22.01.1953
Neðri deild: 55. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í C-deild Alþingistíðinda. (2928)
145. mál, skipun læknishéraða
Forseti (SB):
Það er nú að vísu svo, að brtt. hv. þm. A-Húnv. hljóðar um það, að á undan 1. gr. komi ný gr., en brtt. hv. n. eru um það, að í stað 1. og 2. gr. komi inn ný gr. Ef ekki koma andmæli gegn því, að fyrst verði bornar upp brtt. hv. n., þá mun verða orðið við þeirri ósk hv. þm.
Brtt.522.1 (ný 1. gr., í stað 1. og 2. gr.) samþ. með 19:3 atkv.
— 238 tekin aftur.
— 522,2 samþ. með 19 shlj. atkv.
3. gr., (verður 2. gr.), svo breytt, samþ. með 19 shlj. atkv.
Brtt.522,3 (ný 4. gr., verður 3. gr.) samþ. með 19 shlj. atkv.
— 522,4 (brbákv. falli burt) samþ. með 18 shlj. atkv.
- 522,5 (ný fyrirsögn) samþ. án atkvgr.
Frv. vísað til 3. umr. með 18 shlj. atkv., með fyrirsögninni:
Frv. til l. um breyt. á l. nr. 52 1942, um breyt. á l. nr. 44 93. júní 1932, um skipun læknishéraða, verksvið landlæknis og störf héraðslækna.