10.10.1952
Efri deild: 6. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í C-deild Alþingistíðinda. (2974)
33. mál, áfengislög
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Hinn 28. apríl 1951 skipaði ég eftirtalda menn til að endurskoða áfengislög landsins, þá Gústaf A. Jónasson skrifstofustjóra, formann nefndarinnar, Brynleif Tobíasson áfengismálaráðunaut, Jóhann G. Möller forstjóra, Ólaf Jóhannesson prófessor og Pétur Daníelsson hótelstjóra. Nefnd þessi hefur nú lokið störfum og samið frv. að nýjum áfengislögum, og legg ég frv. fram sem stjfrv. óbreytt eins og mér barst það frá nefndinni. Það er að vísu svo, að ég hef átt tal við formann nefndarinnar, skrifstofustjórann í dómsmrn., og áfengismálaráðunautinn, Brynleif Tobíasson, um einstaka þætti málsins, meðan stóð á samningu frv. Það var þó meir af tilviljun heldur en að svo væri háttað, að öll ákvæði frv. væru tekin upp til umr. okkar á milli. Eins átti ég þess kost að renna augunum yfir frv. í heild nokkru áður, en því var skilað til ráðuneytisins og ræddi eftir það nokkur atriði málsins við skrifstofustjórann og áfengismálaráðunautinn, en engu að síður er frv. algerlega nefndarinnar verk, en ekki till. mínar né ríkisstj., og ríkisstj. í heild er því óbundin af frv., og sjálfur tel ég að einstökum atriðum frv. sé betra að breyta frá því, sem það er hér lagt fram, þrátt fyrir það að ég telji frv. í heild vera til bóta frá því, sem verið hefur.
Helztu nýmæli frv. og breytingar frá eldri lögum eru þau, að í 1. gr. er það tekið fram, að tilgangur laganna skuli vera sá að stuðla að hóflegri meðferð áfengis og vinna gegn misnotkun þess. Slík stefnuyfirlýsing er ekki í núgildandi lögum. Ákvæðið er því nýtt og hefur þýðingu sem almenn stefnuyfirlýsing, en einnig sem lögskýringaratriði, þannig að ef vafi er á, hvernig skilja beri einstök fyrirmæli l., þá ber að hafa hliðsjón af þessari almennu stefnuyfirlýsingu, sem þarna er gefin.
Í 2. gr. er skilgreining á sterkum drykkjum og léttum vínum. Slík skilgreining hefur eigi áður verið í lögum, en rétt þótti að setja hana sérstaklega, þar sem sá möguleiki er til samkv. frv., að settar verði reglur um veitingasölu léttra vína, en bannað verði að hafa sterk vín til sölu á almennum veitingahúsum.
Þá er það nýmæli og eitt hið helzta í frv., að ríkisstj. er gefin heimild til að veita Áfengisverzlun ríkisins leyfi til að brugga hér áfengt öl. Slíkt leyfi getur ríkisstj. þó því aðeins gefið, að hún hafi áður borið það efni undir atkv. allra kosningabærra manna í landinu og hafi meiri hluti þeirra, sem þátt tóku í atkvgr., goldið fyrirhugaðri leyfisveitingu jákvæði, sbr. 7. gr. frv. Upp í þá grein frv. hafa einnig verið tekin l. nr. 11 1952, um bruggun áfengs öls handa varnarliðinu hér á landi. — Ég vil taka það fram út af þessari till., að ef ástæða þykir til að setja slík ákvæði í l., sem ég á þessu stigi skal ekki taka afstöðu til, — þetta er till. n., en ekki mín, — þá tel ég sjálfsagt, að um það sé tekin ákvörðun á Alþ., hvort þjóðaratkvgr. skuli fara fram, en ekki af ríkisstj. Ég mundi sem ráðh. ekki óska eftir slíkri heimild og geri ráð fyrir, að ég mundi ekki beita henni. Ef Alþ. þannig telur ástæðu til, að um þetta fari fram þjóðaratkvgr., þá sé beinlínis sú ákvörðun tekin með l., en ekki látin vera á valdi ráðh.
