24.11.1952
Efri deild: 30. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í B-deild Alþingistíðinda. (296)
36. mál, hafnarbótasjóður
Gísli Jónsson:
Ég vil nú þakka bæði hv. frsm. og hv. formanni n. fyrir að vilja taka til athugunar fyrir 3. umr. þau atriði, er ég benti á, og mun ég að sjálfsögðu ekki standa á móti því, að málið nái fram að ganga við þessa umræðu, og greiða atkv. með því, að því verði vísað til 3. umr.
Út af því, sem hv. frsm. sagði, að það væri erfitt að komast fram hjá till. vitamálastjóra um fjárveitingar úr sjóðnum, þá vil ég benda hv. frsm. á það, að á þessu hafa ekki verið neinir erfiðleikar síðan sjóðurinn var stofnaður. Þetta ákvæði hefur ekki verið í lögunum. Það er fyrst komið inn í lögin af einhverri vangá í brbl., svo að ég hygg, að það séu ekki meiri vandkvæði á að framfylgja því framvegis, heldur en hefur verið hingað til. Um hitt, að það væri eðlilegt að setja um það heildarlöggjöf, hvaða kostnað ríkissjóður ætti að bera af tjónum, sem stafa af vanrækslu ráðamanna ríkisins, — og minntist hann þar á bæði vegamál og brúarmál, — þá vil ég benda hv. flm. á, að það bara gegnir þar allt öðru máli. Öll þau tjón, sem verða á brúm og vegum, eru borin af ríkissjóði, en ekki af héruðunum. Ef brú fellur niður, eins og dæmi eru til, annaðhvort við flóð eða af öðrum náttúruvöldum eða fyrir vanrækslu, þá er þetta samstundis bætt af ríkinu, án þess að nokkuð komi á móti úr héraði, það er hv. þm. vel kunnugt um. (Gripið fram í.) Það dreg ég ekkert í efa, því að ég veit það. Ég get m.a. bent hv. þm. á það nú, að það hafa hvorki meira né minna en 570 þús. kr. verið látnar í brú í Skaftafellssýslu í sumar, vegna þess að flóð tóku hana af. Mér er kunnugt um aðrar brýr á landinu, sem hafa hrunið, ýmist vegna þess að náttúruöfl hafa verið að verki eða ekki hefur verið nægilega gengið frá þeim frá tæknilegu sjónarmiði, og það hefur aldrei komið til héraðanna að greiða það. Það kann að vísu að vera, — ég þekki það ekki, — að brýr, sem hafa verið endurbyggðar yfir ár, sem liggja yfir sýsluvegi, hafi að einhverju leyti verið greiddar úr héraði; en þá hefði sannarlega verið sanngjarnt, að það væri greitt að fullu úr ríkissjóði. — Hér er um að ræða atriði, þar sem viðkomandi aðilum er fyrirskipað og gert að skilyrði til þess að fá styrk, að ákveðnir verkfræðingar og ákveðin yfirstjórn skuli ráða öllum þessum málum, og hér fá þeir ekkert um það að segja. Það er ekki einu sinni tekið til athugunar, þó að kunnugir menn heima fyrir bendi alveg ákveðið á, að það sé verið að fara út í forað í vissum framkvæmdum, heldur er haldið áfram til stórkostlegs tjóns, ekki einungis fyrir ríkissjóðinn, heldur og fyrir héruðin, og það á hvergi nokkurs staðar heima annars staðar, en í þessum lögum að setja varnagla við slíku. Ég vildi gjarnan spyrja hv. frsm. að því, hvað er átt hér við í enda 1. liðar greinarinnar, þar sem sagt er: „eða af öðrum slíkum óviðráðanlegum orsökum.“ Ef orðið „slíkum“ er fellt í burtu, þá er fullnægt alveg mínum kröfum hér í þessu máli, því að þá er sýnilegt, að það á að bæta, ef tjónið verður af völdum ofviðris, af sandburði, af völdum jarðskjálfta eða flóða eða af öðrum óviðráðanlegum orsökum, og það er sannarlega fyrir héraðið óviðráðanleg orsök, að einhver maður hérna í Reykjavík situr og gerir vitlausar teikningar eða undirbýr verk þannig, að það getur ekki staðizt. Ég vil því mjög mælast til þess, að nefndin athugi þetta við 3. umr., því að þetta er ákaflega mikið atriði fyrir héruðin.