðinda. (2916)
145. mál, skipun læknishéraða
Jón Pálmason:
Herra forseti. Ég verð nú að láta í ljós dálitla undrun yfir afstöðu hv. heilbr.- og félmn. varðandi mína brtt. á þskj. 238, og það er sérstaklega vegna þess, hvernig forsaga þessa máls er. Hún er sú, að á síðasta Alþ. flutti þessi sama n., hv. heilbr.- og félmn., frv. um það, sem mín brtt. fjallar um, og það frv. var flutt í samráði við hæstv. heilbr.- og félmrh. og landlækni og eftir beiðni minni. Þetta frv. var samþ. með breytingu hér í þessari hv. d., en dagaði uppi í hv. Ed. Nú virðist, þegar flutt er frv. um aðra læknishéraðaskiptingu og ég flyt þessa brtt. þar við, að þá hefði átt að liggja ljóst fyrir, að þessi hv. þn., heilbr.- og félmn., sem flutti þetta mál í fyrra og fylgdi því drengilega fram, hefði að sjálfsögðu átt að taka mína till. fyrst og fremst inn í, um leið og hún gerir brtt. við frv., og skeyta það þá saman.
Ég skal ekki fara mikið inn á það að ræða þær brtt., sem hér koma frá meiri og minni hl. hv. n., því að það er í sjálfu sér ekki mikið viðkomandi minni brtt. En eins og tekið er fram af hv. 3. landsk., þá er það augljóst mál, að það eru miklu meiri rök, sem fyrir því liggja að skipta Blönduóshéraði, heldur en að skipta Egilsstaðahéraði, og sýndi það sig líka á síðasta þingi, að bæði viðkomandi ráðh. og landlæknir mæltu með því, en a. m. k. landlæknir virðist mæla gegn því, að Egilsstaðahéraði sé skipt. En ég vil út af tilmælum hv. frsm. heilbr.- og félmn. gjarnan verða við þeirri ósk n., úr því sem komið er, að biðja ekki um atkv. um mína brtt., nema því aðeins að bæði brtt. meiri hl. n. og dagskrártill. minni hl. n. verði felldar, því að ef það er nú hvort tveggja gert, þá á mín brtt. að sjálfsögðu við frv. Verði hins vegar brtt. meiri hl. hv. n. samþykktar, þá er það rétt hjá hv. frsm., að það þarf nokkuð að breyta formi á minni brtt. frá því sem hún nú er, því að hún er stíluð við frv. eins og það nú liggur fyrir.
Það eitt vil ég segja í sambandi við ræðu hv. 3. landsk., minni hl. n., að mér þykir ekki viðeigandi að gera samanburð á því að fjölga prófessorum við háskólann og hinu að sinna nauðsynlegum beiðnum um það, að fólkið úti á landsbyggðinni geti notið læknishjálpar. Og það er ekkert ósamræmi í því hjá hv. þdm. hér, þó að þeir hafi fellt að fjölga prófessorum við háskólann, að samþ. nú að fjölga eitthvað héraðslæknunum í landinu. Ekki sízt þess vegna mun ég að sjálfsögðu greiða atkv. gegn hans dagskrá og tel það ekki að neinu leyti ósamræmi í afstöðu hvorki minni né annarra hv. þdm.