Þá er samkvæmt gildandi áfengislögum ríkisstjórninni heimilt að undangenginni atkvgr. að setja á stofn áfengisútsölur í kaupstöðum og kauptúnum. Í frv. er lagt til, að þessi heimild sé bundin við kaupstaði, enda hefur engin áfengisútsala verið staðsett utan kaupstaðar fram til þessa. Ef frv. verður að l., verður óheimilt að stofnsetja áfengisútsölu í kauptúni.
Þá er ákvæði um héraðabönn tekið upp í frv. og gert ótvíræðara, en áður. Þau ákvæði eru nú nokkuð óljós og látin vera komin undir mati ríkisstj. á því, hvort milliríkjasamningar standi í vegi fyrir slíkri atkvæðagreiðslu. Að áliti utanrrn. eru engir slíkir samningar nú í gildi, sem mundu hindra héraðabönn. En langeðlilegast er einnig um þetta, að það sé beinlínis tekið fram og settar ákveðnar reglur um það, hvenær slíkar atkvgr. séu látnar fara fram, en ekki látið vera undir óvissu mati ríkisstj., enda er sannleikurinn sá, að mjög er efasamt, að meiri hl. Alþ. hafi, þrátt fyrir núverandi lagaákvæði um þetta, ætlazt til þess, að þessi héraðabönn væru sett á, og er því nauðsynlegt, að úr þessu sé skorið beinlínis af löggjafanum á þann veg, sem gert er með þessu ákvæði, og tel ég fyrirmælið til bóta.
Í 12. gr. frv. eru fyrirmæli varðandi leyfi veitingahúsa til vinveitinga. Felst í þeim ákvæðum mikil breyting frá gildandi lögum. Samkv. 11. gr. gildandi áfengislaga er dómsmrh. heimilt að veita einu veitingahúsi í Reykjavík leyfi til veitinga á áfengum drykkjum, sem til landsins má flytja. Í frv. felst að því leyti rýmkun, að ekki er í því gert ráð fyrir, að heimildin sé eingöngu bundin við eitt veitingahús. Síðan sú takmörkun var sett, hefur orðið mikil fjölgun t. d. hér í Reykjavík og ástand í veitingamálum allt annað en þá var, og því er ekki að leyna, að þessi takmörkun við eitt veitingahús hefur orðið til þess, að einstakar leyfisveitingar til vínveitinga á ákveðnum skemmtunum hafa verið veittar oftar en æskilegt væri, og hefur það valdið töluverðri deilu, sem ekki skal rakin hér, en það er ljóst, að undirstaða þess, hversu þau leyfi eru nú orðin fleiri en áður, er einmitt þetta, að hinar föstu vínveitingar eru bundnar við aðeins eitt veitingahús í bænum, og að halda því er nánast sagt óframkvæmanlegt eins og nú háttar. Það verður því um þessi efni að setja nýjar reglur. Það má deila um það, hvort frv. hafi í þeim efnum hitt rétt meðalhóf. Það liggur til athugunar hjá Alþ., en um hitt verður ekki deilt, að á nýjum reglum er þörf, og n. hefur sett þær reglur, sem hér eru lagðar til, að mjög athuguðu máli. Frv. gerir sem sagt ráð fyrir, að í kaupstöðum, þar sem áfengissala er á annað borð, geti dómsmrh. veitt veitingahúsi eða veitingahúsum leyfi til vínveitinga, þegar eftirtalin skilyrði eru fyrir hendi:
a) að veitingahúsið hafi á boðstólum mat og fjölbreytta óáfenga drykki;
b) að veitingahúsið sé að dómi stjórnar Sambands gisti- og veitingahúsaeigenda 1. flokks. Geta samkv. þessum fyrirmælum aðeins komið til greina fullkomin og 1. flokks veitingahús;
c) að eigi sé greitt þjórfé, þjónustugjald, af sölu áfengra drykkja né veitingahúsið launi starfsfólk sitt með hundraðsgjaldi af sölu þeirra. Þetta bann við þjórfé af áfengum drykkjum er hér algert nýmæli og er sjálfsagt sett til þess, að dregið sé úr hvöt einstaklinga til að halda víni að mönnum, ef svo má segja.
