23.01.1953
Neðri deild: 56. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í C-deild Alþingistíðinda. (2929)
145. mál, skipun læknishéraða
Jón Pálmason:
Herra forseti. Sú brtt., sem ég bar hér fram við 2. umr. varðandi skiptingu á Blönduóshéraði, var vegna breytinga, sem gerðar voru á frv. við þá umræðu, tekin aftur til 3. umr., en nú hef ég leyft mér að flytja hana aftur, og er hana nú að finna á þskj. 588. Ég hef ekki fengið neina yfirlýsingu frá hv. heilbr.- og félmn. um það, hvort hún mæli með þessari till. eða ekki, en að sjálfsögðu reikna ég með því sem eðlilegum hlut, að hv. n. mæli með till., vegna þess að hún flutti hana óskipt að efni til á síðasta þingi, og var þetta mál samþykkt ásamt fleiri atriðum varðandi læknaskipunina — ég held mótatkvæðalaust — hér í þessari hv. d., en dagaði uppi í hv. Ed. Ég hef áður fært rök fyrir þessu máli og sé ekki ástæðu til að endurtaka þau, en vænti þess, að hv. þm. geti fallizt á að samþykkja þessa brtt.