Loks er það skilyrði, að leitað sé umsagnar áfengisvarnaráðs, bæjarstjórnar og áfengisvarnanefndar í þeim kaupstað, sem í hlut á, áður en veitingahúsi er veitt leyfi til vínveitinga.
Samkv. frv. er aðalreglan sú, að leyfi til vinveitinga verði ekki veitt veitingahúsum utan kaupstaða. Frá þeirri meginreglu er þó gert ráð fyrir undantekningu. Þegar telja má, að veitingahúsrekstur utan kaupstaða sé aðallega vegna erlendra ferðamanna, er dómsmrh., að fengnu samþykki áfengisvarnaráðs og uppfylltum öðrum skilyrðum, heimilt að veita slíkum veitingastað leyfi til vínveitinga. Slíkar leyfisveitingar eru jafnan bundnar samþykki áfengisvarnaráðs. Ég geri ráð fyrir og hef af því fregnir, að n. hafi sérstaklega haft hér í huga flugstöð eins og á Keflavíkurflugvelli, en þar háttar þannig til, eins og menn vita, að óheimilt er að veita áfenga drykki, og er það, eins og þeim, sem nokkuð hafa ferðazt með flugvélum, er kunnugt, sjaldgæft, að slíkt sé bannað á flugstöðvum. Þvert á móti er það víðast gert að nokkrum mun og er ein af tekjulindum flugstöðvanna til að standa undir óhjákvæmilegum kostnaði og hefur að sjálfsögðu engin áhrif á almennan drykkjuskap í landinu, þar sem þarna eiga eingöngu eða að langmestu leyti í hlut erlendir ferðamenn.
Samkv. frv. eru leyfi veitingahúsa til vínveitinga bundin tímatakmörkun. Verða þau eigi veitt til lengri tíma, en 4 ára í senn. Verði áfengisútsala lögð niður í kaupstað samkv. fyrirmælum 10. gr. frv., verður vínveitingaleyfi veitingahúss í þeim kaupstað ekki framlengt að gildistíma loknum. Leyfið skal bundið við nafn og veitir leyfishafa aðeins rétt til veitinga í því húsnæði, sem hann hefur, þegar honum er veitt leyfið. Þá má binda vínveitingaleyfi þeim skilyrðum, sem dómsmrh. og áfengisvarnaráð telja nauðsynlegt. Nánari fyrirmæli um vínveitingar. þ. á m. um veitingatíma, eftirlit á veitingastað og álagningu, ber að setja í reglugerð.
Í 13. gr. frv. er það nýmæli, að bannað er að senda vín gegn póstkröfu. Það er og mælt svo fyrir, að áfengi megi einungis selja gegn staðgreiðslu, en eftir núgildandi l. skal það ákveðið í reglugerð.
Í 16. gr. er það nýmæli upp tekið, að kaupandi áfengis skuli jafnan sanna aldur sinn með vegabréfi eða á annan fullnægjandi hátt, en haldið er reglu gildandi l. um, að óheimilt sé að afhenda eða veita yngri manni en 21 árs áfengi. Nýmæli er það og í sömu grein, að skylt skal að tilkynna útsölustöðum áfengisverzlunarinnar jafnóðum, hverjir gerzt hafi brotlegir samkv. þeirri grein, en óheimilt er að selja slíkum mönnum áfengi.
Í 20. gr. frv. eru sett ný og þrengri ákvæði um vínveitingaleyfi, sem lögreglustjóri getur gefið. Í því sambandi er að líta á það, að ástæðan til að gefa slík vínveitingaleyfi verður að sjálfsögðu miklu minni, ef heimilt er að hafa fastar vínveitingar á fleiri veitingahúsum en einu, t. d. í bæ eins og Reykjavík.
Þá eru þyngd nokkuð viðurlög við því, ef opinberir starfsmenn, starfandi læknar, lyfsalar eða þjónar þeirra eru ölvaðir við störf sín, samkv. 22. og 23. gr.
Í frv. er lagt til, að áfengisvarnir séu stórauknar. Samkv. 26. gr. skal starf áfengisvarnaráðunauts gert að aðalstarfi, en fram til þessa hefur það verið aukastarf. Er áfengisvarnaráðunaut ætlað að vera formaður og framkvæmdastjóri áfengisvarnaráðs, en áfengisvarnaráði er ætlað að fara með yfirstjórn allra áfengisvarna í landinu, stuðla að bindindissemi og vinna gegn ofnautn áfengra drykkja og reyna að afstýra skaðlegum áhrifum áfengisneyzlu. Er það ný stofnun. Skal það skipað 5 mönnum. Áfengisvarnaráðunautur er formaður, eins og fyrr segir, en hinir nefndarmennirnir skulu kjörnir hlutfallskosningu í Sþ. að afstöðnum hverjum almennum alþingiskosningum.
Þá er það nýmæli, að stofna skal sérstakan sjóð, áfengisvarnasjóð, til að standa straum af öllum kostnaði við áfengisvarnir. Skulu í sjóð þann renna 3% af rekstrarhagnaði Áfengisverzlunar ríkisins. Virðist sanngjarnt og eðlilegt, að einhverju af þeim hagnaði, sem verður af áfengisverzlun, sé einmitt varið til þess að girða fyrir skaðlegar afleiðingar áfengisnautnar.
Loks er algert nýmæli í 33. gr. frv. Samkv. því ákvæði skal á næstu 5 árum leggja árlega til hliðar 6% af hreinum ágóða Áfengisverzlunar ríkisins. Skal helmingi þeirrar upphæðar varið til byggingar drykkjumannahæla og lækningastöðva handa drykkjumönnum, sjúkrahúsa og elliheimila eftir nánari ákvörðun heilbrmrh. Hinum helmingi upphæðarinnar skal varið að jöfnu til þess að veita félagsheimilum og hótelum vaxtalaus lán. Skulu þau hótel, sem ekki hafa vínveitingaleyfi, ganga fyrir. Nýmæli þetta byggist á því sjónarmiði n., að gera eigi ríkissjóð smátt og smátt óháðan áfengisgróða.
Sektir allar samkv. frv. eru fjórfaldaðar frá því, sem er í gildandi l., en lítragjald er tífaldað. — Auk þessa eru svo minni háttar breytingar og nýmæli, sem ekki er ástæða til þess að rekja.
Ég tel víst, að mönnum sýnist sitt hverjum um sum ákvæði þessa frv. Hér er um mikið vandamál að ræða. Það er enginn, sem neitar því, — a. m. k. getur enginn neitað því, sem raunhæfum augum vill á líta, — að áfengismálin hér eru mikið vandamál, sem okkur hefur ekki tekizt enn að leysa svo sem skyldi. Sjálfsagt felst ekki nein fullnaðarlausn í þessu frv. Hér verður eftir sem áður við mikinn vanda að etja, en það er greinilegt, að sum ákvæði núgildandi l. eru beinlínis úrelt, þurfa umbóta við, og þeir, sem að þeim finna, verða þá að koma með nýja till. Í þessu frv. eru gerðar nýjar till. varðandi ýmislegt af því, sem mestum ágreiningi hefur valdið, og þó að öllum komi ekki saman um, eins og ég tel víst, að þetta séu beztu till., þá er þeirra, sem að finna, að benda á aðrar betri. En ég legg áherzlu á það, að nauðsynlegt er, að þetta mál fái einhverja afgreiðslu á Alþ., að menn setji á þessu þingi ný l. um áfengismál til þess að skera úr ýmsum þeim ágreiningi, sem nú er uppi um þessi málefni.
Ég vonast til, að frv. verði vísað til 2. umr., og legg það til og að því verði vísað til hv. allshn. til athugunar.